Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kýrnar á Hvanneyrarbúinu skelltu sér út – „Þetta hefur verið heilmikið ævintýri hjá þeim“

Kýrnar á Hvanneyrarbúinu skelltu sér út – „Þetta hefur verið heilmikið ævintýri hjá þeim“
Mynd / Unsplash

Facebook-færsla sem Hvann­eyr­ar­búið birt­ist í gær hefur vakið mikla lukku en í henni er sagt frá því að kýrnar á bænum náðu með ein­hverjum óskilj­an­legum hætti að opna hurð­ina í fjós­inu út og skelltu sér út í göngutúr.

Í færsl­unni segir að aðkoman að fjós­inu hafi verið skondin þar sem aug­ljós­lega mátti sjá ummerki eftir ævin­týri næt­ur­innar.

„Við and­dyrið voru mikil ummerki eftir umferð naut­gripa en engir gripir sjá­an­legir úti. Inni í fjósi var allt rólegt, kýrnar lágu ýmist á básum eða átu hey í mestu mak­indum. Allt eins og það á að vera fyrir utan eitt, hurðin þar sem kýrnar fara út um á sumrin var galopin og fennt hafði inn,“ segir í færsl­unni.

„Kýrnar fóru sem­sagt snemma út þetta árið. Þær höfðu með ein­hverjum ótrú­legum hætti náð að opna læs­ing­una á hurð­inni og lyfta hurð­inni upp og hlaupið síðan út í nótt­ina.“

Í færsl­unni segir að kýrnar hafi allar skilað sér inn aftur fyrir morg­un­inn. „Veðrið hefur spilað þar stóran þátt en þegar leið á nótt­ina fór veður versn­andi og kýrnar hafa sýnt ein­staka skyn­semi og drifið sig inn aftur í hlýj­una.“

Þess má geta að kýrnar á Hvann­eyr­ar­bú­inu hafa svo­kall­aða beiðslis­greina sem greina hreyf­ingu og bændur fá til­kynn­ingu ef ein­hver er óvenju virk. „Þennan morg­un­inn voru yfir 50 kýr með til­kynn­ingu í tölv­unni og á hreyfigraf­inu mátti sjá að þær höfðu opnað út um mið­nætti og verið úti fram til ca fimm eða sex um morg­un­inn. Þetta hefur verið heil­mikið ævin­týri.“

Færsluna má sjá í heild sinni hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð