Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Rauði krossinn hefur farið í 46 útköll frá 1. desember – „Við pössum okkur mjög vel að dreifa álagi“

Rauði kross­inn hefur farið í 46 útköll frá 1. des­em­ber, þar sem ýmist er veitt áfalla­hjálp eða fjölda­hjálp­ar­stöðvar opn­aðar. Upp­lýs­inga­full­trúi Rauða kross­ins, Bryn­hildur Bolla­dóttir, seg­ist ekki muna eftir öðru eins. Þar er þess þó gætt að fólk brenni ekki út. „Við pössum okkur mjög vel að dreifa álagi. Það á eng­inn að upp­lifa kulnun í sjálf­boða­liða­starf­inu,“ segir hún.

Rauði krossinn hefur farið í 46 útköll frá 1. desember – „Við pössum okkur mjög vel að dreifa álagi“
Rauði kross­inn opn­aði fjölda­hjálp­ar­stöð í íþrótta­húsi í Reykja­nesbæ

Sjálf­boða­liðar Rauða kross­ins hafa veitt um 1.560 ein­stak­lingum aðstoð frá því í byrjun des­em­ber. Rauði kross­inn bregst á hverju ári við fjölda alvar­legra atburða, svo sem nátt­úru­ham­förum, sam gönguslysum, hús­brunum og vinnu­slysum. Á hans vegum eru hund­ruð sjálf­boða­liða til taks allan sól­ar­hring­inn ef ham­farir eða önnur áföll dynja yfir. Um er að ræða starfs­fólk með mis­mun­andi sér­þekk­ingu; meðal ann­ars í stjórnun aðgerða, upp setn­ingu fjölda­hjálp­ar­stöðva og í að veita sál ræn an stuðn­ing og skyndi­hjálp þegar mikið liggur við.

Upp­lýs­inga­full­trúi Rauða kross­ins, Bryn­hildur Bolla­dóttir.

Þegar hættu­á­stand skap­ast vegna nátt­úru­ham­fara eða ann­arra stór­slysa fer neyð­ar­varn­ar­kerfi Rauða kross­ins í gang. Hlutverk Rauða kross­ins í almanna vörnum rík­is­ins er fjölda­hjálp og félags­legt hjálp arstarf sem felst einkum í því að útvega fæði, klæði og húsa­skjól og veita upp­lýs­ingar til fólks á neyðar stundu. Fjölda­hjálp­ar­stöðvar eru opn­aðar þegar koma þarf stórum hópum fólks í skjól, svo sem vegna rým­ingar hverfa eða lands­svæða og í kjöl­far nátt­úru­ham­fara.

183 sjálfboðaliðar í áfallateymi

Rauði kross­inn rekur áfallateymi, sem segja má að sé fyrsta sál­ræna hjálpin sem fólk fær í kjöl­far slysa eða ann­arra alvar­legra atburða. Bryn­hildur segir að í lang­flestum til­vikum sé það áfallateymi Rauða kross­ins sem veiti áfalla­hjálp­ina en áfallateymi sé einnig starf­rækt á Land­spít­al­anum og á vegum stærri sveit­ar­fé­laga.

„Í áfallateymunum sjálfum eru 183 sjálf­boða­liðar en um 600 manns eru skráðir í fjölda­hjálp hjá okkur,“ segir hún. Bryn­hildur segir að álagið að und­an­förnu hafi verið svaka­lega mikið. Engu að síður hafi starfið gengið vel. Hún rifjar upp að þótt álags­punktar hafi orðið í vissum lands­hlutum hafi útköllin dreifst býsna vel um landið. Það sé lán í óláni. „Við vildum hins vegar gjarnan að við hefðum minna að gera. Rauði kross­inn vildi að hann væri óþarfur.“

Sálræn skyndihjálp

Aðspurð segir Bryn­hildur að áfallateymið veiti björg­un­ar­fólki reglu­lega áfalla­hjálp. Björg­un­ar­fólk þurfi oft að upp­lifa mjög erf­iða atburði. Aukin þekk­ing hafi sannað að í kjöl­far slíkra aðstæðna sé mik­il­vægt að geta talað við ein­hvern. „Björg unar­fólkið þarf að huga mjög vel að sér,“ segir hún. „Þegar koma upp erf­iðar aðstæður erum við til staðar fyrir björg­un­ar­sveit­irnar og aðra sem koma að. Við erum í dag sem sam­fé­lag með­vit­aðri um hvaða áhrif það getur haft að verða vitni að erf­iðum atburðum.“

Hún tekur þó fram að lög­reglu­ og sjúkra­flutn­inga­fólk sé með fólk innan sinna vé banda, sem komi því til aðstoðar. Í áfallateymi Rauða kross­ins eru sem fyrr segir 183 sjálf­boða­liðar. Í þeim hópi eru ein­hverjir sál­fræð­ingar en áfalla­hjálpin er í raun ekki fag­leg aðstoð, að sögn Bryn­hildar. „Þetta eru sér­þjálfaðir sjálf­boða­liðar sem hafa lokið nám­skeiði í sál­rænum stuðn­ingi. Þeir eru margir mjög reynslu­miklir.“ Hún segir að áfalla­hjálpin felist ekki síst í því að koma saman eftir slys, tala saman og veita upp­lýs­ingar. „Það nægir oft mjög mörgum en alls ekki öllum.“

Rauði kross­inn hefur farið í 46 útköll frá 1. des­em­ber. Hér ráða með­limir ráðum sínum, enda er oft­ast nær í mörg horn að líta

Sumir þurfa á frek­ari aðstoð að halda og þá beinir áfallateymið þeim til fag­að­ila, svo sem til sál­fræð­inga. Áfallateymið veiti eins konar sál­ræna skyndi­hjálp og hún dugi í mörgum til­vikum. „Við dreifum oft bæk­lingum sem inni­halda upp­lýs­ingar um hvert fólk getur leitað og hvernig því getur liðið. Fólk þarf stundum bara að vita hvort það sé eðli­legt að líða svona eða hinsegin eftir erf­iða atburði. Við hvetjum fólk ann­ars til að leita sér fag­legrar aðstoðar ef ástæða þykir til,“ segir Bryn­hildur. Þess má líka geta að Rauði kross­inn heldur úti Hjálp­ar­sím­anum, 1717, og net­spjalli á 1717.is, sem opið er allan sól­ar­hring­inn. Þar hlusta sjálf­boða­liðar og svara. Þeir geta líka veitt upp­lýs­ingar til fólks um hvert það eigi að snúa sér í kerf­inu.

Snjóflóðin 1995 upphafið að áfallahjálpinni

Meðlimir áfallateymis Rauða kross­ins eru á bak vakt allt árið um kring. Bryn­hildur segir að þeir séu stað­settir um allt land en mis­jafnt sé eftir stað­setn­ingu óhapps hversu margir séu til taks. Öfugt við það sem tíðk­ist í starfi björg­un­ar­sveit­anna geti til­tölu­lega fáir ein­stak­lingar í áfallateym­inu veitt stórum hópi aðstoð. Hún nefnir sem dæmi að í stóra útkall­inu við Lang­jökul í jan­ú­ar­byrjun, þar sem 39 ferða­menn voru hætt komnir, hafi sjö manns úr áfallateymi veitt fólk­inu stuðn­ing þegar það var komið til byggða.

Áfallateymi Rauða kross­ins hefur hjálpað fjöl­mörgum ein­stak­lingum, sem upp­lifað hafa erf­iða hluti und­an­farnar vikur.

„Í snjó­flóð­unum sem urðu fyrir vestan sendum við tíu manns frá Ísafirði til Flat­eyrar.“ Bryn­hildur segir að fyrsta fjölda­hjálp­ar­stöð Rauða kross­ins hafi verið opnuð eftir Vest­manna­eyja­gosið. Þar hafi fjögur þús­und manns verið hjálp­ar­þurfi. Fyrsta áfalla­hjálpin hafi hins vegar verið veitt í tengslum við snjó­flóðin mann­skæðu 1995. Hún segir að á þeim 25 árum sem liðin séu frá þeim atburðum hafi orðið til mikil þekk­ing. „Þetta er orðið miklu betra núna. Í dag erum við partur af almanna­vörnum,“ útskýrir Bryn­hildur. Aðspurð segir hún að innan raða Rauða kross­ins sé enn starf­andi fólk sem hafi komið að aðgerðum á Flat eyri og Súðavík á sínum tíma. „Það er hjá okkur fólk sem hefur farið með okkur í gegnum þetta allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð