Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Eins og maður sé nánast einskis virði“

Kona sem varð fyrir því á Menn­ing­arnótt í fyrra að leigu­bíll ók yfir fót hennar með þeim afleið­ingum að hún slas­að­ist illa, segir bíl­stjór­ann hafi stungið af frá slys­stað. Málið hefur legið hjá lög­reglu síðan og seg­ist konan vera reið og sár yfir því að rann­sóknin skuli hafa dreg­ist á lang­inn.

„Eins og maður sé nánast einskis virði“
Theodóra Heba Guð­munds­dóttir. „Ég er möl­brotin eftir þetta

Á Menn­ing­arnótt fyrir ári síðan lenti Theodóra Heba Guð­munds­dóttir í alvar­legu slysi þegar leigu­bíll sem hún og kær­asti hennar höfðu farið með heim­leiðis úr bænum, ók yfir fót­inn á henni. Atvikinu lýsti Theodóra í smá­at­riðum í færslu á Facebook á sínum tíma og sagði þar meðal ann­ars frá því að þegar á áfanga­stað kom hafi öku­manni leigu­bíls­ins legið svo á að kom­ast á næsta stað að hann hafi ekið af stað áður en hún var komin almenni­lega út úr bílnum með fyrr­greindum afleið­ingum. „Ég dróst ein­hverja metra með bílnum og hurðin ennþá opin. Loksins stopp­aði hann! En ekki til að tékka á mér, heldur til að loka hurð­inni og stinga af,“ sagði Theodóra, sem hlaut alvar­lega áverka, meðal ann­ars opið sköfl­ungs­brot, og lá á spít­ala í tæpa viku.

Í sam­tali við Mannlíf segir Theodóra að hún hafi sam­stundis leitað sér aðhlynn­ingar á bráða­mót­tök­unni á Land­spít­al­anum í Fossvogi. Þangað hafi lög­reglu­maður mætt til að taka skýrslu af henni og kærasta hennar og frá­sagnir þeirra hafi verið studdar af vitn­is­burði nokk­urra sjón­ar­votta að atvik­inu. „Í kjöl­farið höfðu pabbi og kær­asti minn sam­band við Hreyfil á meðan ég lá á spít­al­anum til að ræða atvikið við for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins og þeir voru bara með stæla. Pabbi sendi þáver­andi fram­kvæmda­stjóra tölvu­póst og hann vildi ekk­ert gefa út á þetta. Sagði að lög­reglan væri að skoða málið, þetta væri því lög­reglu­mál og þangað til nið­ur­staða lægi fyrir gæti hann ekk­ert gert í mál­inu. Hann lét næstum eins og þetta kæmi sér ekki við.“

Nú er heilt ár liðið frá atvik­inu og seg­ist Theodóra enn vera að jafna sig eftir slysið. „Ég fer í röntgen­mynda­töku á þriggja mán­aða fresti þar sem sárið grær ekki nógu vel. Ég er möl­brotin eftir þetta, plötur og skrúfur halda öllu saman, ég er með tvö risa­stór ör á sköflungnum og fæ reglu­lega verki. Ég kemst ekki langt án hækju. Er alveg óvinnu­fær. Get ekki einu sinni gert ein­föld­ustu heim­il­is­verk hjálp­ar­laust. Lækn­ir­inn sem ann­ast mig segir að þetta hafi verið mjög slæmt brot. Hann sér fram á mikla end­ur­hæf­ingu og er ekki bjart­sýnn á að ég nái mér nokkurn tíma.“

Andlegu hlið­ina segir hún sömu­leiðis vera í molum. „Ég fékk áfalla­hjálp strax þegar þetta gerð­ist og hef síðan verið hjá sál­fræð­ingi sem hefur hjálpað mér að takast á við áfallastreituröskun sem hefur fylgt þessu. Ég end­ur­upp­lifi nefni­lega enn atvikið í hug­anum og fæ matraðir, heilu ári seinna.“

Ekkert heyrst í lög­reglu eða Hreyfli
Verst þykir Theódóru þó að hafa ekki fengið svör frá lög­regl­unni um hvar málið sé statt, þrátt fyrir að hafa reynt að setja sig í sam­band við lög­reglu­mann­inn sem tók skýrsl­una. Hún hafi heldur ekki enn fengið afsök­un­ar­beiðni frá Hreyfli, ekki svo mikið sem heyrt í for­svars­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins.

„Nei, ég hef ekk­ert heyrt,“ segir hún ósátt. „Hvorki í fram­kvæmda­stjóra Hreyfils, eig­anda bíls­ins né öku­mann­inum. Mér skilst reyndar að bíl­stjór­inn hafi sagt eig­anda bíls­ins að hann hefði ekki séð mig þegar þetta gerð­ist og því sé rangt að hann hafi stungið af. Þetta er því orð gegn orði. Ég veit ekki til þess að ákæra hafi verið gefin út á hendur bíl­stjór­anum, ég held að honum hafi ekki einu sinni verið veitt til­tal út af þessu. Og eftir því sem ég kemst næst starfar hann enn hjá Hreyfli,“ segir hún og kveðst vera reið og sár yfir skeyt­ing­ar­leysi fyr­ir­tæk­is­ins.

„Ég er satt að segja hissa á þess­ari fram­komu þar sem ég bjóst við að stórt fyr­ir­tæki eins og Hreyfill tæki ein­hverja ábyrgð. En nei, ekk­ert ger­ist. Mér líður eins og þetta skipti engu máli, að maður sé nán­ast einskis virði,“ segir hún og kveðst vera að skoða næstu skref. „Ég er stað­ráðin í að leita réttar míns, það er í vinnslu.“

Þess má geta að Mannlíf hafði sam­band við Hreyfil vegna máls­ins. Vignir Þröstur Hjálm­ars­son deild­ar­stjóri varð fyrir svörum en hann hafði ekki heyrt um málið og óskaði eftir því að haft yrði sam­band við núver­andi fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, Harald Gunn­ars­son. Haraldur var hins vegar vant við lát­inn. Hjá lög­reglu feng­ust þá svör að rann­sókn máls­ins hefði tekið skamman tíma og að því loknu verið sent til ákæru­sviðs, þar sem málið virð­ist liggja enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð