Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Með húmor að vopni

Með húmor að vopni
Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna. .

Svandís Svav­ars­dóttir segir hafa verið mjög krefj­andi að vera heil­brigð­is­ráð­herra und­an­farið miss­eri og fundið mjög fyrir ábyrgð­inni sem á henni hefur hvílt. Hana hafi aldrei órað fyrir því að þurfa glíma við alheims­far­aldur þegar hún sett­ist í ráð­herra­stól­inn.

Heil­brigð­is­ráð­herr­ann er gíf­ur­lega stoltur af íslensku þjóð­inni og er sann­færður um að sagan af bar­áttu þjóð­ar­innar við COVID-19 verði saga sem fleiri þjóðir muni vilja heyra. Hennar meg­in­vopn í bar­átt­unni er húmor­inn og úthaldið.

„Einhvern tím­ann var ég að grín­ast með það, eftir að hafa verið umhverf­is­ráð­herra þegar Eyja­fjalla­jök­ull gaus, að það væri alveg eftir öllu að ég yrði fyrsti heil­brigð­is­ráð­herr­ann sem þyrfti að beita sam­komu­banni. Og auð­vitað kom það svo í minn hlut. En þetta var bara aug­ljóst næsta skref þegar þar að kom og ég hik­aði aldrei frammi fyrir þeirri ákvörðun,“ segir Svandís sem hefur haft í nógu að snú­ast síð­ustu mán­uði.

Ráð­herr­ann segir það hins vegar ekki hluta af per­sónu­gerð sinni að gef­ast upp eða bug­ast frammi fyrir stórum og erf­iðum verk­efnum. „Þegar ég sett­ist í ráð­herra­stól­inn datt mér aldrei í hug að ég þyrfti að glíma við alheims­far­aldur árið 2020. Það hefur verið mjög krefj­andi að vera heil­brigð­is­ráð­herra und­an­farið. Það óraði engan fyrir þessu.“

Fyrsta smitið hér á landi greind­ist föstu­dag­inn 28. febr­úar og strax þá helg­ina hófst skimun eftir smitum og smitrakn­ingin. „Við fórum að und­ir­búa okkur strax í jan­úar þegar ljóst var í hvað stefndi. Það er alveg ein­stakt hvað við höfum náð langt í bar­átt­unni við veiruna en við erum líka með gott fag­fólk í þessu stóra verk­efni. Í gegnum þetta hefur sótt­varn­ar­læknir staðið þétt við bakið á mér og hann hefur ekki aðeins menntað þjóð­ina í gegnum þetta heldur líka ráð­herr­ann sinn. Með okkar aðferðum og verk­færum hefur okkur tek­ist mjög vel til. Við höfum beitt hörðum sótt­varn­ar­að­gerðum en þær end­ur­spegl­ast líka í þeim árangri sem við sjáum. Það sem gildir er að vera á undan veirunni.“

Muna að anda

Þegar Svandís er spurð að því hvað hafi hjálpað henni per­sónu­lega í þessu erf­iða verk­efni segir hún: „Ég hef fundið hversu mik­il­vægt er að eiga gott per­sónu­legt bak­land. Sjálf hef ég alltaf lagt mikla áherslu á húmor­inn því hann er gott vopn í miklu álagi og raunar í gegnum lífið sjálft má ekki gleyma því að hafa gaman. Ég hef líka lagt á það áherslu að gefa mér tíma inn á milli til að lesa skáld­sögur og passa vel upp á næt­ur­svefn­inn. En það sem er mik­il­væg­ast í þessu öllu samt er að muna að anda, stundum gleym­ist það þegar álagið er mjög mikið,“ segir Svandís.

Alveg magnað

Erfiðast í ferl­inu öllu segir Svandís hafa verið að standa í kjara­deilu, lengst af hafi enn verið ósamið við hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem hún telur vera hrygg­lengj­una í heil­brigð­is­þjón­ust­unni. Hún er ánægð með að samn­ingar náð­ust og er jafn­framt virki­lega stolt af íslensku þjóð­inni. „Per­sónu­lega finnst mér þetta hafa verið leið­angur sem hefur dregið fram það besta og sterkasta í íslensku sam­fé­lagi. Við hikum ekki við að standa saman undir miklu álagi og erum fljót að hugsa út fyrir boxið,“ segir Svandís og telur að aðrar þjóðir komi til með að vilja heyra okkar sögu. „Þetta er von­andi saga sem við getum sagt fleirum en okkur sjálfum þegar þetta er að baki. Heil­brigð­is­kerfið okkar hefur líka sýnt ótrú­legt afl, sveigj­an­leika og fag­mennsku. Þar hefur fjöldi heil­brigð­is­starfs­fólks lagað sitt dag­lega starf að afar krefj­andi verk­efnum undir miklu álagi. Fyrir þetta ber okkur öllum að þakka.“

Þurft að slökkva elda

Svandís er ánægð­ust með hversu vel hefur tek­ist að halda almenn­ingi upp­lýstum en það telur hún hafa verið lyk­il­at­riði. Á sama tíma er hún ánægð með hversu vel stjórn­mála­menn­irnir hafa haldið sig frá sviðs­ljós­inu og hleypt fag­fólk­inu að í stað­inn. „Við nýttum bestu mögu­legu vís­inda­legu þekk­ingu á hverjum tíma til að takast á við þetta og héldum hóp­inn með vís­inda­fólk­inu,“ segir Svandís.

Það hefur þó líka ýmis­legt farið úrskeiðis, að mati ráð­herr­ans, og ýmis­legt sem draga má lær­dóm af þegar far­ald­ur­inn verður yfir­stað­inn. „Þegar ég lít til baka hefði ég viljað hafa gert betur í upp­lýs­inga­gjöf til allra hópa í sam­fé­lag­inu alveg frá upp­hafi. Það er eitt­hvað sem við megum bæta okkur mikið í, að miðla öllum upp­lýs­ingum til þeirra sem eru með annað móð­ur­mál en íslensku og tryggja túlkun yfir á íslenskt tákn­mál. Þetta hefði ég viljað hafa í lagi frá fyrsta degi,“ segir Svandís en hún telur líka tæki­færi í þessu fólgin. „Í fljótu bragði sé ég tæki­færi á því að við nýtum verk­lagið sem við höfum til­einkað okkur, til dæmis að við nýtum meira göngu­deild­ar­þjón­ustu sem hefur virkað svo vel þannig að fólk þurfi síður að leggj­ast inn.“

Baráttan ekki búin

Svandís leggur ríka áherslu á að bar­átt­unni við veiruna sé hvergi nærri lokið. „Svo lengi sem þessi veira er á kreiki er þetta ekki búið. Nú er ég hvorki bólu­efna­fræð­ingur né veiru­fræð­ingur en mitt besta fólk segir mér að bólu­efnis sé langt að bíða. Jafnvel ein­hver ár þangað til að það liggur fyrir,“ segir Svandís.
„Ég hélt að það til­heyrði öðrum tímum að stórir veiru­far­aldrar leggi sam­fé­lög manna undir sig. Áhrifin af þessum far­aldri eru alveg gríð­ar­lega mikil og sem mann­kyn erum við enn í miðjum klíðum. Ég myndi gjarnan viljað geta stað­fest hvenær verður komið jafn­vægi í íslenskt sam­fé­lag en það er veiran sem stýrir tíma­lín­unni. Ef hún gengur áfram ljósum logum um heims­byggð­ina verðum við að glíma við þetta áfram næstu miss­eri. Ég horfi til þess að við ættum samt að geta kom­ist aftur á gott skrið á hér inn­an­lands í lok þessa árs.“

Hrekkur í kút

Heil­brigð­is­ráð­herr­ann telur ljóst að mann­fólkið muni læra ýmis­legt af þessum heims­far­aldi. „Næsta verk­efni á dag­skrá verður hlýnun jarðar og lofts­lags­vand­inn. Næst þurfa þjóðir heims að snúa bökum saman í að leysa það verk­efni far­sæl­lega,“ segir Svandís.

„Því miður held ég að það sé langt í það að við notum gamla handa­bandið aftur. Sjálf hrekk ég í kút þegar ég sé fólk í bíó­myndum sitj­andi í kös, það er bara óþægi­legt.
Ég tel að við munum breyta ýmsu í okkar dag­legu háttum og lærum betur að meta það sem skiptir öllu máli.“

Hófleg skref

Svandís er þeirrar skoð­unar að aflétt­ing tak­mark­ana sé hóf­leg útfærsla og skilur gagn­rýn­is­raddir sem telja of hægt farið í aflétt­ingu þeirra. „Því er alltaf við að búast að heyra gagn­rýn­is­raddir enda snerta þessar ákvarð­anir okkar líf hvers ein­asta manns. Ég tel ákvarð­anir okkar réttar og öll þessi skref eru með fyr­ir­vara um hvernig gengur hjá okkur. Við vitum að það þarf ekki nema eina óvar­lega ákvörðun sem gæti leitt til þess að aftur þurfi að herða reglur. Við þurfum öll að vera sam­ferða út úr þessum far­aldri.“

Skrefin: 1. skref – 4. maí
Fjölda­mörk sam­komu­banns hækkuð upp í 50 manns í stað 20 áður.
Skóla­starf leik- og grunn­skóla með eðli­legum hætti.
Starf fram­halds- og háskóla heim­ilað en þó með fjölda­tak­mörkun 50 í sama rými.
Skipu­lagt íþrótta­starf heim­ilað utandyra en þó með fjölda­tak­mörkun 50 saman í hóp hjá leik- og grunn­skóla­börnum og 4 saman hjá eldri iðk­endum. Notkun á sam­eig­in­legum bún­aði haldið í lág­marki.
Ýmis starf­semi heim­iluð: Nudd­stofur, hár­greiðslu­stofur, snyrti­stofur, sjúkra­þjálfun, tann­lækn­ingar, söfn og sam­bæri­leg starf­semi.
Reglur um tveggja metra fjar­lægð hald­ast hald­ast óbreyttar.

2. og 3. skref – Í sumar
Fjölda­mörk sam­komu­banns hækka úr 50 í hærri tölu, mögu­lega í tveimur skrefum. Það fyrra upp í 100-200 manns og það síð­ara upp í 2000 manns.
Starf­semi lík­ams­rækt­ar­stöðva og sund­lauga heim­iluð.
Starf­semi kráa, veit­inga­staða, skemmti­staða og spila­sala heim­iluð.
Reglur um tveggja metra fjar­lægð hald­ast óbreyttar.

4. skref – 1. sept­em­ber
Fjölda­mörkum sam­komu­banns aflétt.
Áfram verði lögð áhersla á hand­þvott og öfl­ugar sótt­varnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ