Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Má kannski segja að þetta hafi verið teiknað í stjörnurnar“

Í dag hefst franska kvik­mynda­há­tíðin sem haldin hefur verið árlega frá árinu 2000 og fagnar því tutt­ugu ára afmæli um þessar mundir. Á meðal mynda er heim­ilda­myndin Wine Calling eftir Bruno Sauvard, sem verður sýnd 1. febr­úar en að sýn­ingu lok­inni verður efnt til vín­s­mökk­unar á Port 9 þar sem eng­inn annar en sjálfur Dóri DNA kynnir frönsk nátt­úru­vín.

„Áhuginn á nátt­úru­vínum kvikn­aði hjá mér fyrir tveimur árum þegar ég fór með eig­in­kon­unni til Parísar að halda upp á fer­tugs­af­mælið hennar,“ segir Dóri,  spurður út í teng­ingu hans við nátt­úru­vín. „ Þá þræddum við flotta og góða veit­inga­staði og hvar sem við komum var boðið upp á nátt­úru­vín. Í kjöl­farið frétti ég af því að fyr­ir­tækið Berjamór, sem flytur inn nátt­úru­vín, væri að leita sér að með­eig­enda svo það má kannski segja að þetta hafi verið teiknað í stjörn­u­rnar.“

Dóri bendir á að síð­ustu ár hafi nýjar og nátt­úru­legri leiðir í fram­leiðslu vína sótt í sig veðrið. Aðferð­irnar sem not­aðar eru séu nær bónd­anum og vín­fram­leið­and­anum, vínin séu fram­leidd í litlu magni og nostrað við öll smá­at­riði.

„Ég og Elmar á Port 9 munum gefa fólki að smakka tvær teg­undir af rauð­víni og eina af hvítvíni eftir sýn­ingu mynd­ar­innar og svo munum við spjalla við fólk um vínin.“

Wine Calling er einmitt um fram­leiðslu nátt­úru­vína en í henni fá áhorf­endur að kynn­ast frönskum hand­verksvín­fram­leið­endum sem hafa sjálf­bærni og nátt­úru­legar aðferðir að leið­ar­ljósi í fram­leiðsl­unni en þess má geta að ein­ungis u.þ.b. 3 pró­sent franskra vín­fram­leið­enda vinna eftir þessum aðferðum. Hér er um að ræða nýja kyn­slóð vín­gerð­ar­manna sem leita nýrra og nátt­úru­legra leiða þar sem gamlar reglur og gildi eru látin lönd og leið.

Spurður út í aðkomu hans að frönsku kvik­mynda­há­tíð­inni segir Dóri segir að franska sendi­ráðið Íslandi, sem stendur að hátíð­inni ásamt Bíó Paradís, Alliance França­ise og Institut français, hafi leitað til hans þar sem mörg af þeim vínum sem fyr­ir­tækið Berjamór flytji inn séu fram­leidd á þeim slóðum þar sem myndin er tekin. „Ég og Elmar á Port 9 munum gefa fólki að smakka tvær teg­undir af rauð­víni og eina af hvítvíni eftir sýn­ingu mynd­ar­innar og svo munum við spjalla við fólk um vínin,“ segir hann, en myndin er ein­ungis sýnd einu sinni, þann 1. Febrúar, og er vín­s­makkið  inni­falið í miða­verð­inu.

Franska kvik­mynda­há­tíðin stendur yfir í tíu daga, frá 24. jan­úar til 2. Febrúar, og verða sýndar tólf áhuga­verðar og fjöl­breyttar franskar myndir sem kvik­mynda­á­huga­fólk ætti ekki að láta fram hjá sér fara. Sumar mynd­anna eru sýndar einu sinni en aðrar nokkrum sinnum meðan á hátíð­inni stendur en nálg­ast má allar upp­lýs­ingar um dag­skrána á biop­ara­dis.is. Þá er vert að geta þess að hátíðin verður einnig í boði á Akureyri, Ísafirði og Egils­stöðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð