Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

E.coli smit í Efstadal: Böndin beinast að háþrýstiþvotti

E.coli smit í Efstadal: Böndin beinast að háþrýstiþvotti
Ferða­þjón­ustan Efstadal II

Matvælastofnun telur að háþrýstiþvottur á umhverfi nautgripa hafi að líkindum verið ein af smitleiðum STEC smitsins í Efstadal II í fólk.

Líkt og Mannlíf greindi frá á dög­unum hefur stofn­unin úti­lokað að e.coli smitið í Efstadal II hafi átt rætur að rekja til ísfram­leiðsl­unnar þar á bæ. Á annan tug barna veikt­ust vegna sýk­ing­ar­innar. Búið er að hreinsa allt svæðið og er rekst­ur­inn kom­inn á fullt á ný.

Nú telur stofn­unin að háþrýsti­þvottur á umhverfi naut­gripa hafi verið ein af smit­leið­unum. Á vef stofn­un­ar­innar er athygli bænda og ann­arra fram­leið­enda vakin á því að úði frá háþrýsti­þvotti á smit­uðu umhverfi geti dreift smitefnum og valdið sjúk­dómi í dýrum og mönnum.

Á Íslandi og víðar er hefð fyrir því að nota háþrýsti­þvott í land­bún­aði. Í úðanum sem mynd­ast við háþrýsti­þvott geta verið sveppir, bakt­er­íur, veirur, sníkju­dýr eða önnur smitefni sem ber­ast auð­veld­lega í fólk og dýr, t.d. með því að anda úðanum að sér. Auk þess leggst úðinn á yfir­borðs­fleti og mengar þá. Smit getur þá orðið við snert­ingu. Fólk í land­bún­aði þarf að gera sér grein fyrir þessu og end­ur­skoða starfsvenjur sínar þannig að komið verði í veg fyrir óþarfa dreif­ingu smits. Það sama getur átt við í mat­væla­iðn­aði.

Lág­þrýsti­þvottur (20-22 bör) hefur kosti umfram háþrýsti­þvott (um og yfir 100 bör) að því leiti að hvorki mynd­ast úði né dreifast óhrein­indi eins mikið, þannig er lág­þrýsti­þvottur betri kostur til þvotta í land­bún­aði. Í land­bún­aði eru óhjá­kvæmi­lega smitefni og ætíð ætti að gera ráð fyrir að smitefni geti verið hættu­leg heilsu manna og dýra. Í öllu falli ætti ekki að nota háþrýsti­þvott þar sem nálægð er mikil milli dýra og manna og/eða mat­væla, því úðinn fer víða. Aldrei skal þvo gripa­hús með háþrýst­ingi þegar dýr eru inni og nota skal grímur til að verj­ast úða­smiti.

Sýking af völdum sníkju­dýrs­ins Cryptosporidium parvum meðal dýra­lækna­nema í Danmörku árið 2012 er gott dæmi um hvað getur gerst við háþrýsti­þvott í smit­uðu umhverfi. Við frá­gang eftir verk­lega kennslu með kálfa sem voru með nið­ur­gang var kennslu­rýmið háþrýsti­þvegið. Allir sem þar voru inni veikt­ust, alls 24 manns. Smitið barst að öllum lík­indum með úðanum sem mynd­að­ist við þvott­inn, sem við­staddir önd­uðu að sér.

Mat­væla­stofnun hvetur bændur og þá sem eru ábyrgir fyrir mat­væla­ör­yggi til að skoða þrifa- og sótt­hreinsi­að­ferðir sem við­hafðar eru og leita ráða um tæki og efni sem í boði eru á mark­aðnum og henta vel til notk­unar í land­bún­aði og við með­ferð mat­væla. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð