Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Í tjaldi í 15 stiga frosti

Í tjaldi í 15 stiga frosti
|sgdfbdfb|fgn­fgn­fgn

„Þetta er íþrótt sem að hver sem er getur fundið sína leið til að stunda. Allt frá rólegri „göngu“ á sléttum brautum sem hægt er að stunda nán­ast hvar sem er svo lengi sem nógu langur snjó­skafl finnst, allt upp í harðar keppn­is­göngur,” segir Árni i Tryggva­son úti­vist­ar­maður og félagi í skíða­göngu­fé­lag­inu Ulli sem heldur úti öfl­ugri starf­semi í Blá­fjöllum.

Árni mælir með því að byrj­endur fari á nám­skeið. Gríð­ar­lega mik­il­vægt sé að læra að ganga rétt á skíð­unum strax í upp­hafi þannig að þau virki sem far­ar­tæki en ekki snjó­þrúgur.

„Maður sem kann að ganga á skíðum er kannski að taka tvö skref á meðan aðrir sem með honum eru taka fimm. Að láta skíðin vinna fyrir sig er algjört lyk­il­at­riði. Því miður var ég búinn að ganga rangt á skíðum í 18 ár áður en ég átt­aði mig á þessu og því var það mikil vinna að laga stíl­inn, en fyrir vikið hef ég efni á að nefna þetta óspart við aðra og ég er ekki óað­finn­an­legur enn í dag. Ýmsir aðilar bjóða upp á nám­skeið og nefni ég þar fyrst nám­skeiðin hjá okkur í Ulli sem hafa verið gríð­ar­lega vel sótt. Auk þess eru ýmsir aðrir aðilar sem halda uppi nám­skeiðum”.

Árni gerir meðal ann­ars mikið af því að ferð­ast um óbyggðir og víðar á göngu­skíðum. Hann dregur þá við­legu­bún­að­inn á eftir sér á sleða. Hann hefur farið í allt að fjög­urra daga ferðir og skíðað mest 70 km á einum degi. Hann er nýkom­inn úr slíkri göngu frá Reykja­vík og að Laug­ar­vatni.

sgdfbdfb

„Það er ein­hver mögnuð frels­is­til­finn­ing sem fylgir því að standa á skíð­unum með allan búnað til nokk­urra daga og horfa yfir víð­átt­una framundan sem takast þarf á við. Draga djúpt and­ann, finna hvernig bún­að­ur­inn tekur í og taka fyrsta skrefið. Sum skrefin verða þung með bak­poka og far­ang­urs­sleða í djúpum snjó upp í móti en önnur létt þegar svifið er yfir harð­fenni niður langar aflíð­andi brekkur. Ísland er drauma­land slíkrar skíða­mennsku og verk­efnin eru ótelj­andi”.

Óhætt er að segja að aðbún­aður hans hafi á köflum verið utan þæg­ind­ara­mmans. Hann svaf í tjaldi í allt að 15 stiga frosti.

„Það bærði varla vind alla nótt­ina og um morg­un­inn er tjaldið allt hélað að innan. Um morg­un­inn set ég gaskút­inn ofan í svefn­poka hjá mér, þannig að gasið er ófrosið og flæðir því greið­lega þegar kveikt er undir prímus­inum í morg­un­n­epj­unni. Það er stutt að sækja vatnið í svona ferðum. Bara að moka snjó af gólf­inu ofan í pott­inn og innan skammst er búið að fylla alla brúsa, borða hafra­graut og drekka nægju sína. Þá er bara að byrja að pakka saman dót­inu sem er aðeins meiri vinna en á hlýjum sum­ar­degi og gæta þarf þess að ekk­ert týn­ist í snjónum”.

Hann segir að fók sem hafi reynslu af ferða­mennsku ætti að ráða við ferðir sem þessar. Það þurfi þó að hafa kunn­áttu í rötun, úti­legum að vetr­ar­lagi og þekk­ingu á því hvernig á að kom­ast af í óbyggðum.

„Bara það eitt að vakna um miðja nótt til að létta á sér getur orðið að stórað­gerð.”

„Ein­föld­ustu atriði dag­legs lífs geta orðið snúin þegar komið er út í óbyggðir. Það að hokra inn i í þröngu tjaldi þar sem allar dag­legar athafnir þurfa að eiga sér stað á agn­ar­litlum bletti innan tjalds­ins verða snúnar. Bara það eitt að vakna um miðja nótt til að létta á sér getur orðið að stórað­gerð. Rífa sig upp úr svefn­pok­anum og klæða sig upp til að sinna þessum sjálf­sögðu erindum hóf­lega langt frá tjald­inu getur orðið að þrekraun”.

Árni hefur kennt fjöl­mörgum að nota skíði sér til ánægju og heilsu­bótar.

„Ég gengst fús­lega við því að þessi íþrótt sé orðin hrein ástríða hjá mér, enda held ég að ég hafi hrifið ótal manns með mér og ófáir fengið til­sögn hjá mér í skíða­göng­unni sein­ustu árin. Það er gaman að mæta á skíða­mót í dag og sjá þar tölu­verðan hóp fólks sem mætir með eld­móð og áhuga. Þetta sama fólk og tók sín fyrstu skref á göngu­skíðum með minni til­sögn”.

Árni segir til­valið fyrir fólk að stunda göngu­skíði á þessum við­sjár­verðu tímum þar sem veiran ógnar fólki og smit berst hratt á milli manna.

Þess væri ósk­andi að menn opn­uðu augun fyrir upp­bygg­ingu aðstöðu til skíða­göngu í ljósi atburða lið­inna vikna, en skíða­göngu­brautir eru eina almenn­ings­að­staðan í skíða­í­þrótt­inni sem er opin á meðan allt annað er lokað. Skíða­göng­una er nefni­lega hægt að stunda án mik­illar nándar við aðra og eng­inn bún­aður er not­aður þar sam­eig­in­lega,” segir hann.

Árni seg­ist finna ró við að ganga á skíð­unum. Að svífa um í góðri braut þar sem öll ein­beit­ing fari í að gera þetta rétt og halda takti sé hreinsun hug­ans.
„Allt í einu upp­hefj­umst við og þyngd­ar­aflið er vart að hafa áhrif. Við fljúgum. Í skíða­braut­inni þurfum við ekki að hafa áhyggjur af umferð­inni eða hindr­unum. Og ef við dettum, þá er bara að standa aftur upp og dusta af sér snjó­inn og rjúka af stað aftur, því slysa­tíðnin í þess­ari íþrótt er með því lægsta sem þekk­ist. Skíða­göngu­maður sem er að gera þetta rétt er að beita um 95 pró­sent hreyfi­vöðva lík­am­ans á meðan þessu stendur,” segir hann.

Myndir / Árni Tryggva­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ