Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hópleitin flytur en mörgum spurningum ósvarað

Hópleitin flytur en mörgum spurningum ósvarað
Mynd / Unnur Magna|Óskar Sesar Reyk­dals­son||Alma D. Möller land­læknir|Halla Þor­valds­dóttir fram­kvæmda­stjóri Krabba­meins­fé­lags Íslands|Maríanna Garð­ars­dóttir for­stöðu­maður rann­sókna­þjón­ustu LSH||Mynd / Unnur Magna|Mynd / Unnur Magna|Mynd / Unnur Magna

Samkvæmt ákvörðun heil­brigð­is­ráð­herra mun skimun eftir krabba­meinum flytj­ast frá Krabba­meins­fé­lag­inu og á hendur opin­berra aðila um ára­mótin. Ákvörð­unin er tekin í sam­ræmi við til­lögur skimun­ar­ráðs en þrátt fyrir að lít­ill tími sé til stefnu er margt á huldu um útfærslur og ekki síst hvernig þjón­ustan verður fjár­mögnuð.

Fyr­ir­hugað er að flytja hóp­leit að krabba­meinum frá Krabba­meins­fé­lagi Íslands til hins opin­bera. Krabba­meins­fé­lagið átti frum­kvæði að skimun­unum og hefur sinnt þeim ára­tugum saman. Frá og með ára­mótum munu skimanir vegna brjóstakrabba­meina hins vegar flytj­ast til Land­spít­ala og Sjúkra­húss­ins á Akureyri og skimanir vegna leg­hálskrabba­meins til heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Úti á landi er leg­háls­skimun­inni nú þegar sinnt á heilsu­gæsl­unni.

Flutn­ingur verk­efn­is­ins frá Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins hefur verið í skoðun frá 2018 en heil­brigð­is­ráð­herra skip­aði sér­stakt skimun­ar­ráð til að taka út skipu­lag skim­ana til fram­tíðar, sem skil­aði af sér áliti í febr­úar 2019. Í fram­hald­inu lagði land­læknir m.a. til að emb­ætt­inu yrði falið að skil­greina þau krabba­mein sem skima ætti fyrir, að stofn­sett yrði Stjórn­stöð skimunar sem tæki yfir starf Leit­ar­stöðvar Krabba­meins­fé­lags­ins og rekstur Krabba­meins­skrár og að komið yrði á verk­efna­stjórn til að hrinda til­lögum í fram­kvæmd.

Í minn­is­blaði sínu ítrek­aði land­læknir mik­il­vægi sam­ráðs við þá aðila sem að mál­inu koma og nýt­ingu fag­þekk­ingar þeirra sem unnið hefðu að umræddum verk­efnum. „Ekki þarf að tíunda mik­il­vægi þess að flutn­ingi starf­semi fylgi nauð­syn­legt fjár­magn, þekk­ing og mannauður,“ sagði einnig í minn­is­blað­inu.

En hver er staðan, nú þegar tæpt ár er til stefnu?

Þvert á ráð­legg­ingar Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, sem mælti með því að brjósta­mynda­tökur yrðu áfram á vegum Krabba­meins­fé­lags­ins „eða hjá öðrum aðila eftir því hvernig um semst“, ákvað ráð­herra að þær yrðu, eins og fyrr segir, færðar til Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri. Leg­hálskrabba­meins­skimunin yrði fram­kvæmd hjá heilsu­gæsl­unni en eftir því sem Mannlíf kemst næst hafa engar ákvarð­anir verið teknar um Stjórn­stöð skimunar, stað­setn­ingu hennar í heil­brigð­is­kerf­inu eða hvaða verk­efni henni verða falin. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Krabba­meins­fé­lag­inu verður Krabba­meins­skrá áfram á höndum félags­ins, þrátt fyrir til­mæli land­læknis þess efnis að skráin héldi einnig utan um for­stigs­breyt­ingar krabba­meins og önnur afbrigði, og að haldin væri skrá um skiman­irnar almennt (skimun­ar­skrá).

Enginn við­mæl­andi Mannlífs hafði upp­lýs­ingar um það hvernig flutn­ingur verk­efn­is­ins til spít­al­anna og heilsu­gæsl­unnar, hvorki und­ir­bún­ing­ur­inn né fram­kvæmdin, yrði fjár­mögnuð. Var fjár­mögn­unin raunar sam­eig­in­legt áhyggju­efni flestra þeirra sem rætt var við.

„Það er að fara í gang núna að skoða þau tæki sem eru þar og hversu mikið við getum nýtt og tekið yfir á Land­spít­al­ann“

Óvissa um tækjabúnað og mannauð

Hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu feng­ust þau svör að málin myndu skýr­ast þegar verk­efna­stjórn um útfærslu á fyr­ir­liggj­andi til­lögum skil­aði af sér. Nið­ur­stöður hennar áttu að liggja fyrir í des­em­ber en gert er ráð fyrir að þær skili sér í hús á næstu dögum eða vikum. Það sem liggur fyrir er að skimun­inni fyrir brjóstakrabba­meini hefur verið fund­inn staður í nýju göngu­deild­ar­hús­næði Land­spít­ala við Eiríks­götu.

„Það er ákvörðun heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins að fela Land­spít­al­anum og Sjúkra­hús­inu á Akureyri fram­kvæmd skim­ana frá og með næstu ára­mótum. Það starf hefur verið á höndum Krabba­meins­fé­lags Íslands í mörg ár og þau nátt­úr­lega voru braut­ryðj­endur á þessu sviði og hafa sinnt þessu mjög vel en nú hefur okkur verið falið þetta verk­efni,“ sagði Maríanna Garð­ars­dóttir, for­stöðu­maður rann­sókn­ar­þjón­ustu LSH, í sam­tali við Mannlíf. Hún sagði vinnu við hús­næðið um það bil að fara af stað en huga þyrfti að mörgum öðrum þáttum, ekki síst tækja- og hug­bún­aði auk mann­afla.

Maríanna Garð­ars­dóttir for­stöðu­maður rann­sókna­þjón­ustu LSH

Spurð að því hvort tækja­bún­aður og mannauður Krabba­meins­fé­lags­ins yrði nýttur á nýjum stað sagði Maríanna það óljóst.

„Það er að fara í gang núna að skoða þau tæki sem eru þar og hversu mikið við getum nýtt og tekið yfir á Land­spít­al­ann,“ sagði hún en Krabba­meins­fé­lagið á umrædd tæki. „Starfs­fólkið er nátt­úr­lega í vinnu hjá Krabba­meins­fé­lag­inu sem er sjálf­stætt fyr­ir­tæki og flyst ekki sjálf­krafa yfir en auð­vitað viljum við hyggja að þeim mannauði sem þar er og sjá hvernig við gætum tekið við því fólki sem hugs­an­lega vill koma til okkar í fram­hald­inu.“ Maríanna segir mönnun við­var­andi vanda­mál í heil­brigð­is­kerf­inu og ljóst sé að það hafi löngum verið skortur á röntgen­læknum og geisla­fræð­ingum í tengslum við grein­ingu brjósta­meina. Því væri Land­spít­al­anum aug­ljós­lega akkur í þeim ein­stak­lingum sem hefðu starfað hjá Krabba­meins­fé­lag­inu.

Það er óhjá­kvæmi­legt að velta fyrir sér hversu heppi­legt það er að bæta verk­efnum á Land­spít­al­ann, sem hefur þegar fullar hendur og ekki nándar nærri það fjár­magn sem þarf til að sinna sínu með sóma. Krabba­meins­fé­lagið greindi frá því í nóv­em­ber sl. að bið­tím­inn eftir fram­halds­skoðun, sem Land­spít­al­inn hefur séð um frá 2017, sé sjö sinnum lengri en alþjóð­leg við­mið kveða á um, eða 35 dagar í stað fimm. Þetta þýðir að ein­stak­lingur sem hefur farið í skimun þar sem nið­ur­stöður eru óeðli­legar, gæti þurft að bíða í meira en mánuð eftir frek­ari rann­sóknum. Maríanna segir bið­tím­ann aug­ljós­lega of langan; vand­inn sé skortur á mann­afla.

„En það er með þetta eins og annað; það þarf að fylgja þessu fjár­magn og það þurfa að vera tæki­færi til að sinna þjón­ust­unni eins vel og mögu­legt er.“

En hvernig á Land­spít­al­inn að geta sinnt skimun­inni með sóma­sam­legum hætti ef hann getur ekki unnið á þessum biðlista?

„Það er mjög góð spurn­ing,“ svarar Maríanna en ítrekar að skimunin og fram­halds­grein­ingin sé aðskilin starf­semi. „Það sem hefur verið að ger­ast á síð­asta ári er að það voru að skila sér fleiri konur í skimun, sem er mjög jákvætt, en á sama tíma grein­ast fleiri mein sem valda þá auknu álagi á þessa grein­ingu. Við höfum fengið lækna erlendis frá til að koma reglu­lega og vinna biðlistana niður en því miður safn­ast alltaf aftur á þennan lista.“ Maríanna ítrekar að ávallt sé reynt að for­gangs­raða þannig að þær konur fái þjón­ustu sem fyrst þar sem sterkur grunur sé um krabba­mein.

Spurð að því hvernig Land­spít­al­anum hugn­ist að taka verk­efnið yfir segir hún starfs­menn spít­al­ans nálg­ast það með jákvæðu hug­ar­fari.

„En það er með þetta eins og annað; það þarf að fylgja þessu fjár­magn og það þurfa að vera tæki­færi til að sinna þjón­ust­unni eins vel og mögu­legt er. Í ljósi þeirra sparn­að­ar­að­gerða sem við þurfum að gang­ast undir á þessu ári þá er erfitt að taka upp nýja starf­semi. En við ætlum að reyna að sinna þessu eins vel og hægt er.“ Maríanna seg­ist ekki hafa séð neinar tölur þegar kemur að fjár­mögnun og eins sé margt óljóst varð­andi tækja­búnað og ekki síður hug­búnað, sem sé kostn­að­ar­samur útgjalda­liður hjá stofnun á borð við spít­al­ann. Skimunin sé flókið verk­efni sem þarfn­ist góðs skipu­lags og utan­um­halds og tím­inn til stefnu sé skammur.

Maríanna segir að vissu­lega hafi verið hugað að þeirri umgjörð sem skapa þarf starf­sem­inni til að freista þess að fá sem flestar konur í skimun og seg­ist von­ast til þess að hið góða and­rúms­loft sem mynd­ast hefur hjá Krabba­meins­fé­lag­inu verði einnig til staðar á Land­spít­al­anum. Þjón­ustukönnun sem unnin var fyrir Leit­ar­stöð­ina sl. vor leiddi m.a. í ljós að 90% kvenna mat almenna upp­lifun sína af komu á Leit­ar­stöð­ina mjög góða eða frekar góða, að 94% þótti við­mót starfs­fólks mjög gott eða frekar gott og að 91% taldi sig fá mjög eða frekar full­nægj­andi svör við spurn­ingum sínum. Þá þótti 87% aðstaðan mjög góð eða frekar góð og 96% heim­sókn­ar­tím­inn hæfi­legur.

Lestu meira í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ