Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gósentíð í veðri flýtir bráðnun jökla

Tíð­ar­farið í ár flýtir enn fyrir bráðnun jökla. Fjórir smá­jöklar munu að lík­indum hverfa innan 10 ára og Snæ­fells­jök­ull að óbreyttu innan 30 ára.

Gósentíð í veðri flýtir bráðnun jökla
Oddur Sig­urðs­son

Samfara hlýn­andi lofts­lagi á þess­ari öld hefur orðið gríð­ar­leg breyt­ing á íslenskum jöklum. Hefur flat­ar­mál jökla á Ísland minnkað á síð­ast­liðnum 130 árum úr því að vera 12 pró­sent í 10 pró­sent af flat­ar­máli lands­ins. Um alda­mótin var heild­ar­flat­ar­mál jökla 11.082 fer­kíló­metrar en árið 2012 var það komið niður í 10.600.

Hlý­inda­skeið eins og við höfum upp­lifað und­an­farið ýtir enn frekar undir þessa þróun. „Það gerir það vissu­lega. Við sjáum það vel á jök­ul­ánum, þær eru að verða mjög miklar. Venju­lega eru þær vatns­mestar síðla sum­ars, þá er vetr­ar­snjór­inn að mestu horf­inn, snjór­inn er dökkur og tekur þar af leið­andi í sig meiri geislun. En þessi hiti flýtir öllu þessu ferli,“ segir Oddur Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur á sviði jökla­rann­sókna á Veð­ur­stofu Íslands. Hann býst við að jöklar lands­ins muni rýrna veru­lega í ár. „Breyti­leiki jökla er fyrst og fremst háður sum­ar­hita og úrkomu. Þetta var til­tölu­lega rýr vetur, úrkoma var ekki mikil og jökl­arnir bættu ekki miklu við sig. Þannig að jökl­arnir munu rýrna veru­lega í ár, það er ekk­ert vafa­mál.“

„Samfara hlýn­andi lofts­lagi á þess­ari öld hefur orðið gríð­ar­leg breyt­ing á íslenskum jöklum.“

Smá­jöklum fækkar hratt
Því hefur verið spáð með gildum rökum að jöklar Íslands verði í stórum dráttum horfnir eftir tvær aldir haldi fram sem horfir um hlýnun loft­hjúps jarðar. Nú þegar eru jökl­arnir farnir að týna töl­unni (sjá umfjöllun um Okjökul hér til hliðar) og því er spáð að Snæ­fells­jök­ull verði horf­inn fyrir árið 2050. Smá­jökl­arnir týna óðum töl­unni. „Þetta eru fyrst og fremst jöklar sem eru til­tölu­lega lágir og flatir. Til dæmis Hofs­jök­ull eystri sem er hér um bil að gefa upp önd­ina. Torfa­jök­ull er mjög tæpur orð­inn og Kalda­klofs­jök­ull og Þránd­ar­jök­ull. Ég efast um að Hofs­jök­ull og Kalda­klofs­jök­ull nái 10 árum,“ segir Oddur sem kort­lagði íslenska jökla um alda­mótin og svo aftur 2017. Margir þess­ara jökla eru horfnir. „Það eru 50 til 60 jöklar sem lifðu ekki af fyrstu tvo ára­tugi þess­arar aldar. Þetta eru allt smá­jöklar. Nema Ok, hann hvarf mjög hratt.“

Snæ­fells­jök­ull óðum að hverfa
Um síð­ast­liðna páska var vetr­ar­af­koma í Snæ­fellsjökli mæld í fyrsta sinn. Kom fram í færslu á Veð­ur­stofu Íslands að jök­ull­inn hafi rýrnað mjög í hlýn­andi lofts­lagi síð­ustu ára­tuga og er flat­ar­mál hans nú minna en 10 fer­kíló­metrar, en var um 22 fer­kíló­metrar árið 2010. Jök­ull­inn er að jafn­aði aðeins um 30 metra þykkur og því lík­legt að hann verði að mestu horf­inn um miðja þessa öld. Sú spá er gerð út frá þeim for­sendum að hita­stigið hækki um 2 gráður á þess­ari öld en sjálfur telur Oddur að hlýn­unin verði hrað­ari og að jök­ull­inn hverfi jafn­vel fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð