Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ragnar um ritstjóra Fréttablaðsins: „Þarf ekki að koma neinum á óvart að hann ráðist að minni persónu“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR segir að það hefði komið á óvart ef Davíð Stef­ans­son rit­stjóri Frétta­blaðs­ins hefði ekki gagn­rýnt sig í nýlegum leið­ara, með hlið­sjón af sögu Davíðs og Helga Magn­ús­sonar, eins eig­enda blaðs­ins.

Ragnar um ritstjóra Fréttablaðsins: „Þarf ekki að koma neinum á óvart að hann ráðist að minni persónu“

Það hefur gustað hressi­lega um Ragnar Þór Ing­ólfs­son síðan hann tók við emb­ætti for­manns VR fyrir tveimur árum. Hann hefur verið kall­aður öllum illum nöfnum, ásak­aður um ein­ræð­istil­burði og ofstæki og að setja per­sónu­leg mark­mið ofar hags­munum félags­manna. Síðasta dæmið um þetta er leið­ari nýráð­ins rit­stjóra Frétta­blaðs­ins, Davíðs Stef­áns­sonar, þann 1. júlí síð­ast­lið­inn þar sem ráð­ist er harka­lega að Ragnari fyrir þá ákvörðun full­trúa­ráðs VR að skipta út öllum full­trúum VR í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna í kjöl­far þeirrar ákvörð­unar stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins að hækka breyti­lega vexti. Ragnar svar­aði þessum ásök­unum í langri færslu á Facebook þar sem hann sagði meðal ann­ars að með þessum leið­ara hefði Davíð stimplað sig ræki­lega inn sem lobbí­ista sem allir sjá í gegnum. Hvað á hann við með þeim orðum?

„Davíð var ráð­inn rit­stjóri Frétta­blaðs­ins eftir að Helgi Magn­ús­son fjár­festir keypti helm­ings­hlut í blað­inu,“ segir Ragnar og heldur áfram. „Helgi er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna og einn af þeim sem stóð fyrir því að sjóð­ur­inn lagði háar upp­hæðir í Silicor Mater­i­als í gegnum félagið Sunnu­velli sem áður­nefndur Davíð Stef­áns­son stýrði. Stefnan var að reisa kís­il­verk­smiðju í Hval­firði sem svo aldrei varð og millj­arðar hafa tap­ast án þess að skóflu væri stungið í jörðu. Þetta er eitt ótelj­andi dæma um skað­væn­leg áhrif ítaka atvinnu­rek­anda í líf­eyr­is­sjóð­unum og það eru þau ítök sem Davíð og fleiri lobbí­istar atvinnu­rek­anda eru ráðnir til að standa vörð um. Það þarf því ekki að koma neinum á óvart að hann ráð­ist að minni per­sónu til að gera bar­áttu VR fyrir því að losa um þessi ítök tor­tryggi­lega. Það hefði komið meira á óvart ef hann hefði ekki gert það.“

„Þetta er eitt ótelj­andi dæma um skað­væn­leg áhrif ítaka atvinnu­rek­anda í líf­eyr­is­sjóð­unum og það eru þau ítök sem Davíð og fleiri lobbí­istar atvinnu­rek­anda eru ráðnir til að standa vörð um.“

Út í hött að tala um strengja­brúður
Davíð er ekki sá eini sem hefur gagn­rýnt þá ákvörðun full­trúa­ráðs VR að skipta full­trúum í stjórn LIVE út. Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, segir ákvörðun VR um að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna félags­ins í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna vera grafal­var­legt mál. Fjár­mála­eft­ir­litið hljóti að kanna lög­mæti inn­grips VR. Þá segir Helgi Vífill Júl­í­us­son, blaða­maður Mark­að­ar­ins, það hættu­legt að Ragnar Þór og sam­starfs­menn hans geti skipt út hálfri stjórn líf­eyr­is­sjóðs þegar þeim hentar. Hvernig þykir Ragnari að sitja undir þessum full­yrð­ingum?

„Þessar full­yrð­ingar eru auð­vitað af sama toga og leið­ari Davíðs,“ segir Ragnar. „Ítökum atvinnu­rek­anda í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins er ógnað og þá stökkva lobbí­istar þeirra til varnar. Þetta er ekki svara­vert, það er ekk­ert í lögum sem bannar full­trúa­ráð­inu að aft­ur­kalla umboð full­trú­anna í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins og lög og reglur VR styðja full­kom­lega við okkur í þessu máli, að halda því fram að tutt­ugu af þeim tutt­ugu og fjórum full­trúum sem mættu á fund full­trúa­ráðs­ins þar sem þessi ákvörðun var tekin séu strengja­brúður mínar er auð­vitað gjör­sam­lega út í hött. Það sér hvert manns­barn. Þetta eru varn­ar­brögð þess sem telur sér ógnað.“

„Þetta bitnar auð­vitað á fjöl­skyld­unni“
Það hlýtur samt að vera erfitt að sitja undir þessum árásum, hefur þetta ekki gengið nærri þér?
„Ég tek þetta ekki per­sónu­lega, fjarri því,“ segir Ragnar. „Ég vissi það þegar ég gaf kost á mér í þetta starf að því fylgdi mikið áreiti og alls konar per­sónu­legar sví­virð­ingar. Ég hefði ekki tekið þennan slag ef ég hefði ekki treyst mér til að taka því. En þetta reynir vissu­lega stundum á, ég neita því ekki. Aðallega það að áreitið tekur aldrei enda. Maður er í vinn­unni allan sól­ar­hring­inn. Ég er kannski í helg­ar­ferð í sum­ar­bú­stað með fjöl­skyld­unni þegar eitt­hvert mál sem fjöl­miðlar hafa áhuga á kemur upp og það endar með því að ég er í sím­anum að svara spurn­ingum blaða­manna meiri­hluta ferð­ar­innar. Og ef ég er ekki í sím­anum er ég að hugsa um eitt­hvað sem þarf að takast á við og ekki almenni­lega til staðar fyrir börnin mín þótt ég sé á staðnum. Það þykir mér leið­in­legt.“

„Ég vissi það þegar ég gaf kost á mér í þetta starf að því fylgdi mikið áreiti og alls konar per­sónu­legar sví­virð­ingar. Ég hefði ekki tekið þennan slag ef ég hefði ekki treyst mér til að taka því.“

Ragnar er kvæntur Guð­björgu Ingunni Magn­ús­dóttur og fimm barna faðir. Hefur þetta áreiti ekk­ert bitnað á fjöl­skyld­unni? Hafa börnin til dæmis orðið fyrir áreiti vegna fram­göngu föður þeirra?
„Þetta bitnar auð­vitað á fjöl­skyld­unni á þann hátt sem ég lýsti hér að framan,“ segir Ragnar. „Ég er lítið til staðar. En þau hafa ekki orðið fyrir neinu aðkasti, síður en svo. Við finnum miklu meira fyrir því að fólk er ánægt með það sem við í VR erum að gera og þakk­látt fyrir það að við tökum slag­inn. Það er mik­ill með­byr með starfi okkar og ég finn fyrir gríð­ar­lega jákvæðum straumum frá félags­mönnum í VR og öðrum laun­þegum. Það gerir þetta allt saman þess virði að standa í því.“

Ragnar Þór eru í ítar­legu við­tali hér.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð