Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólkið sem syndir undir ísnum

Sölvi Leví og félagar hans í Ice Tribe Iceland stunda það að synda undir ís. Fyrsta ísbaðið var á annan í jólum.

Fólkið sem syndir undir ísnum
||Sölvi Leví Pét­urs­son|DCIM100GOPROG0027914.||DCIM100GOPROG0027919.|DCIM101GOPROGOPR3034.JPG|Synt í átt að ljós­inu

„Þetta er ein besta núvit­unda­ræf­ing sem hægt er að fá,“ segir Sölvi Leví Pét­urs­son, einn þeirra sem stunda af krafti sjó­sund og annað útisund.  Sölvi, sem er 45 ára fyrr­ver­andi sjó­maður, til­heyrir hópi sem ber nafnið Ice Tribe Iceland sem gæti útlagst sem Ísfólk Íslands. Sportið gengur að hluta út á það að synda undir lagn­að­arís. Iðkendur í þessu jað­ar­sporti eru 12 alls. Félags­skap­ur­inn er ungur því fyrsta ferð ísfólks­ins var 26. des­em­ber. Sölvi og félagar láta sér ekki nægja að stunda sund á yfir­borði heldur synda gjarnan kafsund undir ís. Þá sagar fólk göt á ísinn með reglu­bundnu milli­bili. Svo er synt frá vök í vök. Það vekur með mörgum hroll. Fólkið hefur stundað sportið á Hafra­vatni og Seltjörn. Mannlíf mætti á Seltjörn, skammt frá Grinda­vík, frost­kaldan mars­dag og ræddi við Sölva og félaga hans auk þess að prófa en Sölvi segir upp­lifun­ina ein­staka. „Það að synda undir ísnum er eins og að koma inn í annan heim. Þá eykur það á spenn­una að það er ekki hægt að stoppa á miðri leið. Maður verður að synda áfram,“ segir hann.

Sölvi Leví Pét­urs­son

Sölvi segir að allir sem eru við góða heilsu geti stundað þetta sport. „Ég mæli með því að fólk prófi fyrst að mæta á stað­inn með okkur og prófi að fara ofan í vatnið og kíkja aðeins undir ísinn. Í fram­hald­inu getur það síðan reynt að fara stutta vega­lengd undir ís, kannski 2-3 metra,“ segir Sölvi.

Hann segir að hóp­ur­inn við­hafi gríð­ar­legar var­úð­ar­ráð­staf­anir til að tryggja öryggi þeirra sem synda kafsundið. Ljós, fest við göngustaf, er látið síga niður í hol­una sem sund­mað­ur­inn ætlar að koma upp um. Þá er spotti bund­inn um miðju sund­manns­ins.

Synt í átt að ljós­inu

„Fólk syndir svo í átt að ljós­inu. Ef eitt­hvað ber út af drögum við sund­mann­inn til baka í vök­ina þaðan sem lagt var upp. Það hefur aðeins einu sinni gerst. Þann bar af leið og hann hitti ekki vök­ina. Vatnið var gruggugt og hann sá ekki ljósið. En hann var aldrei í hættu. Venju­lega gengur allt að óskum og sund­mað­ur­inn upp­lifir mikla spennu og ánægju,“ segir Sölvi.

Kíkt upp úr vök­inni.
Lagt í hann.
Und­ir­bún­ingur.

Sölvi hefur sjálfur farið lengst 16 metra undir ís. Hann hefur smám saman fikrað sig frá því að fara mjög stuttar leiðir undir ís og upp í þetta.

„Ég byrj­aði í fyrra­sumar að æfa mig í kalda kar­inu í sund­laug­inni í Keflavík. Í fram­hald­inu kynnt­ist ég fólki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem stundar sjó­sund. Ég féll strax fyrir þessu sporti og mætti nán­ast dag­lega. Eitt leiddi af öðru og nú skemmtum við okkur við að synda undir ís. Þetta er frá­bært sport í góðum félags­skap,“ segir Sölvi.

Kulda­legt er það.

Til þess að geta synt í kafi beita Sölvi og félagar ákveð­inni önd­un­ar­tækni sem þeir hafa æft stíft. „Með tækn­inni næ ég að synda í rúmar tvær mín­útur án þess að draga and­ann. Maður kemst langt á þeim tíma,“ segir Sölvi.

Húni Húnfjörð, félagi Sölva, tekur undir með félaga sínum og segir íssundið vera í senn spenn­andi og skemmti­legt. „Fólk getur fundið okkur á Facebook og sett sig í sam­band. Í fram­hald­inu getur það mætt á við­burði og kynnt sér þetta sport,“ segir Húni.

Hress að loknu íssundi.

Myndir / Þröstur Njálsson og fleiri.

Myndband / Sölvi Leví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ