Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Enn á ný munu gammarnir fara á kreik og voma yfir eigum almennings og fyrirtækjum á vonarvöl“

„Enn á ný munu gammarnir fara á kreik og voma yfir eigum almennings og fyrirtækjum á vonarvöl“
Reynir Trausta­son, editor of Mannlíf.

„Á erf­ið­leika­tíma í sjáv­ar­út­vegi var farið þá leið að stofna tvo sjóði sem komu til hjálpar fyr­ir­tækjum. Annar sjóð­ur­inn, Atvinnu­trygg­ing­ar­sjóður, lán­aði líf­væn­legum fyr­ir­tækjum en hinn sjóð­ur­inn, Hluta­fjár­sjóður, lagði til hlutafé í fyr­ir­tæki sem voru á kafi í skuldum og á barmi gjald­þrots. Þannig varð stór­felld rík­i­s­væð­ing í sjáv­ar­út­vegi. Þessar lausnir voru góðar og gildar á erf­iðum tímum,“ segir Reynir Trausta­son í leið­ara sínum í Mannlífi.

Segir hann svo að þegar fyr­ir­tækin hófu að rétta úr kútnum þá hafi spill­ingin orðið ofan á. „Þá röð­uðu póli­tískir gæð­ingar sér á jöt­una og sumir eign­uð­ust fyr­ir­tæki eða hlut í fyr­ir­tækjum á útsölu. Hið sama er uppi á ten­ingnum núna en nú er það ferða­þjón­ustan. Fjölmörg fyr­ir­tæki eru að gef­ast upp. Sum eiga lífs­von en önnur mun deyja eða falla í eigu rík­is­ins. Þá þurfa menn að vanda sig og rjúfa tengslin á milli við­skipta og stjórn­mála. Einka­væð­ingin eftir rík­i­s­væð­ing­una verður að lúta lög­málum heið­ar­leika og gagn­sæis. Græðgi og heimska stjórn­mála­manna varð til þess að risa­vaxin og upp­blásin gróða­fyr­ir­tæki komust yfir eigur hinna fátæku.“

Eftirmálar Hrunsins

Reynir rifjar einnig upp spill­ing­una sem var í eft­ir­málum Hrunsins. „Þúsundir fjöl­skyldna voru sviptar heim­ilum sínum og send á Guð og gadd­inn. Úti fyrir vomuðu hræ­fugl­arnir. Græðgi og heimska stjórn­mála­manna varð til þess að risa­vaxin og upp­blásin gróða­fyr­ir­tæki komust yfir eigur hinna fátæku og for­smáðu. Gamm­arnir, sum­part með hjálp spilltra líf­eyr­is­sjóða, fengu að kaupa íbúðir sem teknar höfðu verið af fólki sem burð­að­ist með ólög­leg geng­is­tryggð lán,“ segir Reynir. „Við þekkjum svo eft­ir­leik­inn. Burgeis­arnir lögð­ust í hóg­lífi fyrir arð­inn af eigum hinna fátæku. Oflát­ungs­hátt­ur­inn varð yfir­þyrm­andi. Hinir nýríku sönk­uðu að sér lista­verkum á vinnu­stöðum sínum og skál­uðu í kampa­víni á meðan almenn­ingur lifði skort. Vinir og vanda­menn fengu að njóta mol­anna af gnægt­ar­borði fast­eigna­kóng­anna. Sagan um Bjart í Sum­ar­húsum mynd­gerð­ist um, allt land. Leigu­liðar þjáð­ust undir oki nýríkra leigu­sala. Allt í boði stjórn­mála­manna sem ýmist glímdu við skort á viti eða höfðu hag af því að færa eignir frá hinum snauðu yfir til þeirra ríku.“

Hvað gerist eftir COVID-19?

Ljóst er að næstu miss­eri munu mörg fyr­ir­tæki þurfa á hjálp að halda til að lifa krepp­una. „Fjár­mála­ráð­herra hefur boðað inn­grip og aðstoð við fyr­ir­tæki í vanda. Þetta mun ger­ast með tvennum hætti. Fyr­ir­tæki fá rekstr­ar­lán með því að sleppa við greiðslu opin­berra gjalda. Önnur fyr­ir­tæki fá nið­ur­greitt vinnu­afl með því að fólk fer í hluta­störf. Þriðji hóp­ur­inn verður yfir­tek­inn af rík­inu,“ segir Reynir, og telur að gamm­arnir muni aftur láta á sér kræla.

„Enn á ný munu gamm­arnir fara á kreik og voma yfir eigum almenn­ings og fyr­ir­tækjum á von­ar­völ. Þá er áríð­andi að skyn­samir, vel­mein­andi stjórn­mála­menn gæti þess vand­lega að flokks­gæð­ingum verði ekki umb­unað á kostnað heið­ar­legra borg­ara. Spill­ingin er fylgi­fiskur mann­kyns­ins og mun alltaf verða til staðar. En verk­efnið er að halda henni niðri eins og kostur er. Umfram allt má ekki níð­ast á lít­il­mögnum í krafti póli­tískra áhrifa og gráð­ugra ein­stak­linga. Við skulum láta eft­ir­leik Hrunsins okkur að kenn­ingu verða og gæta þess að ill­gresið leggi ekki undir sig sam­fé­lagið með til­heyr­andi harm­leikjum. Næstu mán­uð­ina er mik­il­vægt að standa vakt­ina og tryggja sem flestum skjól gegn gömmum og nöprum vindum. Látum upp­ris­una eftir kreppu veirunnar markast af rétt­sýni, samúð og heið­ar­leika. Mennskan á að verða í önd­vegi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð