Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Hrædd við snjóþungar fjallshlíðar“

Snjó­flóðin sem féllu á Flateyri á þriðju­dags­kvöld vöktu ónota­til­finn­ingu hjá mörgum sem upp­lifðu ham­far­irnar sem riðu yfir þorpið 1995 með skelfi­legum afleið­ingum. Sorgin situr eftir en einnig sá mikli sam­hugur sem ríkti meðal þjóð­ar­innar á þessum erf­ið­ustu tímum.

„Hrædd við snjóþungar fjallshlíðar“
Snjóflóö eru einn mesti skað­valdur sem Íslend­ingar glíma viö. Myndin er frá Flateyri og teng­ist ekki atburðum dags­ins. Mynd / Önundur Pálsson
Sóley bjó á Flateyri þegar snjó­flóð féll á Flateyri aðfara­nótt 26. októ­ber 1995. Hún var 11 ára gömul, varð sjálf undir flóð­inu og missti 19 ára systur sína og 14 ára frænku. Árið 2016 kom út bók hennar um snjó­flóðið; Nóttin sem öllu breytti en þar rekur hún atburði næt­ur­innar og næstu daga og miss­era í tíma­röð og af mik­illi nákvæmni.

„Mér finnst þetta alltaf smá­ó­þægi­legt en ekki þannig að ég vilji ekki að það sé verið að fjalla um það,“ segir Sóley Eiríks­dóttir spurð að því hvernig til­finn­ing það sé þegar Flateyri ratar í fjöl­miðla og almenna umræðu í tengslum við snjó­flóð eða snjó­flóða­hættu. „Ég er á því að það sé mik­il­vægt að tala um þetta svo þessir atburðir gleym­ist síður. Þessi flóð núna minna á það sem gerð­ist áður og minna á þá stað­reynd að enn í dag eru fjöl­mörg svæði óvarin.“

Sóley bjó á Flateyri þegar snjó­flóð féll á Flateyri aðfara­nótt 26. októ­ber 1995. Hún var 11 ára gömul, varð sjálf undir flóð­inu og missti 19 ára systur sína og 14 ára frænku. Árið 2016 kom út bók hennar um snjó­flóðið; Nóttin sem öllu breytti en þar rekur hún atburði næt­ur­innar og næstu daga og miss­era í tíma­röð og af mik­illi nákvæmni. „Svona lífs­reynsla fer aldrei frá manni og breytir öllum sem ganga í gegnum hana,“ segir Sóley í bók­inni en 20 fór­ust í ham­för­unum. „Hún býr til ákveðin kafla­skipti, þannig að ævin skipt­ist í tvö skeið: fyrir og eftir flóð. Þeir sem upp­lifðu snjó­flóðið urðu aldrei samir.“

„Manni líður auð­vitað illa. Þetta vekur upp minn­ingar sem ég hafði lagt til hliðar.“

Það liggur beint við að spyrja, nú „eftir flóð“: Hvernig var að heyra af því að stór flóð hefðu fallið á bæinn að nýju?
„Mér var mjög brugðið, að sjálf­sögðu,“ svarar hún. „Pabbi minn hringdi í mig morg­un­inn eftir og lét vita að tvö flóð hefðu fallið á þorpið. Mér brá sér­stak­lega þegar ég frétti að ung­lings­stúlka hefði farið undir annað flóðið og verið bjargað. Ég átt­aði mig strax á því að þetta væri mun stærra en nokkuð sem hefði gerst síðan 1995 og það má segja að ég hafi varla hugsað um annað þann dag­inn.“

„Hefði aldrei þorað að taka áhættuna“

Sóley segir erfitt að lýsa þeim til­finn­ingum sem sóttu að henni í kjöl­farið. „Manni líður auð­vitað illa. Þetta vekur upp minn­ingar sem ég hafði lagt til hliðar. Þegar ég vann að bók­inni gekk ég mjög nærri sjálfri mér í að end­ur­upp­lifa þessa atburði og minn­ing­arnar þyrl­ast aftur upp núna. Ég finn mjög mikið til með fólk­inu fyrir vestan, sem hlýtur að upp­lifa mikið óör­yggi. Sjálf hef ég alltaf verið hrædd við snjó­þungar fjalls­hlíðar eftir ham­far­irnar 1995. Og þrátt fyrir að mér hafi þótt varn­ar­garð­arnir traust­vekj­andi, hef ég alltaf verið á því að ég myndi aldrei gista í Ólafs­túni ef það væri snjó­flóða­hætta á Flateyri. Ég hefði aldrei þorað að taka áhætt­una. Þessi nýju flóð sýna því miður að það er ekki hættu­laust að vera í þess­ari götu þrátt fyrir varn­ar­garð­ana og það er í raun ótrú­legt að við séum að upp­lifa það að sjá flóð af sam­bæri­legri stærð og 1995-flóðið aðeins 25 árum síðar. Slíkt flóð ætti í raun, sam­kvæmt ein­hverjum reikni­lík­önum, að ger­ast rétt um einu sinni á mannsævi.“

Erfitt en gott uppgjör

Sóley fór ekki var­hluta af því að eiga erfitt með að ná sér eftir þann mikla missi og hina miklu sorg sem sótti að Flat­ey­ingum hina örlaga­ríku nótt. Ekki síður eftir að bókin kom út. Öðrum þræði leið henni vel, enda stolt af því að hafa komið verk­inu frá sér og fengið mjög góðar við­tökur.

„Það sem mér þótti einna vænst um var að fólki þótti bókin fal­leg þrátt fyrir að fjalla um jafn­erfitt mál. Að ein­hverju leyti var ég samt búin að liggja of mikið í for­tíð­inni og eftir að ég fylgdi bók­inni eftir hefur mér þótt frekar erfitt að tala um bók­ina og snjó­flóðið. Ég var í raun bara alveg búin á því og var á tíma­bili við vinnslu bók­ar­innar orðin hálf­þung­lynd. Þetta tók því mikið á. Hins vegar tel ég að ég hafi unnið mjög vel út úr þessu tíma­bili fyrir vikið og komið sterk­ari út úr þess­ari lífs­reynslu.“

Samhugur þjóðar

„Dagana eftir flóðið kom sam­hugur þjóð­ar­innar vel í ljós,“ skrifar Sóley í Nóttin sem öllu breytti. „Um allt land var nátt­úru­ham­far­anna og afleið­inga þeirra minnst með ýmsum hætti. Bæna- og minn­ing­ar­stundir voru haldnar víða og voru fjöl­sóttar. Það var ekki síst aðdá­un­ar­vert að sjá hvað unga fólkið var dug­legt að sýna hug sinn. Lítil börn söf­uðu fé með ýmsum hætti fyrir fórn­ar­lömb flóðs­ins og grunn­skóla- og fram­halds­skóla­nem­endur efndu til kertafleyt­inga og blys­fara víða um land sem voru vel sóttar. Hvar­vetna gerði fólk það sem það gat til að láta Flat­eyr­inga finna hlýjan hug sinn og skipti þá engu hverja um ræddi […].“

Um 300 millj­ónir króna söfð­uð­ust í söfn­unar­átaki inn­an­lands og Fær­ey­ingar létu 50 millj­ónir af hendi rakna. Sóley segir þennan vel­vilja þjóð­ar­innar hafa lifað með sér, ekki síður en hinar erf­iðu til­finn­ingar.

„Já, maður finnur sann­ar­lega hvað þjóðin stendur saman í raunum sem þessum,“ segir hún. Sam­hug­ur­inn varir. „Það eru margir sem hugsa til mín á stundum sem þessum. Það er ótrú­lega fal­legt að sjá hvað Flat­eyr­ingar halda vel utan um hver annan og ég klökkn­aði við lýs­ingar björg­un­ar­mann­anna sem fundu stúlk­una á Flateyri. Þetta rímar mikið við það sem ég lenti í og margir þeirra sem eru í björg­un­ar­sveit­inni Sæbjörgu í dag eru vinir mínir. Því fann maður til mik­illar teng­ingar við þessa atburði.“

Ung­lings­stúlkan sem Sóley vísar til varð undir flóð­inu að heim­ili sínu í Ólafs­túni en hefur verið útskrifuð og læknar segja hana vænt­an­lega munu ná sér að fullu.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð