Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Milljarðamæringur og vinur forseta sagður hafa misnotað tugi ólögráða stúlkna

Millj­arða­mær­ing­ur­inn Jeffrey Epstein verður leiddur fyrir dóm­ara í New York í dag. Hann er grun­aður um að hafa starf­rækt umfangs­mik­inn kyn­lífs­hring og mis­notað tugi stúlkna undir lög­aldri, allt niður í 14 ára gam­alar. Núver­andi og fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­setar tengj­ast Epstein sem og með­limur bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar.

Milljarðamæringur og vinur forseta sagður hafa misnotað tugi ólögráða stúlkna
Donald Trump og Jeffrey Epstein árið 2000. Lengst til hægri er Ghislaine Maxwell sem talið er að hafi aðstoðað Epstein við að narra ólög­ráða stúlkur.

Epstein var hand­tek­inn í einka­þotu sinni á Tet­er­boro flug­velli í New Jersey um helg­ina. Í grunn­inn snú­ast ákærur á hendur honum um að hann hafi komið upp neti aðila sem urðu honum úti um ungar stúlkur sem hann svo mis­not­aði, bæði á heim­ili sínu í New York og villu í Palm Beach í Flórída. Samkvæmt Miami Herald eru fórn­ar­lömb Epstein að minnsta kosti 60 tals­ins en New York Times segir að þau geti skip hund­ruðum. Verði hann fundin sekur á hinn 66 ára millj­arða­mær­ingur yfir höfði sér allt að 45 ára fang­elsi.

Málið má rekja aftur til Flórída í byrjun þess­arar aldar. Epstein var þá ákærður fyrir sömu hluti og nú en því máli lauk með leyni­legu sam­komu­lagi við sak­sókn­ara í Flórída. Var hann dæmdur í eins árs fang­elsi en það var í raun aðeins til mála­mynda því hann fékk að yfir­gefa fang­elsið 12 tíma á dag, sex daga vik­unnar. Fórn­ar­lömb Epsteins og fjöl­skyldur þeirra fréttu ekki af sam­komu­lag­inu fyrr en eftir að dóm­ari hafði sam­þykkt það. Málið var tekið upp að nýju í febr­úar eftir að dóm­ari úrskurð­aði að sam­komu­lagið hefði verið ólög­mætt vegna þessa.

Í lög­fræð­ingateymi Epsteins á þessum tíma voru nokkrir af þekkt­ustu lög­mönnum Banda­ríkj­anna, svo sem Alan Dershowitz pró­fessor við Harvard háskóla og Kenneth Starr sem er hvað þekkt­astur fyrir rann­sókn­ina á hendur Bill Clinton í Monicu Lewinsky mál­inu.

Sjálfur er Bill Clinton tengdur Epstein, því New York Times greinir frá því að Clinton hafi marg­sinnis fengið afnot af einka­þotu Epsteins. Andrés prins, her­togi af York, er einnig góður vinur Epsteins og þá hefur verið bent á tengsl milli Donalds Trump og Epsteins, þótt sá fyrr­nefni hafi reynt að hreinsa hendur sínar af honum. Þannig mun Donald Trump hafa sagt að Epstein væri frá­bær náungi. „Það er mjög gaman að umgang­ast hann. Það er sagt að hann kunni að meta fal­legar konur jafn mikið og ég, og margar þeirra eru í yngri kant­inum,“ er haft eftir Trump í New York Magazine árið 2002.

Það vekur svo upp enn frek­ari spurn­ingar að Donald Trump skip­aði Alex­ander Acosta, einn þeirra sak­sókn­ara sem komu að sam­komu­lag­inu við Epstein í Flórída, sem vinnu­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn sína. Talsmenn for­set­ans hafa þó hafnað öllum tengslum for­set­ans við Epstein og meðal ann­ars bent á að honum hafi verið mein­aður aðgangur að Mar-a-Lago klúbbi for­set­ans eftir að hann áreitti ólög­ráða stúlku þar. Þó er vitað að Trump hafi í að minnsta kosti eitt skipti ferð­ast með einka­þotu Epsteins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð