Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sjaldgæft að ráðist sé á konur í miðbænum

Fregnir bár­ust í vik­unni af mann­dráps­máli á Spáni þar sem Íslend­ingar áttu í hlut. Helgi Gunn­laugs­son, afbrota­fræð­ingur og pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands segir að mann­dráps­mál séu að öllu jöfnu ástríðu­tengd. Þetta séu þau mál sem snerta okkur dýpst.

Sjaldgæft að ráðist sé á konur í miðbænum

Helgi segir það líka ein­kenn­andi fyrir þessi mál að þau upp­lýs­ist venju­lega hratt. „Upp­lýs­inga­tíðnin er hæst í mann­dráps­málum af öllum brotum. Það eru oft svo náin tengsl milli aðila. Og oft kemur það fyrir að ger­and­inn til­kynnir um málið.“ Hann segir að þessi stað­reynd stang­ist á við þá ímynd sem sjón­varps­á­horf­endur fá af mann­dráps­málum og nefnir í því sam­bandi rann­sókn­ar­lög­reglu­menn­ina Barnaby og Sherlock Holmes, sem ráði morð­gátur hvor á sínum vett­vangi. „Veru­leik­inn er sá að þessi mál upp­lýs­ast hratt. Það þarf yfir­leitt engan Sherlock Holmes til að ráða þessi mál.“ Hann nefnir að lög­reglan setji mann­dráp jafnan í mik­inn for­gang – það kunni að eiga þátt í því hve þau upp­lýs­ast jafnan fljótt.

Geirfinnsmálið fráleitt

Helgi tekur þó fram að til séu dæmi á Íslandi um hið gagn­stæða; þar sem leggja þarf mikið á sig til að upp­lýsa saka­mál af þessum toga. Hann nefnir ann­ars vegar Guð­mundar- og Geir­finns­málin og hins vegar morðið á Birnu Brjáns­dóttur frá 2017. Þessi mál séu bæði þess eðlis að þau hafi hel­tekið þjóð­ina. „Þetta eru málin þar sem verið er að leita að morð­ingja; mál sem tikka ekki í þessi venju­legu box um mikil tengsl á milli aðila og ástríðu. Geir­finns­málið var eig­in­lega frá­leitt mál. Þar voru engin tengsl, engin ástríða eða sjá­an­leg ástæða. Þetta brýtur í bága við flest mann­dráp, meira og minna, hér heima og erlendis.“

„Það er afar fátítt að ráð­ist sé á konur niðri í bæ. Karlar verða miklu oftar fyrir ofbeldi af hálfu ein­hvers sem þeir þekkja ekki mikið.“

Helgi segir að öll frá­vik þegar komi að mann­dráps­málum veki yfir­leitt mikla athygli; öll mál sem séu öðru­vísi og þá sér­stak­lega þau mál sem séu ráð­gáta, þar sem óvíst sé hver framdi voða­verkið. Hann segir að Birnu-málið hafi verið afar óvenju­legt. Það sé í fyrsta lagi óal­gengt að kona sé drepin. Í öðru lagi sé það sjald­gæft að hún þekki ekki ger­and­ann. Helgi segir að í sjö­tíu til átta­tíu pró­sentum til­vika séu það karlar sem séu drepnir. „Það ger­ist yfir­leitt aldrei að kona sé drepin með þessum hætti.“

Oftast ráðist á karla í miðbænum

Helgi segir raunar að það sé mjög sjald­gæft að ráð­ist sé á konur sem séu einar á gangi í mið­bænum. Tölfræði sýni að karlar séu í miklu meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi í mið­bænum sem ann­ars staðar.
„Það er afar fátítt að ráð­ist sé á konur niðri í bæ. Karlar verða miklu oftar fyrir ofbeldi af hálfu ein­hvers sem þeir þekkja ekki mikið. En konur verða yfir­leitt fyrir ofbeldi af hálfu ein­hvers sem þær þekkja; það á við bæði um kyn­ferð­is­legt ofbeldi og lík­am­legt. Þrátt fyrir þessa stað­reynd er alltaf þessi umræða um að konur ótt­ist árásir frá ókunn­ugum mönnum þegar þær eru einar á gangi í mið­bænum.“ Karlar þyrftu í raun að hafa meiri áhyggjur en konur á þessum slóðum.

Mannlíf rifjar upp átta mann­dráps­mál sem upp hafa komið allra síð­ustu ár, eða frá árinu 2016. Til við­bótar er fjallað um eitt mál þar sem ger­and­inn var dæmdur fyrir stór­fellda lík­ams­árás sem leiddi til dauða þol­and­ans.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð