Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þjóðaríþrótt að tala gildi menntunar niður

Þjóðaríþrótt að tala gildi menntunar niður
„Það er að verða eins og þjóðar­í­þrótt að tala gildi mennt­unar niður rétt eins og við séum stödd í land­bún­að­ar­sam­fé­lag­inu fyrir hund­rað árum eða svo

Í umræðum um yfir­stand­andi kjara­deilur Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar hefur farið æ meira fyrir þeirri skoðun að ekki beri að meta menntun til launa. Nýlega tjáði Kári Stef­áns­son þá skoðun sína á Pírata­spjall­inu við góðar und­ir­tektir. Hvað finnst for­svars­fólki háskóla­fólks um þessa umræðu? Mannlíf leit­aði svara við því hjá Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur, for­manni BHM.

Mér finnst þetta að mörgu leyti mjög athygl­is­verð umræða,“ segir Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður Banda­lags háskóla­manna, BHM, spurð hvað henni finn­ist um þá umræðu að ekki sé ástæða til að meta menntun til launa. „Það hlaupa allir upp til handa og fóta þegar Kári Stef­áns­son segir eitt­hvað. Hann er for­stjóri í einu stærsta þekk­ing­ar­fyr­ir­tæki á Íslandi þar sem svo að segja hver ein­asta sála er með háskóla – gráðu og jafn­vel margar. En gott og vel. Það sem ég hef áhyggjur af í þess­ari umræðu í sam­fé­lag­inu er að það er að verða eins og þjóðar­í­þrótt að tala gildi mennt­unar niður rétt eins og við séum stödd í land­bún­að­ar­sam­fé­lag­inu fyrir hund­rað árum eða svo. Það er ekki gott af svo mörgum ástæðum, sú nær­tæk­asta er kannski sú að við erum í miðri fjórðu iðn­bylt­ing­unni þar sem snjall­væð­ingin ríður yfir og alls konar störfum fækkar. Það á auð­vitað bæði við um störf sem krefj­ast ekki mik­illar fag­mennt­unar og önnur störf. Við horfum til dæmis á fækkun starfs­fólks í íslenskum bönkum sem hefur fækkað um um nokkur hund­ruð á síð­ustu tveimur árum .“

Þórunn segir að það sem þau hjá BHM vilji og reyni auð­vitað að vekja athygli séu ein­faldar stað­reyndir um það hvað það þýðir að afla sér háskóla­mennt – unar. „Þar er fyrst að telja að þegar fólk fer í lang­skóla­nám þá er það að tapa verð­mæt­ustu árunum í söfnun líf­eyr­is­rétt­inda. Nú er búið að sam – ræma líf­eyr­is­kerfi opin­bera og almenna vinnu­mark­að­ar­ins og rétt­indin eru orðin ald­urstengd sem þýðir að mesta ávinnslan er þegar fólk er yngst. Fólk sem fer í lang­skóla­nám er ekki að ávinna sér líf­eyr­is­rétt­indi á þessum árum. Í öðru lagi er háskóla­menntun fjár­fest­ing bæði fyrir ein­stak­linga og sam­fé­lag. Menntun og þekk­ingaröflun eru afl­vaki fram­fara í sam­fé­lag­inu og und­ir­staða góðra lífs­kjara, bæði hér og ann­ars staðar. Í þriðja lagi taka 85 pró­sent þeirra sem eru í BHM náms­lán, auð­vitað mis­mikil en mjög mörg okkar eru að greiða það sem sam­svarar einum ráð­stöf­un­ar­tekjum á ári af þeim langt fram á sex­tugs­aldur eða lengur. Þetta með ávinnslu líf­eyr­is­rétt­inda og end­ur­greiðslu­byrði náms­lána eru bein­harðar efna­hags­legar stað­reyndir um kjör háskóla­mennt­aðs fólks sem við viljum og krefj­umst að tekið sé til­lit til við ákvörðun launa.“

Þarf meira en handlagni til að verða heilaskurðlæknir

Snýst þetta þá bara um launatap á meðan á námi stendur og upp­greiðslur náms­lána, hefur mennt­unin í sjálfu sér ekk­ert gildi þegar horft er til launa? „Jú, fólk aflar sér sér­þekk­ingar sem skiptir máli í sam­fé­lag­inu,“ segir Þórunn. „Nær­tæk­ast er að taka dæmi af heil­brigð­is­stéttum og mennta­stéttum sem sinna almanna­þjón­ustu sem við erum von­andi öll sam­mála um að þurfi að veita. Það hljómar kannski flippað en þú þarft meira en að vera hand­lag­inn til þess að verða heila­skurð­læknir. Ég ætla ekki að gera lítið úr þeirri gleði sem felst í því að eiga þess kost að afla sér mennt­unar en það er hjá­kát­legt að heyra fólk halda því fram að það sé aðal­málið að fólk sé í skemmti­legri vinnu, eins og oft er sagt til að verja lág laun lista­manna, til dæmis. Það er ekki hægt að afgreiða málið með slíkum smjör­klípum.“

Spurð um kjara­deil­una sem nú er í gangi milli Eflingar og borg­ar­innar segir Þórunn að það sé alveg rétt að leik­skólar séu að stórum hluta mann­aðir af öðrum en leik­skóla­kenn­urum, og auð­vitað þurfi að taka til­lit til þess í launum ófag­mennt­aðs starfs­fólks ef það sinnir þeim störfum og ber þá ábyrgð sem leik­skóla­kenn­arar ættu að gera. En telur hún að það sé til­viljun að þessi umræða um að meta ekki menntun til launa og það að etja saman fag­lærðum og ófag­lærðum starfs­mönnum sé mest áber­andi í svoköll­uðum kvenna­stéttum? „Nei, ég efast um það,“ segir hún. „Og það er gömul saga og ný að það er ágætt að leyfa þeim sem minna hafa að bít­ast um brauð­mol­ana. Og ég tek undir með Drífu Snædal, for­seta ASÍ, og við höfum allar sagt það kon­urnar sem erum í for­ystu fyrir launa­fólkið í land­inu, að stóri vand­inn á vinnu­mark­aði á Íslandi er þessi kyn­bundni vandi, það er að segja laun og kjör kvenna­stétta almennt og tregðan til að hækka þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð