Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þetta lítur helvíti illa út“

„Þetta lítur helvíti illa út“

Veiði­rétt­ar­hafar eru á meðal þeirra aðila í ferða­þjón­ustu sem horfa upp á algjört hrun vegna COVID-19. Tjónið hleypur hjá einum þeirra á tugum millj­óna.

„Þetta lítur hel­víti illa út,“ segir veiði­leyfasal­inn og leið­sögu­mað­ur­inn þaul­reyndi Árni Bald­urs­son. Hann á fyr­ir­tækið Lax-á, sem hefur um ára­bil leigt veiði­svæði og selt veiði­leyfi auk þess að bjóða upp á veiði­ferðir til landa eins og Rúss­lands og Noregs. Árni sér fram á tug millj­óna tjón vegna kór­ónu­veirunnar.

Venjan er sú að erlendur veiði­maður sem kaupir veiði­leyfi greiðir helm­ing­inn við bókun en seinni helm­ing­inn þegar nær dregur. Árni segir að allt fjár­streymi til fyr­ir­tæk­is­ins sé í frosti. Enginn greiði seinni helm­ing greiðsl­unnar og allir þeir sem ekki höfðu greitt helm­ing­inn hafi afbókað. Hann seg­ist hafa gert eina til­raun til að rukka fastakúnna síð­ustu dag­anna. „Are you out of your mind?“ var svarið sem hann fékk til baka, sem þýða mætti „Ertu viti þínu fjær?“ „Þar með lauk inn­heimtu minni í mars,“ segir Árni og hlær, þrátt fyrir allt.

Þetta má ekki verða til þess að mark­aðs­starf til margra ára­tuga sé fyrir bý.

Margir veiði­rétt­ar­hafar greiða helm­ing rent­unnar til land­eig­enda í apríl, á grund­velli samn­ings. Árni er einn þeirra. Hann á von á því að vor­greiðslan geti reynst mörgum fyr­ir­tækjum á þessum mark­aði erfið. „Það verður mik­ill hrist­ingur ef það kemur ekk­ert í kass­ann,“ útskýrir hann.

Eldri menn kaupa dýrustu ferðirnar

Árni segir að flestir þeir við­skipta­vinir sem mestu eyði í veiði­ferðir hjá Lax-á séu eldri menn sem eru vel stæðir. Þeir eru jafn­framt í áhættu­hópi vegna kór­ónu­veirunnar, fyrir ald­urs sakir. Ekki bæti úr skák að bresk stjórn­völd hafi sagt eldra fólki að ferð­ast ekk­ert næstu sex mán­uð­ina en Bretar eru nokkuð áber­andi við íslenskar veiðiár á sumrin. Einnig sé búið að ákveða að loka Rúss­landi fyrir veiði allt næsta sumar og að í Skotlandi, þar sem Lax-á er með árs­væði á leigu, sé bannað að veiða.

Árni Bald­urs­son hjá Lax-á segir að tjóni hlaupi á tugum millj­óna.

„Það er búið að hætta við allt í sumar,“ segir hann um þessi svæði en utan­lands­ferðir með veiði­menn hafa verið ein stærsta tekju­lind fyr­ir­tæk­is­ins. „Þetta lítur þess vegna hörmu­lega út,“ segir Árni. Hann er von­lít­ill um að júlí, ágúst og sept­em­ber verði í lagi. „Það þýðir ekki alveg að úti­loka það, en það yrði svaka­leg heppni. Ég held að þeir komi bara ekki. Heim­ur­inn verður ekki kom­inn á lapp­irnar svona fljótt.“

Færa menn á milli ára

Árni segir að helsta úrræði veiði­leyfa­sala sé að færa menn á milli ára, sem greitt hafi helm­ing veiði­leyf­anna. Flestir kúnnar sum­ars­ins verði senni­lega færðir til næsta sum­ars. Það muni hins vegar skerða söl­una næsta sumar, svo tjónið sé mikið. „Við getum ekki borgað þeim til baka því við erum búnir að borga land­eig­endum aðra greiðsl­una. Pen­ing­ur­inn er far­inn frá okkur.“ Hann segir að tjónið hjá fyr­ir­tæk­inu hlaupi á tugum millj­óna króna og hann eigi von á því að fyr­ir­tækið nýti sér úrræði stjórn­valda um hluta­bætur. Fjórir starfs­menn vinna á skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins. Þar hafi fólk ekk­ert að gera nema taka á móti afbók­unum. „Það eru allir í að slökkva elda. Þetta er algjör hryll­ingur.“

Árni á von á því að setj­ast niður með land­eig­endum og reyna að semja um málið. Það séu allir á sama báti. Hann segir að finna verði út úr því hvort ákvæði samn­inga um óvið­ráð­an­legar ytri ástæður gildi nú. „Menn verða að standa í lapp­irnar og greiða úr þessu. Þetta má ekki verða til þess að mark­aðs­starf til margra ára­tuga sé fyrir bý.“

„Það er bara allt farið“

Kristján Páll Rafnsson er eig­andi Fish partner, sem er einn stærsti ferða­skipu­leggj­and­inn á Íslandi þegar kemur að veiði­ferðum. Fish partner gerir að stórum hluta út á urriða­svæðin á Þing­völlum á vorin. Þar eru bestu mán­uð­irnir apríl, maí og inn í júní. „Það er bara allt farið,“ segir hann um bók­anir erlendra veiði­manna yfir það tíma­bil.

Kristján segir að flestir þeir sem eru komnir yfir sex­tugt hafi afbókað ferðir allt fram í ágúst. Það séu oft veiði­menn sem kaupa fulla þjón­ustu. Yngri veiði­menn­irnir gætu komið með skömmum fyr­ir­vara.

Aðspurður seg­ist Kristján eiga í góðum sam­skiptum við land­eig­endur og að allir skilji hvað við er að eiga. „Ef allt fer á versta veg þá verða allir að taka á þessu saman. Það eru allir á sömu blað­síðu.“

Kristján Páll segir að Fish partner eigi mikið undir vor­veið­inni í urrið­anum. Þar hefur nán­ast allt verið afbókað.

Kristján á von á því að reyna að herja betur á inn­a­lands­markað í vor og sumar, en Fish partner hefur síð­ustu daga verið að aug­lýsa veiði­leyfi á sam­fé­lags­miðlum með miklum afslætti. Hann segir raunar að aðsóknin hafi verið slík að vefur fyr­ir­tæk­is­ins hafi hrunið. „Við erum vík­ingar og munum standa okkur,“ segir hann spurður hvernig hann meti fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins.

Málið í hnotskurn

Stang­veiði velti árið 2013 um 20 millj­örðum á Íslandi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Veiði­mála­stofnun. Frá árinu 2013 til 2018 lét nærri að ferða­manna­fjöldi á Íslandi hafi þre­fald­ast svo óhætt er að gera ráð fyrir umtals­vert meiri veltu. Vegna kór­ónu­veirunnar og þeirra hamla sem settar hafa verið á ferða­lög fólks sjá veiði­rétt­ar­hafar fram á erfitt sumar. Þeir sem áttu bókuð veiði­leyfi í sumar hafa flestir afboðað komu sína eða verið færðir til næsta árs. Veiði­rétt­ar­hafar eru bundnir af samn­ingum við veiði­fé­lög land­eig­enda og ber að greiða rentu vegna veiði­rétt­ar­ins. Ef sum­arið fer á versta veg er ólík­legt að veiði­rétt­ar­hafar geti staðið við sínar skuld­bind­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð