Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hóstaði viljandi í áttina að astmaveikri konu: „Með ólíkindum hvað fólk er agalaust og tillitslaust“

Hóstaði viljandi í áttina að astmaveikri konu: „Með ólíkindum hvað fólk er agalaust og tillitslaust“
Mynd / Unsplash

„Maður hóstaði vilj­andi í átt­ina að mér,“ skrifar Elsa Soffía Jóns­dóttir í færslu á Facebook. Í færsl­unni lýsir hún atviki sem átti sér stað í verslun Krón­unnar í dag.

Elsa, sem er ast­ma­veik, fór í Krónuna fyrr í dag með hanska og and­lits­grímu. Hún seg­ist hafa fundið að fólk horfði á hana með grímuna en að einn maður hafi horft á hana, glott og svo hóstað vilj­andi í átt­ina til hennar. Hún seg­ist vera miður sín vegna fram­komu manns­ins.

„Mæti pari á fer­tugs­aldri, sá glott á mann­inum og er ég er að mæti par­inu hóstar mað­ur­inn í átt­ina að mér og fer að hlæja og konan brosir. Ég varð miður mín og trúði ekki að þetta hafi gerst og reyndi að halda áfram að versla,“ skrifar Elsa í færslu sína.

Hún seg­ist hafa orðið svo sár og reið og svo tekið ákvörðun um að tala við hjónin.

„Ég varð miður mín og trúði ekki að þetta hafi gerst …“

„Fann hjónin við kass­ann og spurði mann­inn hvort hann væri las­inn af því hann hóstaði að mér,“ skrifar Elsa. Hún segir mann­inn hafa svarað neit­andi og sagt þetta hafa verið „smá grín“.

Elsa sagði mann­inum að hún væri með and­lits­grímu vegna þess að hún er ast­ma­veik og spurði hann hvort að hann gerði sér ekki grein fyrir alvar­leika máls­ins.

„Óvirð­ingin er algjör! Hvað er fólk að hugsa í þessu ástandi? Eru margir sem vita ekki hvað er í gangi eða hugsa að þessi veira er ekki að fara neitt með sterka mig…? Það er með ólík­indum hvað fólk er aga­laust og til­lits­laust,“ skrifar Elsa. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist hún vona að þessi skrif hennar veki fólk til umhugs­unar um alvar­leika kór­óna­veirunnar.

Hún bætir við að allir þurfi að vanda sig þegar komið er að afgreiðsluköss­unum í mat­vöru­versl­unum. „Til þess að hægt sé að halda tveggja metra fjar­lægð við kassa í mat­vöru­versl­unum verður starfs­maður á kassa að passa að byrja ekki að stimpla inn vörur fyrir næsta kúnna fyrr en maður er búinn að setja í poka og koma sér frá með sínar vörur. Annars fær maður næsta mann ofan í sig að byrja að pakka sínum vörum,“ bendir Elsa á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð