Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fréttum dagblaðanna alfarið stýrt af körlum

Fréttum dagblaðanna alfarið stýrt af körlum
|Alda Rose Cartwright

Engin kona er í hópi rit- og frétta­stjóra á Morg­un­blað­inu og Frétta­blað­inu, eftir breyt­ingar hjá Torgi í vik­unni. Fram­kvæmda­stjóri Jafn­rétt­is­stofu segir stöð­una ekki í anda jafn­rétt­islaga. Rann­sóknir sýna að kyn rit­stjóra skiptir máli þegar kemur að fréttaum­fjöll­unum.

Engin kona er við stjórn inn­lendra eða erlendra frétta á rit­stjórnum þeirra tveggja stóru miðla sem gefa út dag­blöð á Íslandi, hvorki á prenti né á vef. Þetta varð ljóst þegar Torg til­kynnti í vik­unni um að Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir léti af störfum sem rit­stjóri Frétta­blað­ins.is. Nú rit­stýrir Kristjón Kormákur Guð­jóns­son Frétta­blað­inu.is og Hring­braut.is einn.

Katrín Björg Rík­harðs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Jafn­rétt­is­stofu, segir í sam­tali við Mannlíf að staðan á þessum miðlum, þegar horft er til stjórn­enda, sé ekki í anda jafn­rétt­islaga. Markmið lag­anna sé að við­halda jafn­rétti og jöfnum tæki­færum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynj­anna á öllum sviðum sam­fé­lags­ins. Hún bendir á að atvinnu­rek­endum sé lögum sam­kvæmt skylt að vinna að því að jafna stöðu kynj­anna innan fyr­ir­tækis síns og stuðla að því að störf flokk­ist ekki í kvenna- og karla­störf. Sérstaka áherslu skal leggja á að jafna hlut kynja í stjórn­unar- og áhrifa­stöðum. „Mér sýn­ist hrein­lega, ef horft er til orða­lags jafn­rétt­islag­anna, að stjórn­un­ar­störf séu orðin að karla­störfum á þessum fjöl­miðlum,“ segir hún.

Átta karlar stýra Mogganum

Á Morg­un­blað­inu eru tveir aðal­rit­stjórar, Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen. Karl Blöndal er aðstoð­ar­rit­stjóri. Guð­mundur Her­manns­son er frétta­stjóri á blað­inu, og Björn Jóhann Björns­son aðstoð­ar­frétta­stjóri. Frétta­stjóri við­skipta er Stefán Einar Stef­áns­son. Á vefnum mbl.is er frétta­stjóri Jón Pétur Jónsson en aðstoð­ar­frétta­stjóri Þor­steinn Ásgríms­son. Með öðrum orðum eru þeir átta ein­stak­lingar sem stýra frétta­flutn­ingi hjá Morg­un­blað­inu karlar. Eftir því sem Mannlíf kemst næst eru sér­stakir kvöld­frétta­stjórar einnig allir karlar.

Katrín Björg Rík­harðs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Jafn­rétt­is­stofu, segir að staðan á Morg­un­blað­inu og Frétta­blað­inu sé ekki í anda jafn­rétt­islaga.

Þegar horft er á und­ir­flokka, aðra en við­skipta­f­réttir, sem Stefán Einar stýrir, sést að menn­ing­ar­rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins er karl, rétt eins og yfir­maður íþrótta­f­rétta. Eina konan sem þar kemst á lista er Marta María Jón­as­dóttir sem er rit­stjóri dæg­ur­mála á mbl.is.

Afturför hjá Fréttablaðinu

Staðan er ekki betri á Frétta­blað­inu, eftir upp­sögn Sunnu Karenar Sig­ur­þórs­dóttur, rit­stjóra vefs Frétta­blaðs­ins. Stutt er síðan Ólöf Skafta­dóttir lét af störfum sem rit­stjóri blaðs­ins og Kristín Þor­steins­dóttir sem útgef­andi. Á Frétta­blað­inu er Jón Þórisson aðal­rit­stjóri í dag en Davíð Stef­áns­son, sem hefur verið rit­stjóri und­an­farna mán­uði, var lát­inn fara í vik­unni. Kristjón Kormákur Guð­jóns­son er rit­stjóri Frétta­blaðs­ins.is og Hring­brautar en Ari Brynj­ólfs­son og Garðar Örn Úlf­ars­son voru í vik­unni kynntir sem nýir frétta­stjórar Frétta­blaðs­ins. Við­skipta­blaða­mað­ur­inn Hörður Ægisson er rit­stjóri Mark­að­ar­ins.

Eina konan sem hefur rit­stjóra­titil hjá Frétta­blað­inu er Björk Eiðs­dóttir, rit­stjóri helg­ar­blaðs­ins, en þar er áhersla á dæg­ur­mál, við­töl og menn­ingu. Þá er Kolbrún Berg­þórs­dóttir yfir menn­ing­ar­um­fjöllun.

Betra ástand á öðrum fjölmiðlum

Aðra sögu er að segja af öðrum íslenskum fjöl­miðlum. DV og Stund­inni, sem gefa út fáein blöð í mán­uði, er stýrt af konum. Rit­stjóri DV er Lilja Katrín Gunn­ars­dóttir en Einar Þór Sig­urðs­son er aðstoð­ar­rit­stjóri. Hjá Stund­inni eru þau Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og Jón Trausti Reyn­is­son rit­stjórar.

Fréttum á RÚV er einnig stýrt af konu. Rakel Þor­bergs­dóttir er frétta­stjóri RÚV en tveir vara­f­rétta­stjórar, Broddi Brodda­son og Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, eru karlar. Taka má fram að útgáfu­stjóri Mannlífs er Roald Eyvinds­son og Hólm­fríður Gísla­dóttir er frétta­stjóri.

Þórir Guð­munds­son er rit­stjóri frétta­stofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgj­unnar. Kolbeinn Tumi Daðason er frétta­stjóri Vísis og Hrund Þórs­dóttir frétta­stjóri Stöðvar 2. Sunna Kristín Hilm­ars­dóttir er stað­geng­ill frétta­stjóra á Vísi. Á þessum miðlum eru kynja­hlut­föll á meðal stjórn­enda því jafn­ari en á dag­blöð­unum.

Katrín Björg segir að þetta snú­ist um fjöl­breytni. „Fjöl­miðlar eru það áhrifa­ríkir að stjórn­endur þeirra ættu að vilja end­ur­spegla fjöl­breyti­leika sam­fé­lags­ins. Við gerum ekki ráð fyrir því að ein­ungis karlar hafi áhuga á því sem tekið er til umfjöll­unar í þessum miðlum. Það hlýtur að þurfa að vera sam­svörun þarna á milli.“ Hún bendir á að ýmsir aðrir fjöl­miðlar leggi sér­staka rækt við að jafna kynja­hlut­fall, meðal ann­ars þegar kemur að við­mæl­endum. „En þarna virð­ist vera eitt­hvert gler­þak sem konur ná ekki upp í gegn.“

***

Áratugir aftur í tímann

„Þetta er bakslag. Það er alla vega verið að fara ára­tugi eða tvo aftur í tím­ann,“ segir blaða­mað­ur­inn Anna Lilja Þór­is­dóttir um kynja­halla á dag­blöð­unum. Anna Lilja gegndi stöðu frétta­stjóra hjá Morg­un­blað­inu áður en henni var sagt upp í nóv­em­ber. Hún er nú blaða­maður á Stund­inni auk þess að vera stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands, þar sem hún kennir nem­endum í meist­ara­námi í blaða- og frétta­mennsku. Hún bendir á að þar hafi konur verið í miklum meiri­hluta þeirra sem útskrif­ast, eða 75 pró­sent að jafn­aði. „Hafi ein­hver í jafn­rétt­is­bar­átt­unni haldið að menntun myndi skila konum fleiri ábyrgð­ar­stöðum þá er sú ekki raunin,“ segir hún og tekur fram að þetta gildi um fleiri fag­stéttir.

Anna Lilja Þór­is­dóttir segir að konur hafi und­an­farin ár verið í miklum meiri­hluta nem­enda í meist­ara­námi í blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands.

Kynja­halli á rit­stjórnum er vanda­mál víðar en á Íslandi. Poynter Institute, þekktasta stofnun Banda­ríkj­anna á sviði blaða­mennsku og rit­stjórna, hefur bent á að konur skipi aðeins þriðj­ung starfa á rit­stjórnum í Banda­ríkj­unum, þó að árum saman hafi ríf­lega tveir þriðju hlutar þeirra sem útskrif­ast úr námi í blaða­mennsku og almanna­tengslum verið konur.

Anna Lilja segir það af og frá að konur vilji ekki gegna ábyrgða­stöðum á fjöl­miðlum. Konur vilji þvert á móti taka ábyrgð. Í stétt blaða­manna séu margar mjög reynslu­miklar og vel mennt­aðar konur. „Það virð­ist ekki vera horft til þeirra þegar ráðið er í þessar stöður,“ segir hún og spyr hvers vegna önnur lög­mál ættu að gilda um fjöl­miðla­rekstur en um annan rekstur – besta útkoman fáist þegar sem fjöl­breytt­astur hópur kemur að málum. „Þessar tölur eru engin til­viljun og sýna ein­fald­lega að jafn­rétt­is­mál virð­ast ekki skipta stjórn­endur þess­ara fjöl­miðla miklu máli.“

Karlarnir neikvæðari

Í banda­rískri rann­sókn sem gerð var árið 2004 voru efn­is­tök og áherslur frétta­miðla skoð­aðar með hlið­sjón af kyni rit­stjóra. Greining á 30 frétta­miðlum sýndi ekki mik­inn mun á efn­is­tökum, eftir því hvort konur voru áber­andi á meðal þeirra sem gegndu rit­stjóra­stöðum eða ekki. Hins vegar reynd­ist nokkur munur á þeim verk­efnum sem kven­kyns­blaða­mönnum var úthlutað, eftir því hvort aðal­rit­stjóri var karl eða kona. Ekki var merkj­an­legur munur á efn­is­tökum blaða­manna eftir kyni, á þeim rit­stjórnum sem konur og karlar voru jöfnum höndum við stjórn­völ­inn. Þar sem karlar voru ráð­andi voru konum hins vegar falin önnur við­fangs­efni en körlum. Auk þess reynd­ust fjöl­miðlar sem karlar stýrðu velja nei­kvæð­ari útgangs­punkt í fréttum.

Önnur rann­sókn sem birt var í Springer Nature 2018 þar sem rýnt var í 212 banda­rísk dag­blöð á árunum 2004 til 2009, sýndi að fjallað var um konur á jákvæð­ari hátt eftir því sem hærra hlut­fall var af konum á rit­stjórnum. Þó var tekið fram að konum var ekki hyglað sér­stak­lega. Í nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar var bent á að jákvæðar eða nei­kvæðar umfjall­anir fjöl­miðla geta haft mikil áhrif á líf fólks og frama.

Umfjöll­un­ina má finna í nýjasta Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð