Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Náttúruhamfarir sem fara í sögubækurnar

Flóð­bylgjan í Öskju­vatni sem mynd­að­ist í kjöl­farið á risa­vöxnu berg­hlaupi náði allt að 80 metra hæð yfir vatns­borði Öskju­vatns. Nátt­úru­ham­farir af þessu tagi kunna að fær­ast í auk­ana sam­hliða lofts­lags­breyt­ingum. Ferða­menn eru varaðir við að verja of miklum tíma við bakka Öskju­vatns.

Náttúruhamfarir sem fara í sögubækurnar
Á mynd­inni sést hversu gríð­ar­legt magn féll úr berg­inu og út í Öskju­vatn. Mynd / Kristinn Ingi Pét­urs­son

Hópur íslenskra vís­inda­manna not­aði lík­an­reikn­inga til að herma flóð­bylgj­una sem mynd­að­ist eftir gríð­ar­legt berg­hlaup í Öskju þann 21. júlí 2014. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkir reikn­ingar eru not­aðir hér á landi og munu reikn­ing­arnir nýt­ast til þess að meta hættu af völdum skriðu­falla út í vötn og lón. Nið­ur­stöð­urnar voru birtar í nýjasta tölu­blaði Nátt­úru­fræð­ings­ins. „Sögulega er þetta með stærri atburðum sem við höfum upp­lýs­ingar um,“ segir Jón Kristinn Helgason, sér­fræð­ingur á sviði skriðu­falla og hættu­mats hjá Veð­ur­stofu Íslands og einn höf­unda grein­ar­innar. Eitt af því sem kom vís­inda­mönn­unum á óvart var hversu stór flóð­bylgjan sem mynd­að­ist var. „Af ummerkjum að dæma hefur þetta verið ógur­leg flóð­bylgja sem reis hæst um 80 metra og náði alla leið upp á barma Vítis. Það er mildi að þetta hafi gerst seint að kvöldi því ferða­menn höfðu verið þarna á ferð aðeins hálf­tíma áður, þeir hefðu ann­ars verið í bráðri hættu.“ Er ljóst að þarna var bráð hætta á ferð því flóð­bylgjan er talin hafa borist yfir vatnið á ein­ungis einni til tveimur mín­útum.

Loftlagsbreytingar auka líkurnar

Hættan af stórum berg­hlaupum kann að fara vax­andi hér á landi sam­hliða hlýn­andi lofts­lagi og hopun jökla. „Með til­komu lofts­lags­breyt­inga eiga sér stað miklar breyt­ingar í nán­asta umhverfi jökla og við það geta hlíðar orðið óstöðugar þegar jöklar byrja að hopa en nýleg­ustu dæmin eru hlíð­arnar ofan við Svína­fells­jökul og Tungna­kvísl­ar­jökul. Þar að auki sjáum við ummerki um skriður sem tengja má við bráðnun íss í fjöllum eða sífrera,“ segir Jón Kristinn og rifjar upp nýlegar sífera­skriður í Fljótum og Árnest­indi á Ströndum. Þá hefur þurft að loka hluta Reyn­is­fjöru vegna skriðu­falla en Jón Kristinn segir þau ann­ars eðlis en stóru berg­hlaupin sem fjallað er um. Þótt þessi hlaup hafi ekki valdið tjóni á fólki eða mann­virkjum þá féllu þau á stöðum þar sem ferða­menn fara gjarnan um. Þróun aðferða­fræði sem beitt var við rann­sóknir á berg­hlaup­inu í Öskju munu meðal ann­ars nýt­ast til að meta hættu á öðrum fjöl­förnum ferða­manna­stöðum.

Í grein vís­inda­mann­anna segir að eðli­legt sé að fólk sem fari að Öskju­vatni sé varað við hættu á skriðu­föllum og flóð­bylgjum með áber­andi hætti þegar það kemur inn á svæðið og að mælt sé með því að það dvelj­ist ekki lang­dvölum við vatnið. Þá sé rétt að beina til­mælum til ferða­þjón­ustu­að­ila að þeir skipu­leggi ferðir um svæðið þannig að ekki sé staldrað við niðri við vatnið til að mat­ast. Eftir berg­hlaupið 2014 var fram­kvæmt hættu­mat og skiltum komið upp í sam­ráði við for­svars­menn Vatna­jök­uls­þjóð­garðs. „Öskju­vatn er ekki hættu­laus staður þótt við eigum ekki von á öðrum atburði á sam­bæri­legum skala á næst­unni. Þá eru samt sprungur í brún öskj­unnar sem stórar skriður geta fallið um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð