Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þau eru tilnefnd til Blaðamannaverðlauna 2019

Þau eru tilnefnd til Blaðamannaverðlauna 2019

Dómnefnd Blaða­manna­verð­launa hefur ákveðið til­nefn­ingar sínar í öllum fjórum flokkum verð­laun­anna, en sjálf verð­launin verða síðan afhent í verð­launa­at­höfn í Pressu­kúbbnum í húsa­kynnum BÍ að Síðumúla 23  eftir slétta viku eða föstu­dag­inn 6. mars.

Blaða­manna­verð­launin eru veitt í fjórum flokkum, Besta umfjöllun árs­ins, Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins, Viðtal árs­ins og Blaða­manna­verð­laun árs­ins, og sam­kvæmt reglu­gerð verð­laun­anna skilar dóm­nefndin þremur til­nefn­ingum í hverjum flokki viku fyrir sjálfa verð­launa­af­hend­ing­una.

Til­nefn­ingar dóm­nefndar eru eft­ir­far­andi:

Besta umfjöllun

Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir, RÚV. Fyrir þátta­röð­ina Lofts­lags­þerapían. Þætt­irnir eru vand­aðir og yfir­grips­miklir þar sem varpað er nýju ljósi á lofts­lags­vána með því að skoða snertifleti hennar við það mann­lega í sam­fé­lag­inu, sið­ferði, til­finn­ingar, sál­fræði, trú­ar­brögð og póli­tík. Um er að ræða per­sónu­lega og frum­lega nálgun að umfjöllun um eitt stærsta verk­efni sam­tím­ans.

Alma Mjöll Ólafs­dóttir, Jóhann Páll Jóhanns­son, Margrét Mart­eins­dóttir, og Steindór Grétar Jónsson, Stund­inni. Fyrir umfjöllun um ham­fara­hlýnun. Í yfir­grips­mik­illi og vand­aðri umfjöllun fjalla blaða­menn Stund­ar­innar um fyr­ir­séðar afleið­ingar og birt­ing­ar­myndir lofts­lags­vár hér á landi og víðar, aðgerðir stjórn­valda og við­leitni ein­stak­linga til þess að vega upp á móti skað­legum umhverf­is­á­hrifum sem stafað geta af dag­legu lífi fólks.

Magnús Hall­dórs­son og Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum. Fyrir umfjöllun um efna­hags­mál. Í fjöl­mörgum og upp­lýsandi frétta­skýr­ingum vörp­uðu Magnús og Þórður Snær ljósi á þróun efna­hags­mála á umbreyt­inga­tímum síð­asta árs, þegar sam­dráttur tók við af all­löngu góð­ær­is­tíma­bili. Um er að ræða afar vand­aða umfjöllun þar sem efni­viður frétta úr við­skipta- og efna­hags­lífi er greindur og settur fram á skil­merki­legan og skilj­an­legan hátt.

Viðtal ársins

Orri Páll Orm­ars­son, Morg­un­blað­inu. Fyrir við­tal við Sævar Þór Jónsson lög­mann. Í við­tal­inu er á næman og nær­gæt­inn hátt fjallað um afar við­kvæmt mál­efni, kyn­ferð­is­of­beldi sem við­mæl­and­inn varð fyrir á barns­aldri og þau djúp­stæðu áhrif sem atburð­ur­inn hafði á líf hans. Viðtalið, sem er lif­andi og lip­ur­lega skrifað, fangar athygli les­and­ans og heldur henni þar til frá­sögn­inni er lokið.

Erla Björg Gunn­ars­dóttir, Nadine Guðrún Yaghi, og Jóhann K. Jóhanns­son, Kompási, Frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir við­tal og umfjöllun um barn sem var lokað inni á heim­ili með geð­veikri móður. Vandað við­tal við 17 ára stúlku, Margréti Lillý Ein­ars­dóttur, sem lýsir því hvernig sam­fé­lagið brást henni þegar hún á grunn­skóla­aldri ólst upp ein hjá móður sem átti við bæði geð­rænan vanda og fíkni­vanda að stríða. Viðtalið vakti verð­skuld­aða athygli og var fylgt eftir með fjölda frétta um stöðu barna í við­kvæmri stöðu, starf­semi barna­vernd­ar­nefnda og fleiri þætti og leiddi meðal ann­ars til þess að bæj­ar­stjóri Sel­tjarn­ar­ness baðst form­lega afsök­unar á því hvernig staðið var að málum í til­viki Mar­grétar Lillýar.

Ari Brynj­ólfs­son, Frétta­blað­inu. Fyrir við­tal við fjóra erlenda vagn­stjóra. Í lif­andi og skemmti­legu við­tali sem fangar og heldur athygli les­enda ræðir Ari við fjóra erlenda vagn­stjóra hjá Strætó sem lýsa lífi sínu, starfi og sam­skiptum við far­þega. Viðtalið sýnir mann­eskjur á bak við störf og þjóð­erni. Viðtalið sem vekur les­endur meðal ann­ars til umhugs­unar um hvernig hér er komið fram við starfs­fólk sem er af erlendu bergi brotið. Tæknileg útfærsla á við­tali við fjóra ein­stak­linga í senn er afskap­lega vel úr hendi leyst.

Rannsóknarblaðamennska

Aðal­steinn Kjart­ans­son og Stefán Drengs­son, Kveik. Fyrir umfjöllun um Procar-málið. Afhjúpun Kveiks um að bíla­leigan Procar hefði stundað svindl á neyt­endum með því að færa niður kíló­metra­stöðu bíla­leigu­bíla áður en þeir voru seldir vakti hörð við­brögð og sýndi fram á alvar­lega brota­löm í við­skiptum með not­aða bíla­leigu­bíla. Umfjöll­unin byggði á heim­ildum og öfl­ugri rann­sókn­ar­vinnu sem skil­aði sér í afhjúpun sem hefur haft afdrifa­rík áhrif á við­skipti með not­aða bíla.

Aðal­steinn Kjart­ans­son, Helgi Seljan, Ingi Freyr Vil­hjálms­son og Stefán Drengs­son, Kveik og Stund­inni. Fyrir umfjöllun um Sam­herj­a­málið. Fá mál vöktu meiri athygli í íslensku sam­fé­lagi en umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar í sam­vinnu við Al Jazeera og Wikileaks um ásak­anir á hendur Samherja um mútu­greiðslur í tengslum við starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Umfjöll­unin byggði stað­hæf­ingum fyrrum starfs­manns Samherja í Namibíu og miklu magni gagna sem einnig voru gerð aðgengi­leg almenn­ingi á net­inu sam­hliða birt­ingu frétta af mál­inu. Umfjöll­unin hefur haft mikil áhrif, bæði hér heima og erlendis.

Stefán Einar Stef­áns­son, Morg­un­blað­inu. Fyrir bók­ina „Wow, ris og fall flug­fé­lags“ ásamt fréttum og frétta­skýr­ingum um sama mál í Við­skipta­Mogg­anum. Gjald­þrot Wow air er tví­mæla­laust eitt stærsta frétta­mál síð­asta árs og afleið­ingar þess gríð­ar­legar bæði á ein­stak­linga og efna­hags­líf. Í ítar­legum fréttum, frétta­skýr­ingum og bók um málið hefur Stefán Einar dregið fram í marg­vís­lega fleti tengda starf­semi Wow, sögu flug­fé­lags­ins og eft­ir­mála gjald­þrots­ins. Frétt­irnar er vand­aðar og ítar­legar, bókin lip­ur­lega skrifuð og upp­lýsandi um ris og falls flug­fé­lags, sem hafði mikil áhrif á íslenskt þjóð­líf.

Blaðamannaverðlaun ársins

Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir, mbl.is. Fyrir greina­flokk­inn Skóli fyrir alla. Um er að ræða yfir­grips­mikla röð frétta og frétta­skýr­inga um stöðu skóla­mála á Íslandi út frá því sjón­ar­horni að menntun sé mann­rétt­indi sem allir eigi að njóta. Umfjöll­unin varpar ljósi á stöðu mála og veltir upp flötum þar sem úrbóta er þörf, svo sem varð­andi skýr­leika námskrár og sam­ræmis í vinnu­að­ferðum á milli, og jafn­vel innan ein­stakra skóla.

Arnar Páll Hauksson, Spegl­inum, RÚV. Fyrir umfjöllun um kjara­mál. Arnar Páll hefur af djúpri þekk­ingu og ára­langri yfir­sýn fjallað um kjara­mál með afar vönd­uðum hætti í ótal fréttum og frétta­skýr­ingum á tímum mik­ils umróts á vinnu­mark­aði. Hann hefur fjallað ítar­lega um hug­myndir og til­lögur sem lagðar hafa verið fram í kjara­við­ræðum og flytur iðu­lega fyrstu fréttir af þróun mála.

Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir, Stund­inni. Fyrir vönduð við­töl og umfjall­anir. Í fjölda frétta, frétta­skýr­inga og við­tala hefur Hólm­fríður Helga sýnt afar vönduð vinnu­brögð í umfjöllun um marg­vís­leg við­kvæm mál­efni og brotala­mir í íslensku sam­fé­lagi. Má þar nefna vand­aða umfjöllun um stöðu kvenna frá löndum utan EES sem hafa fest í ofbeld­is­sam­böndum hér á landi og upp­lýsandi við­töl og umfjöllun um fjöl­skyldur sem fundið hafa skjól á Íslandi eftir erf­ið­leika í heima­löndum sínum. Hólm­fríður hefur lagt mikið af mörkum við að lyfta röddum og greina frá reynslu fólks sem ekki á jafn­greiðan aðgang að fjöl­miðlum og margir aðrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð