Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Íslendingar í banni víða um veröld

Íslendingar í banni víða um veröld
|Gísli Rafn Ólafsson býr í Kigali í Rúanda.

„Vonandi fara nú landa­mæri að opn­ast bráð­lega svo auð­veld­ara verði að fá flug heim,“ segir Apríl Harpa Tuan­krat­hok sem hefur verið föst í Indónesíu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og kemst ekki heim til Íslands með barn­unga dóttur sína. Hún hefur búið í Indónesíu síð­ustu þrjú ár og upp­lifir nú for­dóma í land­inu þar sem útlend­ingum er kennt um að breiða út kór­ónu­veiruna. Mannlíf ræðir við Apríl og nokkra Íslend­inga sem búa erlendis um upp­lifun þeirra á tímum COVID-19 en næstum fjórir millj­arðar, eða meira en helm­ingur jarð­ar­búa, hafa sætt ein­hvers konar útgöngu­banni eða tak­mörk­unum á ferða- og sam­komu­frelsi í 90 löndum á meðan far­ald­ur­inn geisar.

Góa Gunn­ars­dóttir stundar nám við lýð­há­skóla í Hró­arskeldu í Danmörku. Mynd / Aðsend

Mjög einmanalegt

Góa Gunn­ars­dóttir stundar nám við lýð­há­skóla í Hró­arskeldu í Danmörku og býr ásamt vin­konu sinni á heima­vist skól­ans. „Við fluttum hingað í ágúst síð­ast­liðnum, erum tvær hérna og búum einar. Það er allt mjög tóm­legt hér vegna COVID-19, sér­stak­lega á heima­vist­inni, því við erum bara þrjár þar sem vana­lega búa 100 manns. Allir voru sendir heim til sín þann 11. mars. Síðan þá höfum við fengið alla vega þrjár dag­setn­ingar um hvenær skól­inn muni opna, en því hefur stöðugt verið frestað. Þannig að okkur hefur hvorki tek­ist að finna vinnu né annað hús­næði vegna óvissu. Þetta er mjög óþægi­leg og ein­mana­leg staða.“

Hrafn­hildur Ýr Bene­dikts­dóttir Cummings býr í Frank­furt, Þýska­landi. Mynd / Aðsend

Vantar upplýsingafundi

Hrafn­hildur Ýr Bene­dikts­dóttir Cummings hefur búið í Frank­furt í Þýska­landi frá árinu 2014 með þýskum kærasta sínum og hundi. Hún segir líf þeirra hafa gengið ágæt­lega þrátt fyrir COVID-19 far­ald­ur­inn. „Þetta hefur bara gengið ágæt­lega hjá okkur. Ég vann hvort sem er heima fyrir alþjóð­legt fyr­ir­tæki og því var breyt­ingin hjá mér ekk­ert rosa­leg. Hins vegar er mað­ur­inn minn sölu­maður og keyrir á milli við­skipta­vina, þar hefur orðið þónokkur breyt­ing á; maður tekur ekki lengur í hönd­ina á næsta manni til að heilsa, nota þarf grímu þegar farið er inn í allar versl­anir og margt sem fór áður fram á staðnum er nú afgreitt í gegnum síma. Í mínu fylki var öllu lokað í upp­hafi, nema bens­ín­stöðvum, mat­vöru­búðum og öðru sem teng­ist mat. Svo var opnað fyrir eitt og annað í hollum. Veit­inga­staðir bjóða nú upp á heim­send­ingar og barir og veit­inga­staðir mega bjóða þjón­ustu sína, en með miklum tak­mörk­unum.“

Hún segir að alltaf hafi mátt fara út í göngutúr eða til að stunda aðra hreyf­ingu, en það hafi verið á gráu svæði hvað væri bannað að gera og hvað ekki. „Upp­lýs­inga­gjöf hefur ekki verið neitt sér­stak­lega góð og maður reynir bara að passa sig að gera helst ekki neitt til að gera óvart ekki eitt­hvað sem er bannað. Það er eng­inn einn opin­ber staður sem maður getur leitað til eftir upp­lýs­ingum eða dag­legir upp­lýs­inga­fundir eins og á Íslandi.“

Apríl Harpa Tuan­krat­hok var í meist­ara­námi ásamt því að vinna sem far­ar­stjóri og reka ævin­týra­fyr­ir­tækið Ind­is­ur­faris sem býður upp á bát­sigl­ingar. Nú er hún í föst ásamt fjöl­skyldu sinni í Indónesíu og leitar leiða til að kom­ast heim til Íslands. Mynd / Aðsend

Föst um borð í rándýrri snekkju

Apríl Harpa Tuan­krat­hok er stödd í Indónesíu ásamt 5 mán­aða dóttur sinni og suður afrískum unnusta. Síðustu mán­uði hefur fjöl­skyldan hefur lent í ýmsum hremm­ingum vegna COVID-19 og er nú föst um borð í millj­arða króna snekkju.

„Ég átti bókað flug til Íslands þann 19. mars en ekk­ert varð af flug­inu vegna far­ald­urs­ins og ég hef ekki fengið annað flug síðan,“ segir Apríl. „Við þurftum hins vegar að fljúga til Malasíu til að end­ur­nýja land­vist­ar­leyfið sem var útrunnið og rétt sluppum til baka áður en Malasíu var lokað. Þá komumst við að því að tíma­bundið vega­bréf dóttur minnar var ógilt og okkur mæðg­unum var báðum vísað úr landi. Það átti að senda okkur með næsta flugi til Malasíu og þannig stía okkur fjöl­skyld­unni í sundur. Við máttum ekki einu sinni fara af flug­vell­inum til að pakka. Þetta var rosa­lega and­styggi­legt.“

Hún segir að þegar þetta gerð­ist hafi fjöl­skyldan verið flutt úr hús­næð­inu sínu þar sem til stóð að flytja heim til Íslands. „Þannig að við vorum skyndi­lega hús­næð­is­laus með þriggja mán­aða gam­alt barn.“

Sem betur fer hafi þeim boð­ist vist í „æðis­legri snekkju sem kostar um millj­arð króna“. Tveimur mán­uðum síðar er fjöl­skyldan enn um borð og seg­ist Apríl vera í stöð­ugu sam­bandi við utan­rík­is­ráðu­neytið til að kom­ast til Íslands. „Nú kross­legg ég bara fingur og vona að það tak­ist.“

Hún segir algjört útgöngu­bann gilda í Indónesíu og svo virð­ist sem heima­menn hafi fengið upp­lýs­ingar um að veiran ber­ist með útlend­ingum. „Fyrir vikið vorum við hrakin burt með látum í upp­hafi far­ald­urs­ins. Ef okkur vant­aði mat þá þurftum við að láta sér­stakt „batt­erí“ vita og það keypti mat handa okkur.“

Erfiðast segir hún hafa verið þegar faðir unnusta hennar greind­ist með COVID-19 og dó tveimur dögum síðar. „Það er hræði­legt að vita til þess að hann hafi verið einn þegar hann lést og mað­ur­inn minn þurfti að syrgja með fjöl­skyld­unni í gegnum Skype. Vonandi fara nú landa­mæri að opn­ast bráð­lega svo það verði auð­veld­ara að fá flug heim.“

Guð­mundur Tryggva­son býr í í Bohol á Fil­ipps­eyjum. Mynd / Aðsend

Óttast að hungursneyð dragi marga til dauða

Guð­mundur Tryggva­son hefur búið í Panglao Bahol á Fil­ipps­eyjum síð­ast­liðin 12 ár og kennir köfun. Hann segir að reglur stjórn­valda vegna COVID-19 far­ald­urs­ins breyt­ist mörgum sinnum á dag. „Ég flaug frá Melbourne í Ástralíu með síð­asta flug­inu til Fil­ipps­eyja 14. mars og hef verið hér heima síðan þá. Lífið hérna er yfir­leitt mjög gott, þótt reglur breyt­ist stundum mörgum sinnum á dag. Það sem var sam­þykkt fyrir hádegi og gefið út getur verið úrelt klukkan 17. Svona hefur þetta verið síð­ustu vik­urnar en það hefur ekki pirrað mig mikið.“

Hann segir að fyrstu þrjár vik­urnar hafi gilt strangar reglur um hver geti verið úti, hvenær og hvers vegna og nú þurfi fólk sér­stakan sótt­kví­arpassa til að kom­ast ferða sinna. Mjög víða séu eft­ir­lits­stöðvar með her­lög­reglu sem skoði passa og skil­ríki þeirra sem fara í gegn. Hvorki sé siglt né flogið á milli eyj­anna.

„Það hefur aðeins verið slakað á úti­vistar­reglum þótt útgöngu­bann gildi til 31. maí og því miður virðir fólk þær ekki alltaf. Búðir hafa verið opn­aðar og flestir komnir til vinnu aftur. Ég ótt­ast að marg­falt fleiri deyi úr hungri hér heldur en af völdum COVID-19. Fólk hefur ekki haft vinnu í margar vikur og margar fjöl­skyldur eru í vand­ræðum. Það er neyð­ar­að­stoð fyrir hendi, en bara í mjög litlu magni fyrir flestar fjöl­skyldur. Það sem hefur auð­veldað okkur íbú­unum lífið er að ekk­ert COVID-19 til­felli hefur komið upp.“

Edda Björk Ágústs­dóttir býr í Hovden í Noregi. Mynd / Aðsend

Ástandið næstum orðið eðlilegt

Edda Björk Ágústs­dóttir býr í Hovden, litlum skíðabæ í Noregi, þar sem hún hefur meðal ann­ars starfað sem bretta- og skíða­kenn­ari. Hún segir íbú­ana hafa virt þær reglur sem stjórn­völd settu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Allt hafi verið lokað um tíma en staðan sé nú næstum orðin eðli­leg aftur.

„Í Noregi byrj­uðu þeir upp úr 14. mars að loka skólum, veit­inga­stöðum, lík­ams­rækt­ar­stöðvum og í raun öllum stöðum þar sem fólk safn­að­ist saman. Ég bý í litlum bæ úti á landi og fólk var ekki að stressa sig eða hamstra í búðum út af ástand­inu. Hér eru allir poll­ró­legir og voða til­lit­samir við náung­ann,“ lýsir Edda.

Hún segir að fyrir utan að hafa ekki vinnu þá hafi COVID-19 haft mjög lítil áhrif á líf hennar. „Ég náði að fara reglu­lega í skíða­ferðir og á göngu­skíði og um pásk­ana var gefið leyfi fyrir því að opna skíða­svæðið, með var­úð­ar­reglum að sjálf­sögðu. Svo eftir páska hefur allt smám saman opnað aftur og staðan hér er bara næstum eðli­leg aftur. Núna er verið að plana sumar-„sísonið“ og aug­lýsa ferðir til Norð­manna í stað ferða­manna.“

Gísli Rafn Ólafsson býr í Kigali í Rúanda. Mynd / Aðsend

Ástandið næstum orðið eðli­legtLeiður á inni­ver­unni

Gísli Rafn Ólafsson býr í Kigali í Rúanda og starfar fyrir stór hjálp­ar­sam­tök sem styðja bændur við að losna úr viðjum fátæktar. Hann segir að þar hafi svip­uðum aðferðum verið beitt í bar­átt­unni gegn COVID-19 og á Íslandi og gengið vel.

„Hér eru hlutir á nokkuð góðu róli enda vel haldið utan um þessi mál, ólíkt flestum öðrum ríkjum í Afríku. Rúanda er eitt af fáum löndum í Afríku þar sem fjöldi smit­aðra er á nið­ur­leið. Hér var farið eftir sömu hug­mynda­fræði og á Íslandi; not­ast við sótt­kví, rakn­ingu og ein­angrun og rétt eins og á Íslandi hefur það gengið upp,“ segir Gísli Rafn, en þetta er ekki fyrsta far­sóttin sem hann upp­lifir í Afríku, því fyrir fimm árum tók hann þátt í aðgerðum gegn ebólu­far­aldri í Vestur-Afríku og varði þar sex mán­uðum í Líberíu, Sierra Leone og Ghana.

Gísli segir að þegar COVID-19 far­ald­ur­inn skall á í Rúanda hafi hann og kona hans ákveðið að hún færi til Íslands þar sem þau eiga fimm upp­komin börn. Hann hafi ákveðið að verða eftir, enda mikil vinna fyrir höndum. „Nokkrum dögum seinna, eða um 23. mars, var svo sett á útgöngu­bann og allar sam­göngur, bæði á lofti og landi, stöðv­uð­ust,“ segir hann. „Fólk mátti aðeins fara út í búð, í apó­tek eða til læknis. Það útgöngu­bann stóð alveg til 4. maí, en þá var rýmkað um regl­urnar og nú er ein­ungis útgöngu­bann eftir klukkan 20 á kvöldin og til 5 á morgn­ana.“

Að hans sögn var dálítið ein­kenni­legt að vera meira og minna alveg inn­an­dyra í sjö vikur. „En það fór ekki illa um mig, enda raf­magn nokkuð stöðugt hér í Rúanda miðað við önnur lönd í Afríku, netið ágæt­lega hrað­virkt og vel þróuð smá­forrit til þess að fá sendan heim mat frá helstu veit­inga­stöðum borg­ar­innar. Það er þó ekki hægt að neita því að maður var orð­inn dálítið þreyttur á inni­ver­unni, enda fór ég fyrsta morg­un­inn á fætur klukkan 5, fór beint út á vespu og keyrði upp á hæð sem er með gott útsýni yfir Kigali-á og horfði á sól­ar­upp­rás­ina sem fékk mann til að gleyma allri inni­ver­unni.“

Kristján Sig­urðs­son hefur verið á ferða­lagi um Víetnam. Mynd / Aðsend

Enginn vírus sjáanlegur

Kristján Sig­urðs­son hefur verið á ferða­lagi um Víetnam und­an­farna mán­uði. Hann hefur ekki mikið orðið var við COVID-19 far­ald­ur­inn á ferða­lag­inu. „Það hefur farið vel um mig hér í Víetnam. Enginn vírus sjá­an­legur.

Jórunn Steins­dóttir bjó ásamt fjöl­skyldu sinni á Spáni en er nú flutt heim til Íslands. Mynd / Aðsend

Allt fór til fjandans

Jórunn Steins­dóttir bjó með fjöl­skyld­unni á Spáni og var þar í langri ein­angrun eftir að útgöngu­bann var sett á í land­inu. „Við fluttum hingað til lands­ins a sunnu­dag­inn eftir mjög langt og erfitt ferða­lag frá Spáni. Fluttum út en allt fór til fjand­ans og við eyddum 50 dögum í ein­angrun,“ lýsir hún.

Héðinn Svarfdal, Elva Sturlu­dóttir og syn­irnir Goði og Víkingur í Guanacaste-hér­aði í Kosta Ríka. Mynd / Aðsend

Gefast ekki upp

Héðinn Svarfdal býr ásamt fjöl­skyldu sinni í Kosta Ríka. Þar opn­uðu þau veit­inga­hús við strönd­ina í febr­úar og hafa barist í bökkum und­an­farnar vikur. „Ekki nóg með að ferða­menn séu ekki til staðar, heldur hafa ótal margir misst vinn­una í kjöl­farið og eru eðli­lega ekki mikið að sækja í veit­inga­hús,“ segir Héðinn. „Við gef­umst hins vegar ekki upp og áttum okkur á mik­il­vægi stað­ar­ins fyrir starfs­fólkið okkar og fjöl­skyldur þeirra. Ef við komumst í gegnum þetta tíma­bil, ætti stað­ur­inn að tóra um ókomna tíð.“

Að sögn Héðins er fjöl­skyldan nægju­söm og það fer ekki illa um hana í sól­inni, en skortur á skóla­vist, íþróttum og fleiru bjóði óneit­an­lega upp á áskor­anir. „Manni fall­ast dálítið hendur þegar spurt er: „Hvað ætlum við að gera skemmti­legt í dag,“ segir hann, en tekur fram að á mánu­dag verði byrjað að slaka á þeim aðgerðum sem hafa verið nýttar til að sporna við útbreiðslu á COVID-19 í Kosta Ríka. Skólar verði reyndar áfram lok­aðir og tak­mark­anir á þjón­ustu veit­inga­staða og hót­ela en strendur verði opn­aðar á nýjan leik, en þó með tak­mörk­unum. Stjórn­ar­skráin komi í veg fyrir að bein­línis sé hægt að meina fólki að vera utandyra. Mest hafi verið ein­blínt á að draga úr bíla­um­ferð, einkum til að fyr­ir­byggja að borg­ar­búar mæti á strend­urnar. Suma daga mega ákveðin bílnu­mer ekki sjást á vegum. „Lög­reglan hefur verið dug­leg að klippa númer af bílum sem brjóta þessar reglur að til­efn­is­lausu og því fylgir einnig sekt.“

Hann segir full­yrt að landið opni aftur fyrir ferða­menn 15. júní, en ferða­þjón­ustu­að­ilar séu svart­sýnir á það. „Enda er horft til þess að við­halda góðum árangri í for­vörnum, þar sem aðeins rétt rúm­lega 800 COVID-19 til­felli hafa greinst í landi með um fimm milljón íbúa. Menn eru því hræddir við að opna of snemma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ