Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Prófaði flest vímuefni og oft lítið til í ísskápnum

Prófaði flest vímuefni og oft lítið til í ísskápnum
Jóhann Helgason

Jóhann Helgason ræðir fer­il­inn og fræðgina í við­tali í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Fyrsta plata Jóhanns kom út áður en sá sem þetta skrifar kom í heim­inn þannig að vel lukk­aður tón­list­ar­fer­ill­inn spannar langt tíma­bil. Hann var hins vegar grýttur niður af svið­inu á fyrstu tón­leik­unum ungur að árum. Feimni tón­list­ar­manns­ins olli honum mik­illi van­líðan framan af og Jóhann faldi sig bak við loð­feld og sól­gler­augu. Sögur um dóp­neyslu hans og sam­kyn­hneigð fylgdu honum lengi og særðu hann mjög.

Jóhann þakkar tíðum kúreka­leikjum í æsku í drullu­polla­sveit­inni Keflavík fyrir bar­áttu­and­ann sem hefur gagn­ast honum í erf­iðum mála­ferlum við ris­ana í Los Angeles.

Prófaði flest

Jóhann við­ur­kennir að á þessum árum hafi hann prófað flest þau vímu­efni sem á mark­aðnum finn­ast og að það hversu illa hann kunni við áhrifin hafi bjargað honum frá því að ánetj­ast þeim. Áfengið reynd­ist honum erf­ið­ast. „Ég pru­faði jú flest þessi efni sem voru þarna en ég slapp sem betur fer við að láta það leiða mig lengra. Það voru allir í kringum mig með eitt­hvað í álp­appír en ég var oft­ast bara inni í eld­húsi á meðan. Ég bara fíl­aði ekki þessi efni, hefði ég gert það hefði ég samt örugg­lega verið með,“ segir Jóhann og rifjar upp allar sög­urnar sem um hann gengu á sínum tíma varð­andi dóp­neyslu.

„Einhvern tím­ann var Maggi stopp­aður af fíkni­efna­lögg­unni sem dró hann til hliðar og fór að ræða við hann um hvað staðan á mér væri slæm. Ég væri hrein­lega alltaf skakkur með sól­gler­augun. Þá held ég hins vegar að Maggi hafi sjálfur verið nýbú­inn að fá sér eina feita. Ég hef oft­ast náð að höndla áfengi en ég hef líka oft ekk­ert hagað mér sér­stak­lega vel með víni. Ég hef verið leið­in­legur og sýnt á mér agressí­vari hliðar en ég hefði viljað. Ég sé auð­vitað eftir því enda eng­inn sómi af.“

„Það er meira gam­alt efni í tæk­inu hjá mér. Sonur minn hefur aðeins laumað rapp­inu að mér. Ég efast ekk­ert um að það er örugg­lega gaman að vera rapp­ari,“ segir Jóhann. Mynd / Hallur Karlsson

Lítið í ísskápnum

Heimsókn Jóhanns til systra hans í Banda­ríkj­unum árið 1964 var mikið ævin­týri og síðar reyndi hann að ger­ast umboðs­sali fyrir amer­ískt tyggigúmmi á Íslandi. Aðspurður um hvort hægt sé að lifa af tón­list hér á landi segir hann það ekki alltaf hafa verið auð­velt og það hafi ekki hjálpað til að eig­in­konan hafi líka verið í listum. Þó að börn hans og barna­börn hafi sum erft tón­list­ar­genin er Jóhann feg­inn því að þau hafi ekki farið út í brans­ann. „Það er hægt að lifa á tón­list ef þú ert með alla anga úti. Það komið mörg tíma­bil þar sem lítið var til í ísskápnum og full­trú­inn í bank­anum hefur skammað okkur hjónin að vera bæði í listum. Sú stað­reynd að við erum bæði lista­fólk hefur hins vegar leyft okkur að kenna hvort öðru um að hafa ekki valið tekju­hærri starfs­vett­vang,“ segir Jóhann og brosir út í annað.

„Já, genin eru þarna. Fjöl­skyldan mín er auð­vitað mesta gæfan. Fyrir utan tón­list­ina er ég ríkur maður í dag. Ég hef hvorki hvatt börnin né latt þau áfram í tón­list­inni en ég vildi ekki ýta þeim út í brans­ann því hann er ekki auð­veldur fyrir neinn. Að lifa á tón­list­inni er þannig að stundum fiskast vel og stundum ekki. Hefði ég sjálfur átt að velja mér eitt­hvað annað hefði ég valið arki­tektúr. Þar er maður líka að búa til ein­hver fal­leg form. Maður verður hins vegar að velja það sem hjartað kallar á og ég sé alls ekk­ert eftir því.“

Lestu við­talið við Jóhann í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ