Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Af hverju fannst mér í lagi að borða nautakjöt en ekki hval eða kálf?“

Gunnar Theodór Egg­erts­son rit­höf­undur sendi nýlega frá sér bók­ina Slát­ur­tíð, ferða­sögu sem veltir upp ýmsum hliðum á sam­fé­lags­mál­efnum á borð við vegan­isma og dýrasið­fræði.

„Af hverju fannst mér í lagi að borða nautakjöt en ekki hval eða kálf?“
Gunnar Theodór hóf vinnu við bók­ina Slát­ur­tíð sam­hliða rann­sóknum sínum í dokt­ors­námi um dýrasið­fræði og sam­tíma­menn­ingu.|Slát­ur­tíð fjallar um leik­stjóra í leit að aktíf­ista sem hefur ekki sést síðan hún losn­aði úr fang­elsi fyrir hryðju­verk til að bjarga dýrum.

„Ég hef haft áhuga á dýrum síðan ég var strákur og álitið
mig dýra­vin, eins og margir, án þess endi­lega að velta fyrir mér hvað það þýði
að segj­ast vera vinur dýra,“ segir Gunnar. „Ég hef alltaf reynt að sýna dýrum
samúð, þótt það hafi lengi vel ekki náð til allra dýra­teg­unda. Gáttin inn í
dýrasið­fræð­ina opn­að­ist þegar ég fylgd­ist með Greenpeace-liðum mót­mæla
hval­veiðum og grilla svo kálfa­kjöt niðri við Reykja­vík­ur­höfn – það stuð­aði mig
ein­hvern veg­inn svo illa að ótal spurn­ingar kvikn­uðu í kjöl­farið. Sjálfur
neytti ég nauta­kjöts, en hvers vegna þótti mér það eðli­legt, en ekki að éta
hval eða kálf?“

Þetta var sum­arið 2003. Upp úr þessu varð Gunnar græn­metisæta og
fór jafnt og þétt að kynna sér helstu rit dýrasið­fræð­innar. „Masters­verk­efnið
mitt frá Amster­dam-háskóla end­aði á að blanda saman hroll­vekjum og dýrasið­fræði
– sem reynd­ist umdeilt innan deild­ar­innar – og eftir það komst ég í kynni við
nýja fræði­grein, „animal stu­dies“, nokk­urs konar menn­ing­ar­lega dýrasið­fræði, og
ákvað að sér­hæfa mig í því í dokt­ornum, með áherslu á bók­menntir.“

„Við gerum mikið úr til­finn­inga­lífi einnar teg­undar – gælu­dýra til dæmis – en lítið úr sál­ar­lífi ann­arra – svo sem slát­ur­dýr­anna – og við upp­hefjum villt dýr, svo lengi sem þau halda sig á réttum stöðum.“

Gunnar skrif­aði svo dokt­ors­rit­gerð sem hann varði við
hug­vís­inda­deild Háskóla Íslands árið 2016. „Hún tók dýra­sögur fyrir sem
bók­mennta­form og í örstuttu máli færði ég rök fyrir því að dýra­sögur – þ.e.
bók­menntir skrif­aðar frá sjón­ar­horni ann­arra dýra­teg­unda eða með líf dýra fyrir
miðju frá­sagnar á einn eða annan hátt – væru í eðli sínu rót­tækt form
and­ófs­bók­mennta og þær beri að taka alvar­lega sem slíkar, en ekki að gera lítið
úr þeim, eins og gjarnan er gert í fræð­unum.“

Slát­ur­tíð er fimmta skáld­saga Gunnars og fjallar um leik­stjóra í
leit að aktíf­ista sem hefur ekki sést síðan hún losn­aði úr fang­elsi fyrir
hryðju­verk til að bjarga dýrum. Gunnar Theodór hóf vinnu við bók­ina sam­hliða
rann­sóknum sínum í dokt­ors­námi um dýrasið­fræði og sam­tíma­menn­ingu. „Ýmislegt í
sög­unni byggir á minni eigin reynslu, bæði af mót­mælum, af kynnum við aktíf­ista
og af sam­tölum sem ég hef átt í gegnum tíð­ina, en auð­vitað er allt saman ýkt og
breytt og bogið og beyglað í nafni frá­sagn­ar­list­ar­innar.“

Útrás að fjalla um fræðiefnið á annan hátt

Þó bókin sé að mörgu leyti byggð á reynslu Gunnars segir hann að
hún sé fyrst og fremst skáld­skapur. „Þótt finna megi brota­kennda útgáfu af
höf­und­inum, dreifðum yfir allar per­sónur bók­ar­innar, þá eru þær allar saman
sjálf­stæðar á sinn hátt. Sagan getur verið per­sónu­leg, án þess þó að
höf­und­ur­inn sé per­sóna,“ segir Gunnar.

Slát­ur­tíð fjallar um leik­stjóra í leit að aktíf­ista sem hefur ekki sést síðan hún losn­aði úr fang­elsi fyrir hryðju­verk til að bjarga dýrum.

Hann segir að í raun séu tvær ástæður fyrir því að hann ákvað að
skrifa skáld­sögu sam­hliða dokt­ors­nám­inu. „Annars vegar hefur mig lengi langað
til að skrifa skáld­sögu fyrir full­orðna og þarna fann ég loks­ins efni­við sem ég
treysti mér til að vinna með. Hins vegar var af svo miklu áhuga­verðu að taka í
dokt­ors­nám­inu að mig lang­aði til að fjalla um alls konar pæl­ingar sem ekki var
pláss fyrir í rit­gerð­inni sjálfri. Fræði­vinnan á líka til að vera dálítið
kæf­andi – það þarf að vega og meta allt vand­lega, skoða hug­myndir frá öllum
hliðum og við­halda fræði­legri yfir­sýn og hlut­lausum tón – og oft á frekar
ster­ílan  máta. Stundum þurfti ég bara að fá útrás og fjalla um efnið á allt annan hátt, koma lífi í hug­mynda­fræð­ina og jafn­vel skvetta smá­vegis blóði í leið­inni. Búa til erf­iðar aðstæður og fleygja per­sónum ofan í djúpu laug­ina, leyfa þeim að ríf­ast og haga sér illa, nálg­ast þver­sagn­irnar af meiri nánd með því að færa þær bein­línis inn í frá­sögn, losna
við fræði­legu silki­hansk­ana, ef svo má að orði kom­ast. Þannig lifn­aði sagan
smátt og smátt við, ég byrj­aði að skrifa hana 2013 og nú, sex árum síðar, er
hún loks­ins flogin úr hreiðr­inu.“

Stefnir á frekari útgáfu

Slát­ur­tíð er fyrsta skáld­saga Gunnars sem hugsuð er fyrir full­orðna les­endur. „Ég á þó að
baki smá­sögu, hroll­vekj­una Vetr­ar­saga. Hún var skrifuð fyrir full­orðna, kom út
2005 og hlaut Gadda­kylf­una það árið. Sem stendur vinn ég að þriðju bók minni um
ung­norn­ina Dísu en við sjáum hvernig við­tök­urnar verða með Slát­ur­tíð­ina – ég er
með aðra full­orð­ins á vinnu­borð­inu sem mig langar að glíma við næst.“

„Stundum þurfti ég bara að fá útrás og fjalla um efnið á allt annan hátt, koma lífi í hug­mynda­fræð­ina og jafn­vel skvetta smá­vegis blóði í leið­inni.“

Í dokt­ors­nám­inu skoð­aði Gunnar fyrst og fremst 19. aldar dýra­sögur, íslenskar og erlendar. „Sem stendur vinn ég að fram­halds­verk­efni sem snýst um að safna saman þeim allra bestu og áhuga­verð­ustu og von­andi fá þær útgefnar, enda eiga þessar sögur ekki síður erindi til les­enda nú en fyrir 150 árum.“

Elskum gæludýr en hlutgerum húsdýr

Gunnar talar um þver­sagnir innan dýrasið­fræð­innar og okkur leikur for­vitni á að vita að lokum hverjar hann telji þær vera. „Þver­sagn­irnar spretta upp úr tog­streit­unni á milli þess sýni­lega og ósýni­lega varð­andi sam­lífi okkar mann­fólks­ins við önnur dýr, og upp úr fjar­lægð­inni sem hefur mynd­ast á milli okkar og ann­arra dýra í nútíma­sam­fé­lagi. Við gerum mikið úr til­finn­inga­lífi einnar teg­undar – gælu­dýra til dæmis – en lítið úr sál­ar­lífi
ann­arra – svo sem slát­ur­dýr­anna – og við upp­hefjum villt dýr, svo lengi sem þau
halda sig á réttum stöðum. Við elskum gælu­dýr en hlut­gerum hús­dýr, höldum
beikon­há­tíð í bænum og for­dæmum hunda­slátrun í öðrum löndum, dáumst að ljónum í
dýra­görðum en skjótum ísbirni sem koma inn á „okkar“ svæði. Og svo fram­vegis,
það er af nógu að taka. Þetta eru pæl­ingar sem kveikja oft líf­legar umræður og
ég hef til dæmis kennt nokkur nám­skeið við HÍ sem taka á dýrasið­fræð­inni og
fundið fyrir miklum áhuga nem­enda til að tala um hinar ýmsu þver­sagnir, þótt
við séum ekk­ert endi­lega að fara að leysa þær svo glatt. Slíkar umræður tel ég
afar hollar og mik­il­vægt að halda efn­inu lif­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð