Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hafdís Björg minnist Jóa stjúpföður síns: „Hann var alltaf til staðar fyrir alla, hann var maðurinn sem þú gast alltaf treyst á“

Hafdís Björg minnist Jóa stjúpföður síns: „Hann var alltaf til staðar fyrir alla, hann var maðurinn sem þú gast alltaf treyst á“
|Jói

Jóhann Trausta­son lést 31. mars, 61 árs að aldri, Jói eins og hann var ávallt kall­aður, lést eftir að hafa glímt við erfið veik­indi vegna krabba­meins í lifur.

Jói var ætt­aður frá Ísafirði, en bjó lengstan hluta ævi sinnar í Reykja­vík. Hann og eft­ir­lif­andi eig­in­kona hans, Guðbjörg Inga Guð­jóns­dóttir, Gugga, háðu lengi erf­iða bar­áttu við alkó­hól­isma, en höfðu betur í þeirri bar­áttu.

Jói Mynd / Facebook

Útför Jóa fór fram í dag í Fíla­delfíu, en vegna sam­komu­banns og aðstæðna í þjóð­fé­lag­inu var ekki hægt að halda hefð­bundna útför. Streymi var frá jarð­ar­för­inni.

Jói var vina­margur og vel lið­inn af þeim sem hann þekkti. Ein af þeim sem minn­ist hans með mik­illi ást og hlýju í dag er Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir, einka­þjálf­ari og marg­faldur íslands­meist­ari í fit­ness. Samband þeirra Jóa var náið, þar sem Hafdís Björg er stjúp­dóttir Jóa, en hann og móðir Hafdísar Bjargar voru par og giftu sig þegar Hafdís Björg var barn.

Hafdís Björg Mynd / Facebook

„Skrýtin til­finn­ing að fylgja ein­hverjum til grafar í gegnum tölvu­skjá. Til­finn­ingin er eins og maður sé að horfa á bíó­mynd sem að maður lifir sig inn í. Ég er búin að hugsa mikið um hvað ég myndi vilja segja eða skrifa um hann Jóa. Það hefur reynst mér mjög erfitt að syrgja mann sem ég þekkti svo vel fyrir mörgum árum. Maðurinn sem hann var rétt áður en hann lést var ekki maður sem ég þekkti. Mér finnst eins og hann hafi verið þrír per­sónu­leikar, fyrir neyslu, í neyslu og eftir neyslu. Svo ég hef ákveðið að syrgja þann Jóa sem að ég kynnt­ist og þekkti,“ segir Hafdís Björg og seg­ist alltaf hafa verið að finna kjarkinn sem hún þurfti til að setj­ast niður með Jóa og rifja upp þann tíma sem þau áttu saman,

„Segja honum hvað hann hafði mikil og góð áhrif á mig sem barn og skamma hann fyrir að hafa yfir­gefið okkur. Það er sagt að þegar að mann­eskja deyr þá setur maður hana á stall og man bara það góða en ég get sagt án þess að hika að það var ekk­ert slæmt við hann Jóa nema neysla hans. Jói var sá maður sem ég myndi lýsa sem hinum full­komna fjöl­skyldu faðir,“ segir Hafdís Björg, sem sjálf á stóra fjöl­skyldu, eig­in­mann og fimm syni.

„Ég man þegar að mamma kom með hann heim með stærsta bros í heimi og kynnti mig fyrir nýja kærast­anum. Um leið og ég sá hversu góð áhrif hann hafði á mömmu þá vissi ég að þetta væri góður maður. Ég hafði aldrei séð mömmu eins afslapp­aða og ham­ingju­sama eins og hún var í örm­unum hans. Þetta virt­ist allt svo áreynslu­laust og kær­leik­ur­inn var svo mik­ill. Þau komu öllum á óvart með leyni brúð­kaupi og mun ég aldrei gleyma þeim degi.“

Jói var alltaf til staðar fyrir alla

Hafdís Björg rifjar upp kosti stjúp­föð­urs síns:

„Jói var með ótrú­lega barna­legan og skemmti­legan húmor, algjör stríðnis­púki og tók líf­inu aldrei of alvar­lega. Hann var strangur en aldrei ósann­gjarn. Hann kenndi mér að við værum öll með okkar galla en við ættum að ein­blína á okkar styrk­leika og læra að elska gall­ana okkar. Hann var alltaf til staðar fyrir alla, hann var mað­ur­inn sem þú gast alltaf treyst á,“ segir Hafdís Björg.

Hún segir Jóa hafa kennt henni að gef­ast aldrei upp og rifjar upp þegar þau voru í Blá­fjöllum eftir skíða­æf­ingu. „Ég gleymi því ekki þegar að við vorum upp í Blá­fjöllum eftir eina skíða­æf­ing­una þegar að ég sagði við hann: „Ég vildi óska þess að ég myndi þora í stóla­lyft­una.“ Hann leit á mig og spurði mig hvort ég væri nokkuð loft­hrædd. Þegar að hann spurði mig að því þá hélt ég í minni ein­feldni að hann ætti við í lyft­unni. En nei þegar að við vorum komin efst upp í fjall beint úr stóla­lyft­unni skellti hann mér á háhest og renndi sér niður. Ótrúlegt en satt þá var ég ekk­ert hrædd því ég treysti honum 100%,“ segir Hafdís Björg.

Hún segir minn­ingar vera margar og dýr­mætar. „Það er svo margt sem að mig langar að skrifa en ég ætla láta það bíða þar til við tökum spjallið okkar . Ég elska þig ótrú­lega mikið og mun alltaf gera það! Hvíldu í friði elsku Jói minn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð