Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Nú er mál að linni“

Und­an­farin ár hafa deilur um ákvarð­anir Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins verið nokkuð áber­andi í opin­berri umræðu, einkum þá þegar hags­muna­sam­tök atvinnu­rek­enda og for­stjórar fyr­ir­tækja hafa opin­ber­lega gagn­rýnt Sam­keppn­is­eft­ir­litið fyrir ákvarð­anir, ýmist um sektir vegna brota á sam­keppn­is­lögum, s.s. sam­ráð eða mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu, eða stöðvun á sam­runa.

„Nú er mál að linni“
Halldór Benjamín Þor­bergs­son.

Einn þeirra sem hefur gagn­rýnt eft­ir­litið veru­lega er Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Í grein sem hann birti á vef Samtaka atvinnu­lífs­ins í fyrra sagði hann að nú væri hrein­lega nóg komið. Ekki væri hægt að búa við sam­keppn­is­lög­gjöf­ina eins og hún væri núna og ræddi hann þar sér­stak­lega um að nauð­syn­legt væri að færa lögin í það horf í þeim væri tekið til­lit til alþjóð­legrar þró­unar.

„Nú er mál að linni. Það er orðið nauð­syn­legt að bæta fjöl­margt í sam­keppn­is­lögum og fram­kvæmd þeirra. Stjórn­mála­menn geta ekki forð­ast það lengur að ræða sam­keppn­is­mál efn­is­lega. Það er búið að beina því til ráða­manna í mörg ár að skerpa þurfi á lögum og færa fram­kvæmd­ina nær því sem ger­ist í öðrum löndum á Evrópska efna­hags­svæð­inu. Búi íslensk fyr­ir­tæki við verra starfs­um­hverfi að þessu leyti er sam­keppn­is­hæfni þeirra lak­ari. Allir lands­menn tapa á því.

„Stjórn­mála­menn geta ekki forð­ast það lengur að ræða sam­keppn­is­mál efn­is­lega.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið á ekki að stýra því hvernig íslenskt við­skipta­líf er upp­byggt. Spurn­ingar hljóta að vakna um það hversu trú­verðug ofan­greind ummæli for­stjór­ans eru. Að Sam­keppn­is­yf­ir­litið hafi ekki fundið tíma til að kom­ast að nið­ur­stöðu um að brot hafi verið framin, ef það telur sig hafa fyrir því sann­anir. Svari hver fyrir sig en það er ekki laust við að við­teng­ing­ar­vísan rifj­ist upp: Efa sé og efa mundi – átján rófur á einum hundi. Efa mundi og efa sé – átján dindlar á einu fé,“ sagði Halldór Benjamín meðal ann­ars.

Meiri samkeppni – ekki minni

Fjörutíu hag­fræð­ingar innan háskóla í Evrópu, þar á meðal Christos Genakos við Cambridge-háskóla, skrif­uðu á dög­unum sam­eig­in­lega grein þar sem minnt var á mik­il­vægi sam­keppn­innar, ekki síst á tímum hins alþjóða­vædda heims þar sem landamæra­leysi ein­kennir við­skipti.

Christos Genakos við Cambridge-háskóla.

Í grein­inni eru færð rök fyrir því, að nú sé mik­il­vægt að stíga skref til að efla sam­keppni en ekki draga úr henni, t.d. með því að sam­þykkja sam­runa og sífellt færri risa á ákveðnum sviðum.

Er sú rök­semd sögð veik­burða í grein­inni og er frekar litið til þess að þau fyr­ir­tæki sem nái fót­festu í oft harðri sam­keppni séu lík­legri til að vaxa og dafna á heil­brigðan hátt – almenn­ingi til heilla. Er sam­runi Siemens og Alstom nefndur sem dæmi um sam­runa sem mögu­lega geti leitt til meiri hagn­aðar fyrir hlut­hafa en hann geti líka leitt til hærra verðs fyrir neyt­endur og einnig erf­ið­ari inn­göngu fyrir ný fyr­ir­tæki, þar sem þau ná ekki að þróa sínar vörur og efla þær vegna yfir­burða­stöðu ris­ans sem hefði orðið til.

Er meðal ann­ars sagt að það sé ekki æski­legt að búa til fáa evr­ópska risa, á ákveðnum sviðum. Frekar sé æski­legt að standa vörð um sam­keppn­ina og hugsa um mik­il­vægi minni fyr­ir­tækja líka, sem séu oftar en ekki að vinna í vöru­þróun og nýsköpun sem stærri fyr­ir­tækin þurfi að keppa við. Með því að búa til evr­ópska risa þá sé hættan á því að það dragi tenn­urnar úr nýsköpun, og þar geta þau ríki sem hafa átt erf­ið­ast upp­dráttar af ýmsum ástæðum – meðal ann­ars þau sem eru ein­angruð, t.d. Ísland – lent í því að upp­lifa fábrotn­ari tæki­færi til vaxtar og vöru­þró­unar, fyrir inn­lend fyr­ir­tæki.

„Evrópa þarf fleiri skil­virk, sam­keppn­is­hæf og nýsköp­un­ar­drifin fyr­ir­tæki. Með því að heim­ila sam­runa og búa til fáa evr­ópska risa, þá yrði unnið gegn því og farið í öfuga átt,“ segir í lokorðum hag­fræð­ing­ana.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á vef Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ