Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„LEGO er frábær leið til að tengjast og skemmtilegt áhugamál“

„LEGO er frábær leið til að tengjast og skemmtilegt áhugamál“
Oddur Eysteinn Frið­riks­son

Oddur Eysteinn Frið­riks­son állista­maður er einn helsti áhuga­maður á Íslandi um LEGO og heldur úti Facebook-hópi um áhuga­málið. Hann segir aðdá­endur vera á öllum aldri, enda ein­blíni fyr­ir­tækið á hönnun fyrir full­orðna og safn­ara en ekki bara börn. Helsti banda­maður í söfnun Odds er tengda­faðir hans.

„Ég stofn­aði hóp­inn Áhuga­fólk um LEGO á Íslandi fyrir fimm árum eftir að hafa leitað að sam­bæri­legum hópi á Facebook en ekki fundið neinn. Mér fannst vanta vett­vang fyrir unga sem aldna LEGO-aðdá­endur til að kaupa, selja, deila myndum og fréttum af því nýjasta sem væri að ger­ast hjá LEGO,“ segir Oddur.

LEGO-fyr­ir­tækið hefur á síð­ustu árum sett meiri fókus á hönnun fyrir full­orðna og safn­ara, sem gerir það að verkum að aðdá­endur eru á öllum aldri, að sögn Odds. „Full­orðnir sækja nú í settin sem aldrei fyrr bæði vegna þess skemmt­ana­gildis sem felst í því að setja þau saman og einnig söfn­un­ina. LEGO fyrir full­orðna er ekk­ert ósvipað æðinu þegar lita­bækur fyrir full­orðna komu út,“ segir Oddur.

Oddur Eysteinn Frið­riks­son heldur úti Facebook-hópi áhuga­fólks á Íslandi um LEGO.

Lego er gátt til fortíðar

„Við elskum að detta í barn­dóm­inn og upp­lifa ánægju­til­finn­ingar sem við áttum þegar við vorum yngri. LEGO hefur reynst mörgum gátt aftur til for­tíðar. Það gefur fólki líka meira frelsi að hlutir séu hann­aðir fyrir full­orðna. Nördismi hefur verið að ryðja sér til rúms und­an­farin ár og fleiri komið út úr nör­da­skápnum. Maður sér það á hópnum sem hefur vaxið með hverju ári og telur nú 1.300 manns,“ segir Oddur, sem segir LEGO hafa verið vin­sælasta leik­fangið á heim­il­inu þegar hann var krakki.

„Ég á skemmti­legar minn­ingar af því að byggja LEGO sjó­ræn­ingja­skip með föður mínum heitnum. Í þá daga var maður ann­að­hvort LEGO- eða Playmo-safn­ari.“

Star Wars er í uppáhaldi

Oddur á sjálfur lang­mest af Star Wars LEGO-köllum, eða 233 tals­ins, sem hann hefur sankað að sér síð­ustu fimm árin. Kallanna hefur hann getað keypt á sölu­síðum, eign­ast sett og jafn­vel fengið gef­ins. „Ég veit ekki hvers virði safnið er en það hlýtur að hlaupa á tugum, ef ekki hund­ruðum þús­unda. Dýrasti kall­inn sem ég á er um það bil 15 þús­und króna virði.“

En hvað finnst fjöl­skyld­unni um áhuga­málið?

„Eftir að ég kynnt­ist kærust­unni minni, Ólöfu Þóru Sverr­is­dóttur, hefur hóp­ur­inn tekið flug. Það tók smá­tíma að koma henni inn í áhuga­málið en hún er mjög virk í dag. Það mætti segja að við séum LPC, eða „LEGO Power Couple.“ Hún á gott safn af LEGO-köllum, og síð­asta settið sem hún byggði var eftir Friends-þátt­unum,“ segir Oddur.

Oddur er búinn að koma kærust­unni Ólöfu Þóru inn í LEGO áhuga­málið.

„Minn helsti banda­maður í söfnun á LEGO-köllum er þó tengdapabbi, Sverrir Þórarinn Sverr­is­son. Safnið hans hefur marg­fald­ast á þessu ári, en hann safnar mest Simpsons-köllum. Bart Simpson á hjóla­bretti er nýjasti kall­inn. Þetta er frá­bær leið til að tengj­ast og skemmti­legt áhuga­mál. Við vorum einmitt að ræða mögu­legt verk­efni fyrir sum­arið, að smíða hillur sem myndu henta fyrir LEGO-kalla­söfn,“ segir Oddur og bætir við í gam­an­sömum tón: „Áður en maður veit af verða allir pakkar til allra frá öllum undir jóla­tréinu orðnir LEGO!“

„LEGO hefur reynst mörgum gátt aftur til for­tíðar.“

Hvað er skemmti­leg­ast við að kubba?

„Ég per­sónu­lega hef gaman af því að setja saman settin, koma köll­unum fyrir í safn­inu og svo sel ég settin án kall­anna aftur frá mér. Þannig næ ég að fjár­magna áhuga­málið og stækka safnið. Auðvitað fá krakk­arnir líka sitt eigið LEGO og jújú krakk­arnir fá stundum að fikta í mínu,“ segir Oddur.

Ýmir Kaldi með LEGO.
Bræð­urnir Ýmir Kaldi og Þrymur Blær að kubba.

Hann býður alla nýja með­limi vel­komna í Facebook-hóp­inn Áhuga­fólk um LEGO á Íslandi. „Hópurinn er frá­bær hópur fólks á öllum aldri, sam­held­inn og vina­legur. Öllum nýjum með­limum er vel tekið og per­sónu­lega finnst mér alltaf skemmti­leg­ast að sjá söfn ann­arra,“ segir Oddur.

„Ég á langt í land að eiga stærsta LEGO-safn Íslands, en fólk má endi­lega hafa mig í huga ef það finnur Star Wars LEGO-kalla í geymsl­unni og vill losa sig við.“

Hluti af safni Odds
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð