Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Mistök leiddu til farsæls hjónabands

Mistök leiddu til farsæls hjónabands

Aðeins tvær konur í heim­inum eru for­menn akst­urs­í­þrótta­sam­banda sinna landa. Önnur þeirra er Helga Katrín Stef­áns­dóttir. Hún er fyrst kvenna til að leiða Akst­urs­í­þrótta­sam­band Íslands en hún tók við for­mennsk­unni af Tryggva Þórð­ar­syni í síð­asta mán­uði. Helga kemur af fullum krafti inn í mót­or­sport­sum­arið 2020 sem hófst fyrir alvöru um síð­ustu helgi.

Þeir eru senni­lega ekki margir sem geta greint frá því að amma þeirra hafi keppt í rallíkrossi. Helga getur það nú samt og þegar hún er spurð út í hvernig áhug­inn á akst­urs­í­þróttum kvikn­aði segir hún að þráð­ur­inn liggi í gegnum afa hennar og ömmu í upp­hafi. „Þetta byrj­aði eig­in­lega þannig að vinur ömmu minnar og afa keppti í rallíkrossi. Pabbi minn og fjöl­skylda voru í aðstoð­ar­lið­inu,“ útskýrir hún en það er nú einmitt þannig að akst­urs­í­þróttir verða mjög gjarnan að fjöl­skyldu­sporti þar sem liðs­heild og sam­heldni ríkir.

Áhuginn endurvakinn á sjúkrahúsinu

Fjöl­skyldan var mest í kringum rallíkrossið á árunum 1990-1994 og var Helga, sem er fædd árið 1988, því ósköp ung. En snemma beyg­ist krók­ur­inn. Á þessum árum var rallíkross ákaf­lega vin­sælt og í fréttum árið 1991 var til að mynda greint frá því að 3000 manns hefðu mætt til að fylgj­ast með keppni á nýrri braut við Krýsu­vík­ur­veg­inn.

Pabbi Helgu veikt­ist nokkrum árum síðar, árið 1998, og var lagður inn á sjúkra­hús. Þar kynnt­ist hann tor­færu­öku­mann­inum Gunnari Gunn­ars­syni sem keppti í tor­færunni á þeim tíma. Þeir urðu góðir félagar og þegar báðir höfðu náð heilsu var tor­færu­á­hug­inn heldur betur kvikn­aður hjá fjöl­skyldu Helgu. Fyrir þá sem það þekkja er fátt sem dregið getur úr þeim áhuga. Næstu árin var fjöl­skyldan mikið við­riðin keppn­is­hald í tor­færu og Helga fylgd­ist iðu­lega vel með þessu ramm­ís­lenska sporti sem tor­færan jú er.

Mistök leiddu til farsæls hjónabands

Helga er nú, auk þess að gegna for­mennsku í AKÍS, for­maður Tor­færu­klúbbs Suð­ur­lands og í stjórn situr meðal ann­arra Sigfús Þór Sig­urðs­son, eig­in­maður Helgu. Það er auð­velt að draga þá ályktun að þau Fúsi, eins og hann er kall­aður, hafi kynnst í gegnum mót­or­sportið en sú er ekki raunin. „Ég kynnt­ist manni á net­inu og við ætl­uðum að tala saman á MSN. Ég sló inn rangt not­enda­nafn og það nafn átti annar maður en sá sem ég ætl­aði að tala við. Þeim manni er ég gift í dag,“ segir Helga og þau Fúsi hafa nú verið saman í þrettán ár.

Þau byrj­uðu ekki saman strax heldur liðu nokkur ár og það var árið 2007 sem leiðir þeirra lágu saman fyrir til­viljun. Og hvar ann­ars staðar en á tor­færu­keppni á Akureyri. „Pabbi dró mig með á tor­færuna og þarna var hann. Við Fúsi höfum verið límd saman síðan þá,“ segir Helga um hina und­ar­legu vegi, eða í þessu til­viki, tor­færur ást­ar­innar. Faðir Fúsa, Sigurður Þór Jónsson, keppti í tor­færu á þeim tíma og Helga var umsvifa­laust orðin hluti af keppn­islið­inu í kringum tor­færu­bíl­inn Tröllið. „Hann var þá for­maður þess

klúbbs þar sem ég er for­maður í dag. Hann, ásamt fleirum, stofn­aði þann klúbb sem ég og mað­ur­inn minn sjáum um í dag,“ segir hún og vísar þar til Tor­færu­klúbbs Suð­ur­lands.

Engin kynjaskipting í sportinu

Eins og áður kom fram keppti amma Helgu í rallíkrossi fyrir tæpum þrjá­tíu árum. Mamma hennar keppti líka í sömu keppni sem var reyndar sér­stök kvenna­keppni. „Í kringum 1992 voru margar konur í kringum sportið. Svo fór þetta aðeins í dvala og kon­urnar hafa verið að koma svona líka sterkar inn núna. Þær voru til dæmis fimm að keppa við strák­ana í rallíkrossi um síð­ustu helgi,“ segir Helga.

Í akst­urs­í­þróttum eru kynin jöfn og því ekki nokkur skipt­ing í karla- og kvenna­flokka þó að á sínum tíma hafi endrum og sinnum verið haldnar kvenna­keppnir. Það má kannski segja að karlar séu meira áber­andi í akst­urs­í­þróttum, enda meiri­hluti kepp­enda. En það er í raun engin ástæða fyrir því. Þarna eru kynin jafn­víg og hefur tölu­verð fjölgun orðið á und­an­förnum árum meðal kven­kynskepp­enda.

Hvað með Helgu sjálfa? „Veistu, nei, ég hef ekki einu sinni sest inn í keppn­is­tæki. Mér finnst rosa­lega gaman að sjá um skipu­lag og keppn­is­hald en það er aldrei að vita nema ég eigi eftir að keppa sjálf einn dag­inn,“ segir Helga sem hefur verið keppn­is­stjóri í tor­færu­keppnum og lengi komið að keppn­is­haldi. „Ég er svo­lít­ill stjóri,“ segir hún.

Af snyrtistofunni út á kvartmílubraut

Töluverð vinna er fólgin í því að vera for­maður AKÍS og einkum á sumrin þegar keppt er flestar helgar. Í sumar hófst keppn­is­hald um mán­uði seinna en venju­lega vegna kór­ónu­veirunnar og sam­komu­banns. Helga mun því hafa í nógu að snú­ast og er gert ráð fyrir að keppn­is­tíma­bilið standi fram á haust þetta árið. Dags­dag­lega vinnur Helga á snyrti­stofu og líkar vel. „Ég vinn við að dekra við og hugsa um fólk og nýt þess,“ en hún er nagla- og förð­un­ar­fræð­ingur. Hvað keppn­is­hald í akst­urs­í­þróttum varðar vill hún líka að fólki líði vel og er mjög umhugað um öryggi kepp­enda og áhorf­enda. Það er vel í sam­ræmi við hlut­verk for­manns AKÍS sem sér um að „allt rúlli“ eins og Helga orðar það. „Að allar greinar rúlli eins og þær eiga að gera, að kepp­endur geti öruggir sinnt sínu sporti og áhorf­endur líka. Svo þarf að passa upp á að allir vinni sína vinnu,“ segir hún.

Sjálf vill Helga, sem for­maður, vera sýni­leg og mæta á keppnir. „Ég vil sjá hvað gengur vel og hvað illa, þannig að það sé hægt að grípa inn í. Ég vil vera til staðar svo hægt sé að leita til mín og ég er tengiliður allra innan greina akst­urs­í­þrótta,“ segir hinn nýkjörni for­maður AKÍS.

Batman er svaða­legt tæki. Mynd/Unnur Magna
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ