Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hefur horfst í augu við dauðann oftar en einu sinni

Tón­list­ar­mað­ur­inn Einar Ágúst Víðisson byrj­aði í kringum sextán ára ald­ur­inn að vinna við tón­list og segir það of langt mál að telja upp alla þá snill­inga sem hann hafi unnið með í gegnum tíð­ina. Hann vinnur nú að nýrri tón­list og seg­ist vera marg­breyti­legur karakter með margar hliðar sem þvælist oft fyrir hver annarri. Einar Ágúst er undir smá­sjánni að þessu sinni.

Fullt nafn: Einar Ágúst Víðisson
Aldur: 46
Starfs­heiti: Tón­list­ar­maður. Öryrki.
Áhugamál: Tónlist, útvarp, sjón­varp. Það væri auð­vitað þjóð­ráð að finna sér áhuga­mál sem lýtur ekki að vinn­unni en ef ég fæ áhuga fyrir ein­hverju fer ég að vinna við það á ein­hvern hátt.
Á döf­inni: Ég er að vinna nýja músík undir eigin nafni og með Skímó.
Hvað færðu þér í morg­un­mat? Kaffi. Mér leið­ist að borða og þurfa að hafa fyrir því. Ég kann ekk­ert að elda og þurfti að gúggla hversu lengi ætti að sjóða egg þegar ég flutti tíma­bundið austur á Norð­fjörð fyrir nokkrum árum.
Hvað óttastu mest? Að vera ekki í núinu. Annars er ég hákarla­fæl­inn og ætli ég ótt­ist ekki ótt­ann sjálfan hvað mest. Ég leit­ast eftir æðru­leysi. Óttalaus er æðru­laus maður eins og segir og ég hef sem betur fer orðið svo lán­samur að finna, læra og nota hluti og nokkrar aðferðir sem gagn­ast þar hvað best en til að vera alveg heið­ar­legur þá er ég oft þjak­aður af gallsvörtu þung­lyndi og kvíða sem hafa hrjáð mig frá því ég man eftir mér sem ég einmitt verð að vera vak­andi gagn­vart og eiga verk­færi við.

„Sam­fé­lagið býður bara ekki upp á marga raun­veru­lega, árang­urs­ríka val­kosti við því sem hrjáir fólk eins og mig.“

Býrðu yfir leyndum hæfi­leika? Það held ég ekki. Ég held það sé allt upp á borðum bara. Ef ég færi að reyna ein­hverjar upp­taln­ingar á sigrum eða hæfi­leikum eins og einn kollegi minn er svo dug­legur við að minna okkur á opin­ber­lega mætti kannski finna eitt­hvað sem ég hef gleymt.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Að vakna í morgun! Annars hef ég horfst í augu við dauð­ann oftar en einu sinni. Það hefur þá helst verið í gegnum ógæf­una hér í the old days, og þó svo ég hafi leitað mér „lækn­inga“ með ólyfjan var það klár­lega verið mesta áhættan. Sam­fé­lagið býður bara ekki upp á marga raun­veru­lega, árang­urs­ríka val­kosti við því sem hrjáir fólk eins og mig.
Hver væri tit­ill­inn á ævi­sög­unni þinni? „Iss það er ekki neitt! Einar frændi minn …“
Hver myndi leika þig í bíó­mynd­inni? Ef ég færi yfir móð­una miklu núna, Björgvin Franz. Ási Goði, elsti gutt­inn minn, færi vel með ung­lings­árin, 17 ára gang­andi eft­ir­mynd föður síns. Hann hefur sem betur fer ein­stakt lund­ar­far móður sinnar ofan á lík­indin með föður sínum.

„Ég er eilífð­ar­ung­lingur með blæti fyrir teikni­myndum fyrir full­orðna.“

Hvaða þættir eru í upp­á­haldi hjá þér þessa stund­ina? Ég er nýbú­inn með Altered Carbon. Er að fikra mig áfram með The Outsider. Annars hefur mér sýnst vera hlé á mörgum af þeim ser­íum sem hafa farið hvað hæst síð­ustu árin. Ég er eilífð­ar­ung­lingur með blæti fyrir teikni­myndum fyrir full­orðna: Family guy, American Dad, South Park, Duncanville og hæst trónir Brickleberry sem er rakin djöf­uls­ins snilld sem fer langt út fyrir þæg­ind­ara­mma flestra.
Hvað get­urðu sjaldn­ast stað­ist? Freist­ingar og þetta klass­íska, sæl­gæti.
Hvaða smá­forrit er ómissandi? Face, Snap, Insta, Twitter, tölvu­póstur, Messen­ger, OnSong, Nova, Voice memos. Ég er tölvunörður svo ég gæti haldið lengi áfram.
Hvaða tjá­merki (emoji) not­arðu oft­ast? Smiley sem er með svona lokuð bros­andi augun og munn­inn. Ekki org­inal­inn. Svo nota ég „high-five“ táknið mikið en vil þó frekar túlka það þá eins og við mörg sem héldum upp­haf­lega að þetta væri svona „biðja“ tákn eða þá einnig eins og maður væri að leggja saman hendur í þakk­læt­is­skyni að aust­ur­lenskum sið. Þannig líður mér alltaf með það tákn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð