Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Íslenskir dómarar á ofurkjörum

Íslenskir dómarar á ofurkjörum
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur. Mynd / Aldís Páls­dóttir|Ragnar Þór Ing­ólfs­son

Það kostar rík­is­kass­ann hátt í sjö millj­ónir króna að halda uppi dóm­urum í náms­leyfum sem þeir geta tekið út á fjög­urra ára fresti. Á hverju ári vinna íslenskir dóm­arar sér inn rétt til þriggja vikna náms­leyfis á fullum launum. Dómari í náms­leyfi á þar að auki rétt á greiddum ferða- og dval­ar­kostn­aði meðan á leyfi stendur, allt að 1,5 milljón króna í hvert sinn. Skiptar skoð­anir eru um þennan ríku­lega rétt dóm­ar­anna. Sumir eru þeirrar skoð­unar að símenntun dóm­ara sé nauð­syn­leg á meðan aðrir telja hana algjöran óþarfa.

Áslaug Björg­vins­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari. Mynd / Saga Sig

Núgild­andi reglur um náms­leyfi dóm­ara tóku gildi í byrjun des­em­ber. Þar segir að dóm­ari eigi rétt á laun­uðu náms­leyfi á fjög­urra ára fresti til að stunda end­ur­menntun, fyrst eftir fjögur ár í starfi. Dómari ávinnur sér þriggja vikna leyfi á hverju ári. Þó getur upp­safn­aður réttur mest orðið sex mán­uðir og greið­ist ekki út við starfs­lok. Dómari heldur launum í náms­leyf­inu og fær þar að auki ferða- og dval­ar­kostn­að­inn greiddan. Sá kostn­aður má þó ekki fara yfir 1,5 milljón.

Jákvætt skref
Áslaug Björg­vins­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari, segir símenntun dóm­ara nauð­syn­lega enda lög­bundin og hluti af vinnu­skyldum dóm­ara. Það kostar sitt fyrir ríkið en að hennar mati er það óhjá­kvæmi­legur kostn­aður við rekstur dóm­stóla þar sem metn­aður og fag­leg gæði dóm­starfa eru höfð að leið­ar­ljósi.
„Það er lyk­il­at­riði fyrir réttar­ör­yggi og sjálf­stæði dóm­stóla að dóm­urum sé tryggð þjálfun og fræðsla til að gegna hlut­verki sínu af fag­mennsku, góðri laga­þekk­ingu og hlut­leysi. Ef vel er á haldið og öflug eft­ir­fylgni þá er þetta jákvætt skref.

Það verður að vera alveg skýrt að þessi leyfi þjóni hags­munum rétt­ar­kerf­is­ins. Í því sam­bandi væri vert skoð­unar að auka gagn­sæi um umsóknir og verk­efni sem dóm­arar fá náms­leyfi til,“ segir Áslaug.

Fínt viðmið

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, tekur í sama streng hvað mik­il­vægi end­ur­mennt­unar starf­stétta varðar. Hann er ánægður að hafa nú í höndum við­mið um hvers sé nú hægt að krefj­ast fyrir versl­un­ar­fólk. „Mér finnst skipta máli að dóm­stig lands­ins séu eins hæf og upp­lýst og kostur er enda gerum við ríkar kröfur til dóm­stóla. Það skiptir sköpum að fólk nýti sér þá mögu­leika á end­ur­menntun sem býðst. Það er mjög mik­il­vægur þáttur sem við hjá VR styðjum og viljum auka. Við værum alveg til í svona flottan pakka eins og dóm­arar hafa og munum að sjálf­sögðu nota þetta sem við­mið fyrir því sem við reynum að sækja,“ segir Ragnar Þór.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Fáir komust að

Ólöf Finns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Dóm­stóla­sýsl­unnar, segir alla þurfa að end­ur­hæfa sig í starfi og telur eft­ir­lit nægj­an­legt með þeim náms­leyfum sem tekin eru. Aðspurð hefur hún ekki áhyggjur af mis­notkun leyf­anna og segir of litla reynslu komna á nýju regl­urnar til að tjá sig um hvort rétt­indin séu hugs­an­lega of ríf­leg. „Ég er mikil tals­kona símennt­unar. Hér áður voru færri en vildu sem komust að og það er mik­il­vægt að þetta hafi verið rýmkað í ljósi þess hversu dóm­ar­arnir eru orðnir margir. Þá tel ég mjög jákvætt að nú geta dóm­arar farið oftar og styttra í leyfi,“ segir Ólöf.

Jón Steinar Gunn­laugs­son, lög­maður og fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari. Mynd / Heiða Helga­dóttir

Algjör óþarfi

Jón Steinar Gunn­laugs­son, lög­maður og fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, telur náms­leyfi dóm­ara hér á landi algjöran óþarfa. Hann leggur áherslu á að laga­lega sé ekk­ert athuga­vert við þessar settu reglur. „Reglur af þessu tagi voru ekki í gildi þegar ég var dóm­ari og ég tel þær algjör­lega óþarfar. Þetta veldur bara útgjöldum fyrir skatt­borg­ara. Samkvæmt minni reynslu er engin þörf fyrir þetta og væri rétt­ast að afnema. Ég er búinn að lifa í lög­fræði­heimi í hálfa öld og veit ekki betur en að menn hafi alveg kom­ist af án reglna um náms­leyfi. Þau ár sem ég var dóm­ari sló ég aldrei feil­högg í dóm­sýslu þrátt fyrir að fá aldrei svona leyfi. Það væri nú þægð í því ef þeim tæk­ist að berja þennan ósóma niður,“ segir Jón Steinar.

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ