Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Forstjóralaun – Úr axlarlið

Forstjóralaun – Úr axlarlið

Góð vika – Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar

Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Össurar, hefur fulla ástæðu til að brosa þessa dag­ana, þó ekki væri nema út í annað munn­vikið, þar sem greint var frá því í vik­unni að hagn­aður Össurar á síð­asta ári hafi verið 69 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 8,5 millj­arðar íslenskra króna. Jújú, fyr­ir­tækið skil­aði kannski minni hagn­aði í fyrra miðað við árið á undan þegar hann var um 10 millj­arðar, en það er engin ástæða að henda sér í gólfið og grenja yfir 8,5 millj­örðum króna, langt í frá. Jón hefur stýrt Össuri um ára­bil og þykir hafa gert það með sóma, enda álit­inn lunk­inn í við­skiptum. Sem dæmi vakti athygli þegar Við­skipta­blaðið greindi frá því í ágúst árið 2015 að Jón hefði nýtt sér kaup­rétt á bréfum í fyr­ir­tæk­inu og selt þau strax á tölu­vert hærra verði en hann keypti þau á og þannig grætt litlar 367 millj­ónir – á sex mín­útum (!). Ekki ama­legt fyrir mann sem hefur látið hafa eftir sér í við­tölum að hann sé slugsi frá Selfossi sem hafi fallið bæði á gagn­fræði­próf­inu sínu og inn­töku­próf­inu í raf­virkja­nám.

Slæm vika – Gísli Þorgeir Kristjánsson

Það virð­ist ekki eiga af Gísla Þorgeiri Krist­jáns­syni að ganga. Hinn ungi og upp­renn­andi lands­liðs­maður í hand­bolta og leik­maður Mag­deburg fékk þungt högg á vinstri öxl í leik liðs­ins og Flens­burg í efstu deild Þýska­lands á mánu­dag og mun þurfa að gang­ast undir aðgerð á öxl og við­beini. Eins og kunn­ugt er missti Gísli af Evr­ópu­mót­inu í hand­bolta í jan­úar eftir að hafa farið úr vinstri axl­ar­lið í leik með þáver­andi liði sínu, Kiel, í nóv­em­ber og ollu meiðslin því að hann gat lítið spilað með Kiel. Í ljósi þess vildu sumir meina að samn­ing­ur­inn við Mag­deburg hafi komið eins og himna­send­ing og Gísli sjálfur von­að­ist til að geta loks sýnt sitt rétta and­lit hjá lið­inu. Meiðslin í leiknum á mánu­dag gerðu þann draum að engu, alla vega í bili, þar sem Gísli kemur ekki til með að spila meira með lið­inu á þess­ari leik­tíð. Faðir hans, hand­bolta­kempan Kristján Arason, kveðst full­viss um að son­ur­inn mæti fullur af krafti þegar næsta tíma­bil hefst og því ekki annað gera en að krossa fingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ