Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fordæmir starfsmannaleigur og segir þær „eitt af ömurlegum börnum óheftrar gróðadýrkunar”

„ Starfs­manna­leigur eru eitt af ömur­legum börnum hins ægi­lega „ frelsis ” og óheftrar gróða­dýrk­unar sem fengið hafa að unga út afkvæmum um alla ver­öld,” skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, á Facebook. Tilefnið er lög­sókn gegn Eldum rétt og Menn í vinnu vegna nauð­ung­ar­vinnu.

Fordæmir starfsmannaleigur og segir þær „eitt af ömurlegum börnum óheftrar gróðadýrkunar”
| Mynd: / Hallur Karlsson

„Alþjóða­væð­ing á for­sendum kap­ít­alista gerir það að verkum að alltaf er hægt að sækja vinnu­afl á en meiri afslátt­ar­verði en boðið er upp á í heima­land­inu,” skrifar Sólveig og bætir við; „Og við útsölu­verðið bæt­ist svo við enn meiri „afsláttur“ fólg­inn í því að hægt er að koma klónum í fólk sem talar ekki tungu­mál lands­ins sem það er flutt til og hefur oft mjög tak­mark­aða eða jafn­vel enga ensku-kunn­áttu, og nákvæm­lega enga þekk­ingu á þeim lögum og reglum sem gilda um kjör og aðbúnað vinnu­aflsins.

Það er eru mörg vanda­mál sem snúa að okkur sem vinnum vinn­una og höfum ekk­ert til að selja nema eigin vinnu­afl, vanda­mál útbúin af sér­stöku skeyt­ing­ar­leysi af þeim sem öllu ráða, eigna­stétt­inni og margt sem við þurfum að berj­ast fyrir að breyt­ist í sam­fé­lag­inu. Og það að fyr­ir­tæki eins og Eldum rétt geti eins og ekk­ert séð leitað til algjör­lega for­herts fólks eins og Manna í vinnu er að mínu mati eitt af þeim vanda­málum, vanda­mál sem við getum staðið saman í að upp­ræta.”

Starfsmannaleigur grafa undan kaupi á íslenskum vinnumarkaði

Sólveig segir Eflingu telja starfs­manna­leigur vera ein­stak­lega óæski­legar. „Þær fela í sér frá­vik frá þeirri meg­in­reglu að starfs­maður sé í beinu ráðn­ing­ar­sam­bandi við atvinnu­rek­anda, og setja á milli þeirra þriðja aðila sem tekur skerf af laun­unum í sinn vasa. Því miður hefur þetta fyr­ir­komu­lag verið leyft í íslenskum og evr­ópskum lögum til að auð­velda atvinnu­rek­endum að sækja sér vinnu­afl út fyrir land­stein­ana þegar eng­inn sam­þykkir boð þeirra á Íslandi.

Starfs­manna­leigur hafa líka þau áhrif að halda verði á vinnu­afli niðri og veikja með því samn­ings­stöðu þess verka­fólks sem fyrir er í land­inu; afhverju ættu eig­endur atvinnu­tækj­anna að borga góð laun fyrir unna vinnu ef þeir hafa ávallt aðgang að höndum sem tekið geta að sér verkin fyrir léleg laun? Og í raun eru starfs­manna­leigur upp­spretta ofur-arð­ráns; þriðji aðili kemst í stóran hluta af því sem mann­eskjan nær að vinna sér inn.”

Hún bætir við: „Þetta hefur opnað á enn eina leið til að grafa undan kaupi og kjörum á íslenskum vinnu­mark­aði. Fólk er gagn­gert sótt frá fátækum svæðum sem alþjóða­væð­ingin hefur leikið grátt, og þar sem ensku­kunn­átta er mjög tak­mörkuð. Engar kröfur eru gerðar á fyr­ir­tæki að kynna starfs­fólki rétt­indi sín.”

Lögsóknin þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur

Efling til­kynnti um lög­sókn gegn Eldum rétt og Menn í vinnu í gær: „Eldum rétt og Mönnum í vinnu, ásamt for­svars­mönnum fyr­ir­tækj­anna, hefur verið stefnt fyrir með­ferð þeirra á fjórum rúm­enskum verka­mönnum sem unnu hjá þeim í vetur,” segir í til­kynn­ing­unni. „Eldum rétt keypti vinnu­afl hjá starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu í jan­úar, og bar með því ábyrgð á að kjör verka­mann­anna og aðstæður væru sóma­sam­legar sam­kvæmt lögum um keðju­á­byrgð frá árinu 2018.

„Lögsókn gegn fyr­ir­tæk­inu og fram­kvæmda­stjóra þess, ásamt Mönnum í vinnu og for­svars­mönnum starfs­manna­leig­unnar, hefur nú verið þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.”

Ólöglegur launafjárdráttur og nauðungarvinna

Dóms­málið snýst meðal ann­ars um ólög­legan launa­fjár­drátt. „Alla þá fjöl­breyttu mínusa sem settir voru á launa­seðl­ana,” skrifar Sólveig. „Einn af þeim var til dæmis fyrir World Class korti (sem margir starfs­menn könn­uð­ust ekk­ert við að hafa notað). Þeim var sagt að kortið fengju þeir á sér­stökum afslætti.” Frá­drátt­ur­inn á launa­seðl­inum var hins vegar hærri en áskrift­ar­gjaldið á verð­lista World Class.

„Hins vegar snýst það um veiga­meira atriði, sem er sú van­virð­andi með­ferð og þving­unar- eða nauð­ung­ar­vinna sem verka­menn­irnir sættu. Í ljósi þeirra aðstæðna sem þeir bjuggu við, og þess valds sem stjórn­endur Menn í vinnu ehf höfðu yfir þeim, voru þeir „háðir boð­valdi og [settir] undir yfir­burð­ar­stöðu“ fyr­ir­tæk­is­ins, líkt og segir í stefn­unni. Þessi staða blasir við í hvert skipti sem íslensk fyr­ir­tæki sækja sér fólk erlendis frá án þess að upp­lýsa þau um rétt­indi sín – en það er ekki á hverjum degi sem þessi yfir­burða­staða er nýtt af sam­bæri­legri grimmd.”

https://gamla.mannlif.is/4270

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð