Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lýsa áhyggjum af ástandinu innan Slökkviliðs Fjarðabyggðar

Lýsa áhyggjum af ástandinu innan Slökkviliðs Fjarðabyggðar

„Það ríkir mikið aga­leysi innan slökkvi­liðs­ins, bak­tal er gríð­ar­legt og það er illa og allt of oft of seint tekið á málum sem upp koma,“ segir Gísli Þór Briem, fyrr­ver­andi liðs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar í fram­haldi af umfjöllun Mannlífs um kvörtun vegna ein­eltis innan slökkvi­liðs­ins. Hann er ekki einn um þá full­yrð­ingu, það virð­ist vera áhyggju­efni margra íbúa sveit­ar­fé­lags­ins að starfs­manna­mál slökkvi­liðs­ins séu í ólestri og Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir, fyrr­ver­andi liðs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, er langt því frá sú eina sem lagt hefur fram kvörtun til vinnu­eft­ir­lits­ins vegna slíkra mála.

Gísli Briem.

Viðtal Mannlífs við Andreu Björk í síð­asta tölu­blaði hefur vakið mikil við­brögð. Margir hafa haft sam­band við rit­stjórn­ina og þakkað fyrir umfjöll­un­ina, staðan innan slökkvi­liðs­ins hafi lengi verið íbúum Fjarða­byggðar áhyggju­efni. Fyrr­ver­andi liðs­maður slökkvi­liðs­ins segir ein­elti og bak­tal grass­era á vinnu­staðnum og þrátt fyrir margar kvart­anir sé ekk­ert gert í mál­inu.

„Ég var sam­tíða Andreu Björk í slökkvi­lið­inu í nokkrar vikur, hún tók við starf­inu mínu þegar ég hætti sum­arið 2017, en saga hennar kom mér ekk­ert á óvart,“ segir Gísli Þór Briem, fyrr­ver­andi liðs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, í sam­tali við Mannlíf. „Það ríkir mikið aga­leysi innan slökkvi­liðs­ins, bak­tal er gríð­ar­legt og það er illa og allt of oft of seint tekið á málum sem upp koma, þau eru látin grass­era afskipta­laust og valda að lokum miklum sær­indum fyrir þá sem í þeim lenda. Slökkvi­liðs­stjóri hefur sagt að hann vilji að málin leys­ist af sjálfs­dáðum. Fleiri en Andrea hafa hrak­ist úr vinn­unni hjá slökkvi­lið­inu vegna ein­eltis en það virð­ist ekki breyta neinu.“

Sagt að þau væru að misskilja hlutina

Andrea Björk lýsti því í við­tal­inu að slökkvi­liðs­stjór­inn, Guð­mundur Helgi Sig­fús­son, hefði kallað hana á sinn fund til að ræða áreitið sem hún hefði kvartað undan og sagst ætla að gera eitt­hvað í mál­inu en ekk­ert hafi gerst og hann hafi síðan ekk­ert kann­ast við það sam­tal þegar boðað var til sátta­fundar milli hennar og þess aðila sem harð­ast gekk fram í áreit­inu. Gísli segir slíkt ekki koma sér á óvart.

„Það virt­ist ekki vera nein ein regla sem farið var eftir, heldur nokk­urs konar henti­stefna í hvaða far­veg málin fóru. Munn­legir samn­ingar héldu ekki og fljót­lega fór að bera á því að ekki var alltaf sagt satt og oft talað um að við „mis­skildum“ hitt og þetta,“ segir Gísli.

„Þetta ágæta fólk skuldar að mínu mati mörgum afsök­un­ar­beiðni.“

„Mér finnst aðal­vanda­málið vera vöntun á afger­andi stjórn­anda. Þegar þetta atvinnu­lið var stofnað á sínum tíma var mik­ill metn­aður í öllum til þess að búa til gott og fag­legt slökkvi­lið sem ég tel að það sé, það er gott mennt­un­ar­stig innan liðs­ins og það fær mikið lof í sam­fé­lag­inu fyrir störf sín út á við. Það vant­aði hins vegar töl­vert á sam­stöðu innan liðs­heild­ar­innar, þótt flestar vaktir gengju vel.“

Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir, fyrr­ver­andi liðs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, er langt því frá sú eina sem lagt hefur fram kvörtun til vinnu­eft­ir­lits­ins vegna ein­eltis innan liðs­ins. Mynd / Auðunn Níelsson Mynd / Auðunn Níelsso

Stjórnvöld Fjarðabyggðar skulda mörgum afsökunarbeiðni

Gísli segir ríg milli hátt­settra starfs­manna setja mark sitt á and­rúms­loftið á slökkvi­stöð­inni.„Þegar liðið var stofnað komu að stjórnun þess þrír yfir­menn, það er að segja slökkvi­liðs­stjóri, aðstoð­ar­slökkvi­liðs­stjóri og elda­varna­eft­ir­lits­maður,“ útskýrir hann. Tveir þeir síð­ast­nefndu höfðu verið slökkvi­liðs­stjórar með tölu­verða reynslu, nýi slökkvi­liðs­stjór­inn hins vegar var tækni­fræð­ingur starf­andi hjá sveit­ar­fé­lag­inu en hafði enga menntun slökkvi­liðs­manns. Hann hafði komið nálægt sjúkra­flutn­ingum og hafði ein­hverja reynslu af rekstri, en ég ætla ekki lengra út í þá sálma. Við fórum fljót­lega að verða varir við að ein­hver tog­streita var á milli þeirra þriggja, alla vega til að byrja með, og fengum svo líka að heyra það frá þeim er lengra leið og þeir töl­uðu hver um annan á nei­kvæðan hátt. Þetta varð, að mínu mati, til þess að menn sýndu þeim ekki nægi­lega virð­ingu í fyrstu og einnig vant­aði fasta sjórnun á hóp­inn. Ég benti oft á að það vant­aði skýr­ari stjórn, hvort sem mönnum lík­aði það betur eða verr. Það voru til dæmis aldrei skip­aðir neinir varð­stjórar á vakt­irnar þannig að það var aldrei skýrt hver réði og hverjum bæri að hlýða í útköllum. Sem var mjög baga­legt. Ég tel að með því að skipa varð­stjóra hefði mátt kom­ast hjá mjög mörgum leið­indum sem hafa ekki bara kostað sveit­ar­fé­lagið mikla pen­inga, heldur líka sært þá aðila sem þegar hafa hrökkl­ast úr starfi eða verið sagt upp. Þess má að lokum geta að sum þess­ara mála end­uðu inni á borði sveit­ar­stjórnar og eins var reynt að hafa sam­band við kjörna full­trúa á þeim tíma sem ég var þarna, en án árang­urs. Svo virð­ist sem stjórn­sýsl­unni hafi lítið fund­ist til um þetta eða ekki viljað vekja athygli í sam­fé­lag­inu og ákveðið að láta sem ekk­ert væri að og styðja sinn mann í einu og öllu. Þetta ágæta fólk skuldar að mínu mati mörgum afsök­un­ar­beiðni.“

Trúnaðarmaður vinnustaðarins meðal gerenda

Auk fjölda tölvu­pósta og sím­tala frá fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­mönnum Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar og almennum íbúum sveit­ar­fé­lags­ins, þar sem lýst er miklum áhyggjum af ástand­inu innan slökkvi­liðs­ins og hvernig for­ystu­fólk sveit­ar­fé­lags­ins taki á þeim málum, hefur Mannlíf undir höndum afrit af kvört­unum sem starfs­menn Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar hafa sent Vinnu­eft­ir­lit­inu og Lands­sam­bandi slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna. Þar koma fram nokkurn veg­inn nákvæm­lega sömu umkvört­un­ar­efni og Andrea Björk sagði frá í við­tal­inu við Mannlíf og byggði sína kvörtun á, en í við­tal­inu sagði hún meðal ann­ars:

Viðtal Mannlífs við Andreu Björk í síð­asta tölu­blaði hefur vakið mikil við­brögð. Margir hafa haft sam­band við rit­stjórn­ina og þakkað fyrir umfjöll­un­ina, staðan innan slökkvi­liðs­ins hafi lengi verið íbúum Fjarða­byggðar áhyggju­efni.

„Það var alveg sama hvað ég gerði, það var mikið grín­ast með það á stöð­inni hvað ég væri van­hæf. Ég var sökuð um að reyna að koma mér undan erf­iðum æfingum í nám­inu með því að velja mér félaga sem væri sterkur svo ég þyrfti ekk­ert að gera og svo fram­vegis. Ég var meira að segja sökuð um að hafa tábrotið mig vilj­andi í lík­ams­rækt til að sleppa við erf­iðu æfing­arnar. Það gekk eig­in­lega bara allt út á það hjá þessum aðilum að finna eitt­hvað á mig. Ég til dæmis óskaði eftir sál­gæslu eftir mjög erfitt útkall og það þótti afskap­lega fyndið og mik­ill aum­ingja­skapur.“

Í einni skýrslu þar sem slökkvi­liðs­maður í Slökkvi­liði Fjarða­byggðar skil­greinir umkvört­un­ar­efni sín vegna ein­eltis fyrir Vinnu­eft­ir­lit­inu og Lands­sam­bandi slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna segir:

Hringt á fyrr­ver­andi vinnu­stað og fengið upp­lýs­ingar um hans getu og hvaða við­ur­nefni hann gengi undir. Gert mikið grín að við­ur­nefni.
Baktal að öllu leyti. Reynt að finna eitt­hvað sem þol­andi gæti hafa gert vit­laust og hann tek­inn fyrir í baktali. Honum er kennt um allt sem er ekki gert rétt, ger­endur láta aðra starfs­menn vita að þol­andi er óhæfur.

Andrea Björk lýsir því einnig hvernig yfir­menn hennar hafi tekið á kvört­unum hennar:

„Ég var búin að senda yfir­manni yfir­manns míns, það er að segja þáver­andi starfs­manna­stjóra Fjarða­byggðar, póst um ástandið og setj­ast á fund með honum og ræða málið. Nátt­úr­lega var öllu fögru lofað og talað um hvað það væri frá­bært að hafa konu í stétt­inni og að hann ætl­aði að gera allt til þess að laga stöð­una. Ég ítrek­aði erindið nokkrum sinnum við starfs­manna­stjóra Fjarða­byggðar en smám saman hætti hann svara og sam­skiptin fjör­uðu út án þess að nokkuð væri gert. Þannig að þetta var bara orðið ókleift fjall sem ég réði ekki við.“

Í kvörtun ann­ars liðs­manns Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar segir:
Ítrek­aðar ábend­ingar og kvart­anir til yfir­manna vegna ein­eltis og baktals sem ger­endur stunda ítrekað. Gert lítið úr ábend­ingum og ekk­ert gert í mál­inu.

Í skýrsl­unni eru ger­endur nafn­greindir og fram kemur að annar þeirra er örygg­is­trún­að­ar­maður á vinnu­staðnum og því ekki unnt að leita til hans sem trún­að­ar­manns til að reyna að leysa málið. Einnig kemur fram að trún­að­ar­maður stétt­ar­fé­lags starfs­manns­ins njóti ekki trausts hans og því engin hjálp í honum heldur. Starfs­menn slökkvi­liðs­ins upp­lifi því engan stuðn­ing innan vinnu­stað­ar­ins og fái ekki lausn sinna mála hjá stjórn­endum í bæj­ar­fé­lag­inu.

Sjá einnig: Flúði slökkvi­liðið vegna áreitis: „Ég óskaði eftir sál­gæslu eftir mjög erfitt útkall og það þótti afskap­lega fyndið og mik­ill aum­ingja­skapur“

Slökkviliðsstjóri hefur ekki tjáð sig um málið

Guð­mundar Helgi Sig­fús­son, slökkvi­liðs­stjóri. Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar:

Mannlíf hafði sam­band við slökkvi­liðs­stjóra Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, Guðmund Helga Sig­fús­son, og leit­aði við­bragða hans vegna máls­ins. Guð­mundur hafði ekki svar­aði erind­inu þegar blaðið fór í prentun.

Hér að neðan er tölvu­póstur sem var sendur á hann:

Sæll aftur Guð­mundur,
við erum með smá­við­bót við það sem fram kom í við­tal­inu við Andreu Björk í blað­inu á föstu­dag­inn. Rætt við fleiri fyrr­ver­andi liðs­menn Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar og vitnað í kvart­anir til Vinnu­eft­ir­lits­ins í áþekkum málum o.s.frv.
Þar kemur fram að ein­elti sé við­var­andi vanda­mál innan slökkvi­liðs­ins og að stjórn­endur liðs­ins og bæj­ar­fé­lags­ins geri lítið til að taka á slíkum málum.
Viltu tjá þig eitt­hvað um þær full­yrð­ingar eða viltu halda þig við fyrra svar um að þér sé ekki heim­ilt að tjá þig um mál ein­stakra starfs­manna?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð