Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mígrenið reyndist vera æxli í heila

Þegar Karítas Björg­úlfs­dóttir leit­aði til heim­il­is­læknis síns fyrir sex árum síðan vegna höf­uð­verks var hún greind með mígreni. Fimm árum síðar fékk hún þær fréttir að hún hafði verið rang­lega greind og að höf­uð­verk­ur­inn væri af völdum heila­æxlis.

Tæpt ár er liðið síðan Karítas Björg­úlfs­dóttir fékk þær fréttir að hún hafði verið rang­lega greind með mígreni árið 2013. Í ljós kom að höf­uð­verkur og sjón­trufl­anir sem hún hafði þjáðst af voru af völdum ólækn­andi heila­æxlis hægra megin í höfði.

„Ég hafði sem sagt verið með mígreni, að ég hélt, í sex ár. Heim­il­is­lækn­ir­inn minn greindi mig með mígreni árið 2013, það var þá sem ég byrj­aði að fá höf­uð­verk og sjón­trufl­anir. Þessi höf­uð­verkur var samt í byrjun ekki neitt óbæri­legur líkt og mígren­is­höf­uð­verk er lýst,“ útskýrir Karítas sem fékk lyf við mígreni en fann að þau slógu ekki almenni­lega á verk­inn. Hana grun­aði þó aldrei að hún hefði verið rang­lega greind og að í raun væri hún með heila­æxli.

„Þegar ég byrj­aði í masters­námi fór höf­uð­verk­ur­inn að aukast. Ég fékk höf­uð­verkjar­köst þegar prófin nálg­uð­ust og þegar ég var undir álagi. Ég fór aftur til læknis sem full­viss­aði mig um að þetta væri mígreni.“

Það var svo í sept­em­ber 2018 að Karítas fékk höf­uð­verkjarkastið sem varð til þess að fjöl­skylda hennar sann­færði hana um að hún þyrfi að gang­ast undir rann­sóknir af ein­hverju tagi. „Ég fékk svo svaka­legt höf­uð­verkjarkast og sjón­trufl­anir að ég vissi varla hvað ég hét. Ég gat hvorki svarað í sím­ann né staðið upp úr rúm­inu. Þarna var ég ein heima með dóttur mína. Við náðum að hringja í mann­inn minn og ég sagði honum að hann þyrfti að koma heim, að það væri eitt­hvað að mér. Eftir þetta fóru hann og fjöl­skyldan mín fram á að ég færi aftur til læknis.“

Karítas fór að ráðum fjöl­skyldu sinnar og útskýrði fyrir heim­il­is­lækn­inum sínum að hennar nán­ustu hefðu miklar áhyggjur af ástand­inu. „Hann taldi mér trú um að þetta hefði bara verið mjög slæmt mígreniskast  en sam­þykkti að senda mig í mynda­töku. Hann sagði að hann myndi svo senda mér nið­ur­stöð­urnar skrif­lega, nema það kæmi eitt­hvað í ljós í mynda­tök­unni, þá myndi hann hringja.“

„Þá var hann með tárin í aug­unum og til­kynnti mér að þetta væri heila­æxli.“

Karítas fór í seg­u­l­ómun 12. októ­ber. Hún segir að á meðan á mynda­tök­unni stóð hafi hana farið að gruna að eitt­hvað alvar­legt væri að henni. „Þegar ég var að keyra heim úr mynda­tök­unni var hringt í mig frá heilsu­gæsl­unni og mér til­kynnt að ég þyrfti að koma í við­tal til heim­il­is­lækn­is­ins.“

Lækn­ir­inn sem greindi Karítas með mígreni á sínum tíma tók á móti henni til að fara yfir nið­ur­stöð­urnar. „Þá var hann með tárin í aug­unum og til­kynnti mér að þetta væri heila­æxli. Það var ekki auð­velt að sjá hvað honum fannst erfitt að segja mér þetta.“

 Helm­ingur æxl­is­ins fjar­lægður

Eftir að Karítas fékk þær fréttir að hún væri með æxli í heila tóku við fleiri mynda­tökur og fundur með heila­skurð­lækni. „Ég fékk frétt­irnar 12. októ­ber og 25. októ­ber var ég komin í aðgerð. Þeim tókst að skera helm­ing æxl­is­ins í burtu. Það var ekki hægt að taka allt vegna hættu á að skemma sjón­taugar og annað. En æxlið var búið að vaxa hægt í langan tíma og var orðið á stærð við tómat,“ segir Karítas og bendir á stórt ör á höfði sínu.

Við tóku lyfja- og geisla­með­ferðir sem Karítas segir að vissu­lega hafi tekið sinn toll af heils­unni en hún tekur fram að hún hafi alltaf verið í góðu lík­am­legu formi og það hafði hjálpað henni mikið.

„Það hvarfl­aði aldrei að mér að ég hefði fengið ranga grein­ingu,“ segir Karítas. Myndir / Hákon Davíð Björns­son

„Lyfin fóru auð­vitað svo­lítið illa í mig en þetta hefur samt allt gengið rosa­lega vel. Ég náði til dæmis alltaf að stunda lík­ams­rækt meðan á með­ferð­inni stóð. Þannig að þegar fólk rakst á mig úti á götu á meðan á með­ferð­inni stóð var það oft hissa. Það hélt greini­lega bara að ég lægi í rúm­inu deyj­andi. Ég var alltaf að reyna að full­vissa fólk um að ég væri á réttri leið. Mig lang­aði ekki að fólk sæi mig fyrir sér að deyja.“

Karítas bætir við að hún hafi aldrei litið á heila­æxlið sem dauða­dóm. „Það sem hefur ein­kennt hjúkr­un­ar­fræð­inga sem hafa komið að minni sjúkra­sögu er að þær eru bara að und­ir­búa mig fyrir dauð­ann. Ég fór til dæmis á fund með líkn­arteymi og var þá spurð hvernig það legð­ist í mig að deyja. Annar hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem ég tal­aði við spurði mig hvað tæki við þegar bleika skýið mitt væri ekki lengur til staðar. Þetta finnst mér mjög áhuga­vert – að draga úr mann­eskju sem er lífs­glöð og vill líta á björtu hlið­arnar á líf­inu.“

„Læknar geta gert mannleg mistök“

Eins og áður sagði grun­aði Karítas ekki að höf­uð­verk­ur­inn og sjón­trufl­an­irnar sem höfðu hrjáð hana í gegnum árin væri af völdum heila­æxlis. Hún segir grein­ing­una hafa verið mikið áfall fyrir sig og sína nán­ustu. „Það hvarfl­aði aldrei að mér að ég hefði fengið ranga grein­ingu. Þannig að það að heyra að ég væri með ólækn­andi heila­æxli var mikið sjokk. Maður býst ekki við að svona geti komið fyrir. En þetta getur komið fyrir hvern sem er.“

Aðspurð hvort að hún sé reið yfir því að hafa verið greind með mígreni þegar að um heila­æxli var að ræða svarar Karítas neit­andi. „Nei, þetta getur auð­vitað gerst. Fólk treystir yfir­leitt lækn­inum sínum en læknar eru bara fólk eins og við. Læknar geta gert mann­leg mis­tök.“

„Fólk treystir yfir­leitt lækn­inum sínum en læknar eru bara fólk eins og við. Læknar geta gert mann­leg mis­tök.“

Jákvæðni ein­kennir per­sónu­leika Kar­ítasar og hún segir það hafa hjálpað sér mikið und­an­farið ár. „Fyrst var ég svo­lítið reið að heyra að ég væri með ólækn­andi heila­æxli en svo ákvað ég bara að reyna að tækla þetta með jákvæðni. Krabba­meins­lækn­ir­inn minn hefur líka hjálpað mér að líta á björtu hlið­arnar og veitt mér von,“ segir Karítas og tekur sem dæmi að hún sé heppin að æxlið sé stað­sett hægra megin í heila en ekki í fram­heila t.d. því það hefði geta haft áhrif á per­sónu­leik­ann.

Karítas segir grein­ing­una hafa sett lífið í nýtt sam­hengi. „Við fjöl­skyldan fluttum úr Vest­ur­bænum í Hafn­ar­fjörð eftir að ég greind­ist vegna þess að ég fann að ég vildi vera nær fjöl­skyld­unni minni sem býr í Hafn­ar­firði. Núna veit ég að ég vil beina athygl­inni fyrst og fremst að fjöl­skyld­unni.“

Spurð út í fram­haldið segir Karítas að núna ætli hún að ein­beita sér að því að ná fullri heilsu og gera það sem veitir henni gleði í líf­inu. „Ég fékk svo góðar fréttir í lok ágúst. Nýjustu mynd­irnar af æxl­inu sýna að það hefur minnkað. Ég er í raun útskrifuð og þarf bara að vera í eft­ir­fylgni,“ segir Karítas skæl­bros­andi. „Þannig að núna ætla ég bara að halda áfram að hugsa vel um mig og gera skemmti­lega hluti.  Við höfum ekki stjórn á því hvaða leið við þurfum að þarf að fara í gegnum lífið, en við stjórnum því hvernig við förum hana. Mín leið hefur verið ansi skemmti­leg og mér tókst að takast á við þetta erf­iða verk­efni nokkuð vel. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð