Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Steinaþjófar skilja eftir sig laskaðar náttúruperlur

Steina­taka ferða­manna er við­var­andi vanda­mál í íslenskri nátt­úru og eru sumir staðir farnir að láta veru­lega á sjá. Dæmi eru um mjög ein­beittan brota­vilja en hægt er að stemma stigu við þjófn­að­inum með auk­inni land­vörslu.

Steinaþjófar skilja eftir sig laskaðar náttúruperlur
Úr Helgu­staða­námu. Mynd/visiteski­fjordur.is|

Silf­ur­bergs­þjófn­aður úr Helgu­staða­námu hefur verið við­var­andi vanda­mál í mörg ár og segir Lára Björns­dóttir, land­vörður á Aust­ur­landi, að náman sé veru­lega farin að láta á sjá. „Það stór­sér á þessu. Ef maður talar við bændur hér á svæð­inu þá glamp­aði á silf­ur­bergið allt í kring. Það gerir það ekki í dag. Í námunni er ekki eftir nema ein æð og við erum einmitt að fara að girða þar fyrir í næstu viku.“

Tölur um fjölda ferða­manna sem heim­sækja svæðið árlega liggja ekki fyrir en Lára áætlar að fjöld­inn skipti þús­undum, bæði inn­lendir og erlendir ferða­menn. Lára sinnir land­vörslu á stóru svæði og hefur því ekki tök á að fylgj­ast stöðugt með umferð ferða­manna en þar nýtur hún góðs lið­sinnis heima­manna. „Heima­menn eru vak­andi fyrir því hversu ein­stakt svæði þetta er og þeir hafa verið að stoppa fólk af og láta mig vita af ein­staka til­vikum. Bara um dag­inn stopp­uðu heima­menn fólk sem var komið með bak­poka til að fylla. Það voru Íslend­ingar þannig að þetta eru ekki bara erlendir ferða­menn. Ég veit að þetta er til sölu í Kola­port­inu.“ Það er til­finn­ing Láru að stein­bergs­þjófn­aður hafi minnkað eftir að land­varsla hófst en að vakta þurfi svæðið enn betur yfir allt árið. „Fyrir nokkrum árum voru menn að mæta með áhöld gagn­gert til að taka krist­alla. Þetta er nátt­úr­lega þekktur staður og hann er að finna í ferða­bókum eins og Lonely Planet en flestir erlendir ferða­menn eru með­vit­aðir um að það megi ekki taka krist­alla úr námunni.“

Búið að taka allt úr Leiðarenda

Annar staður sem hefur orðið fyrir miklu tjóni vegna ágangs ferða­manna er hellir­inn Leið­ar­endi á Reykja­nesi. Þar er búið að fjar­lægja nán­ast alla dropa­steina úr hell­inum. „Það er búið að hreinsa allt út úr Leið­ar­enda. Það er tölu­vert um að dropa­steinar séu fjar­lægðir á Íslandi sem er alvar­legt mál því þeir eru sjald­gæfir og koma aldrei aftur. Það er líka farið að láta veru­lega á sjá í Hall­mund­ar­hrauni,“ segir Daníel Freyr Jónsson, sér­fræð­ingur í nátt­úru­vernd­ar­teymi Umhverf­is­stofn­unar.

Dropa­steinar eru frá­brugðnir silf­ur­berg­inu að því leyti að nota­gildi þeirra er lítið. Þeir eru við­kvæmir og brotna við lítið álag og þess utan þykja þeir lítil stofu­prýði. Telur Daníel að í flestum til­fellum rek­ist fólk í stein­ana eða taki þá með sér í hugs­un­ar­leysi. „Það hefur komið fyrir að stórir steinar, sem vega jafn­vel tugi kílóa, hafa verið sag­aðir af hellis­gólf­inu og það er ein­beittur brota­vilji. En það er mjög sjald­gæft.“

Daníel vill ekki kenna ásókn erlendra ferða­manna um enda fannst Leið­ar­endi fyrir um 30 árum og var búið að hreinsa hann áður en ferða­manna­sprengjan hófst eftir hrun. „Ég trúi því samt að þetta sé að breyt­ast og að skila­boðin um fágæti dropa­steina hafi náð í gegn.“ Reynslan sýnir í það minnsta að aukin varsla og fræðsla virkar. Í árlegri skýrslu Umhverf­is­stofn­unar kemur fram að mikið hafi verið um brott­nám stein­gerv­inga í Surt­ar­brands­gili á Vest­fjörðum en tek­ist hafi að koma í veg fyrir það að mestu.

Ein sending gerð upptæk

Lögum sam­kvæmt er bannað að flytja steina og aðrar nátt­úru­minjar á landi og hefur toll­gæslan eft­ir­lit með slíkum útflutn­ingi, bæði í vöru­send­ingum og far­angri ferða­manna. Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands hefur þau verk­efni að skrá, varð­veita, flokka, rann­saka og kort­leggja líf­ríki og jarð­mynd­anir lands­ins og í þeim til­fellum sem útflutn­ingur er á steinum, stein­gerv­ingum eða eggjum þá hefur toll­gæsla sam­band við sér­fræð­inga stofn­un­ar­innar.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Baldri B. Hösk­ulds­syni aðstoð­ar­yf­ir­toll­verði hefur eitt slíkt mál komið upp í sumar. Voru þrír ferða­menn stöðv­aðir við brott­för í Norrænu og í fórum þeirra fannst óveru­legt magn af steinum sem höfðu verið fjar­lægðir úr Vatna­jök­uls­þjóð­garði. Hald var lagt á stein­ana og þeim komið í hend­urnar á þjóð­garðs­vörðum. „Slík mál hafa komið upp á af og til en einnig hafa komið upp und­an­farin ár nokkur mál varð­andi útflutn­ing á eggjum þó ekk­ert á þessu ári. Fyrir tveimur árum kom upp mál þar sem átti að flytja út mikið magn af eggjum í bif­reið við brott­för Norrænu. Dæmt hefur verið í því máli og fékk við­kom­andi fésekt,“ segir Baldur. Ekkert mál af þessu tagi hefur komið upp hjá toll­gæsl­unni á Kefla­vík­ur­flug­velli sam­kvæmt upp­lýs­ingum þaðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ