Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Siðfræðingur segir dapurlegt að sjá að sumir fyrirtækjaeigendur létu græðgi ráða ferðinni

Siðfræðingur segir dapurlegt að sjá að sumir fyrirtækjaeigendur létu græðgi ráða ferðinni

Sið­fræð­ing­ur­inn Henry Alex­ander Henrys­son segir sorg­legt að sjá að ein­hver fyr­ir­tæki hafa nýtt hluta­bóta­leið rík­is­stjórn­ar­innar af tómri græðgi fremur en nauð­syn. Hann tekur þó fram að það krefj­ist hug­rekkis að stíga fram og við­ur­kenna mis­tök líkt og for­svars­menn nokk­urra stórra fyr­ir­tækja hafa gert und­an­farna daga.

Hvert stór­fyr­ir­tækið á fætur öðru sendir nú frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að þau muni end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun þær upp­hæðir sem hafa runnið til starfs­fólks þeirra í gegnum svo­kall­aða hluta­bóta­leið rík­is­stjórn­ar­innar. Vel stæð fyr­ir­tæki hafa sætt gagn­rýnin und­an­farna daga fyrir að nýta þetta neyð­ar­úr­ræði stjórn­valda sem sett var á lagg­irnar til að sporna gegn upp­sögnum á íslenskum vinnu­mark­aði vegna kór­ónu­veiru­far­ald­ur­ins.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur nú sagt að lögum um hluta­bóta­leið­ina verði breytt í ljósi þess að vel stæð fyr­ir­tæki hafa nýtt úrræðið á móti skertu starfs­hlut­falli starfs­manna. „Að sjálf­sögðu þá var ekki ætl­unin sú að stöndug fyr­ir­tæki væru að nýta sér þetta neyð­ar­úr­ræði til að greiða niður laun sinna starfs­manna,“ var haft eftir Katrínu í frétt Rúv.

Teygja sig í kökukrúsina af græði en ekki nauðsyn

„Í fyrsta lagi er dap­ur­legt að sjá enn og aftur hvernig fólk fellur í freistnigildrur í rekstri fyr­ir­tækja,“ segir Henry Alex­ander Henrys­son heim­spek­ingur og sið­fræð­ingur í sam­tali við Mannlíf þegar hann er beð­inn um álit á mál­inu út frá sið­ferði­legu sjón­ar­miði.

„Vissu­lega má segja að tím­arnir séu við­sjár­verðir og sjálfs­bjarg­ar­hvötin er rík á stundum sem þessum, en að sama skapi er ljóst að þarna voru sumir að teygja sig í köku­krús­ina af græðgi fremur en nauð­syn. Það að ekki hafi verið girt fyrir að maður geti sótt í til­tekin gæði þýðir ekki að maður hafi rétt á þeim. Og enn og aftur sjáum við að það er til­efni fyrir íslensk stjórn­völd að skerpa á eft­ir­liti og umsýslu fremur en að treysta á dóm­greind for­svars­manna fyr­ir­tækja.“

Hann segir að það sé á svona stundum sem mik­il­vægi fjöl­miðla krist­all­ist.

„Þar hafa fjöl­miðlar enn og aftur sýnt mik­il­vægi sitt. Fyr­ir­tæki eru ekki ein­stak­lingar sem við þurfum að fara var­lega að.“

„Þó er gott að sjá í þessu máli hvernig lýð­ræð­is­legt aðhald virkar í sam­fé­lag­inu. Stofn­anir og reglu­um­hverfi hefur virkað til að láta for­svars­menn fyr­ir­tækja svara fyrir ákvarð­anir sínar. Þar hafa fjöl­miðlar enn og aftur sýnt mik­il­vægi sitt. Fyr­ir­tæki eru ekki ein­stak­lingar sem við þurfum að fara var­lega að. Flest starfa þau með sér­stök leyfi frá sam­fé­lag­inu um tak­mark­aða ábyrgð hlut­hafa. En þótt hún sé tak­mörkuð að vissu leyti er hún það ekki frá sið­ferði­legu sjón­ar­horni. Í raun má segja að sið­ferði­lega ábyrgðin sé því meiri sem rekstr­ar­lega ábyrgðin er tak­mark­aðri.“

Krefst hugrekkis að viðurkenna mistök

Vegna umræð­unnar stíga nú for­svars­menn fyr­ir­tækja fram og við­ur­kenna mis­tök. Henry segir það vera aðdá­un­ar­vert því það krefj­ist hug­rekkis.

„Á móti kemur að mér finnst hafa verið nokkur bragur á því hvernig margir for­svars­menn hafa nú við­ur­kennt mis­tök sín – jafn­vel eftir að hafa komið í við­töl og sagst ekki ætla að gera það. Mörgum finnst kannski lítið til koma í ljósi þrýst­ings úr fjöl­miðla­um­ræðu en við skulum ekki gleyma því að það krefst alltaf hug­rekkis að við­ur­kenna mis­tök. Við höfum oft séð for­ystu­fólk for­herð­ast við sam­fé­lags­legan þrýst­ing og ég er feg­inn að við sáum það ekki ger­ast í þessu til­viki,“ segir Henry.

Hann bætir við að við­skiptasið­ferði sé flókið fyr­ir­bæri. Að það sé ekki ein­falt mál að mæla sið­ferði fyr­ir­tækja.

„Þessi saga öll varpar nokkru ljósi á hvernig við­skiptasið­ferði er að vissu leyti flókn­ara fyr­ir­bæri en við látum stundum að það sé. Á und­an­förnum árum hefur átt sér stað jákvæð þróun í átt að rík­ari sam­fé­lags­legri ábyrgð í rekstri fyr­ir­tækja á Íslandi. Og til þess að sú vinna hoppi ekki um mela og móa hafa verið settir fram fág­aðir mæli­kvarðar til að sýna fram á hvernig sú vinna gengur og hvaða fyr­ir­tæki skara framúr. Eins jákvæð og þessi vinna er, þá skulum við ekki blekkja okkur um að nú getum við ein­fald­lega mælt sið­ferði fyr­ir­tækja. Eðli sið­ferði­legra ákvarð­ana er örlítið ann­ars eðlis en margir sjá fyrir sér og þær verða ekki smætt­aðar í for­sniðna meg­in­þætti.“

Sjá einnig: Ekki ætl­unin að vel stæð fyr­ir­tæki myndu nýta úrræðið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð