Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hjörvar ánægður en Inga óttaslegin

Hjörvar ánægður en Inga óttaslegin

Hjörvar Haf­liða­son greindi frá gleði­tíð­indum í vik­unni en Inga Sæland átti ekki sjö dag­ana sæla.

Góð vika – Hjörvar Haf­liða­son
„Það er afskap­lega ánægju­legt að vera kom­inn aftur.“ Hjörvar Haf­liða­son gat ekki leynt gleði sinni þegar kunn­gjört var í vik­unni að hann hefði verið ráð­inn aftur til starfa sem sér­fræð­ingur í fót­boltaum­fjöllun á Stöð 2 Sport, eftir að hafa verið sagt upp ásamt tólf öðrum hjá Sýn á síð­asta ári. Sam­sær­is­kenn­ingar voru uppi um að hið vin­sæla en umdeilda hlað­varp Hjörvars, Dr. Football, hefði átt þátt í því að fjöl­miðla­mað­ur­inn geð­þekki var lát­inn fjúka en stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins vildu meina að upp­sagn­irnar væru liður í sam­ein­ingu Vodafone og 365. Hvað sem því líður er ljóst að bæði fót­boltaunn­endur og yfir­menn hjá fyr­ir­tæk­inu eru ánægðir með að fá sinn mann aftur, „enda ein­hver mesti spek­ingur um fót­bolta sem við eigum“, eins og fram­kvæmda­stjóri fjöl­miða hjá fyr­ir­tæk­inu lýsti yfir, og „til við­bótar við það er hann fanta­góður sjón­varps­maður“. Hjörvar verður með í umfjöllun um Meist­ara­deild Evrópu og Pepsi Max deild karla og seg­ist sjálfur mæta extra frískur aftur til leiks, eftir „smá­frí“.

Slæm vika – Inga Sæland
Inga Sæland hefur ekki átt sjö daga sæla eftir að fréttir fóru að ber­ast af kór­óna­veirusmitum á einum af vin­sælli áfanga­stöðum íslenskra túrista í vik­unni, eynni Tenerife. Inga, sem hefur vaðið eld og brenni­stein í bar­áttu sinni fyrir vel­ferð íslenskra borg­ara, lýsti því yfir að grípa þyrfti til rót­tækra aðgerða til að sporna við komu veirunnar hingað til lands, leggja áætl­ana­flug Íslend­inga til Tene niður taf­ar­laust og senda Íslend­inga á leið þaðan beint í sótt­kví í Egils­höll. Þessum hug­myndum þing­kon­unnar hefur hins vegar verið tekið fálega og þannig gat Anna Krist­jáns­dóttir, íbúi á Tenerife, ekki stillt sig um að stinga upp á því í háði að land­inu verði frekar lokað fyrir öllu flugi frá útlöndum, skip frá útlöndum sett í sótt­kví með hafn­banni og lands­menn skríði bara aftur inn í mold­ar­kof­ana. Inga, sem er ekki vön að lúffa, seg­ist vera slétt sama þótt hún sé sökuð um hræðslu­á­róður, „þá bara so be it“. Öryggi þjóð­ar­innar sé í húfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð