Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ódýrast í sund á Akranesi – dýrast í Húsafelli

Ódýrast í sund á Akranesi – dýrast í Húsafelli

Ódýrast er fyrir full­orðna að fara í Jað­ars­bakka­laug á Akranesi, þar sem kostar 635 krónur að fara í sund en dýr­ast á Húsa­felli þar sem það kostar 1300 krónur. Munar heilum 665 krónum á milli ódýr­ustu sund­ferð­ar­innar og þeirrar dýr­ustu. Tæplega 51 pró­sents verð­munur er þar á milli.

Víða er ókeypis fyrir börn í sund en þar sem þau greiða að­­­gangs­eyri er hann lægstur í laugum Reykja­nes­bæjar, eða 150 krónur. Dýrast er fyrir börn að fara í sund á Hvols­velli þar sem það kostar 500 krónur. Verð­­­mun­­urinn er því 350 krónur á milli lægsta og hæsta gjalds, eða 70 pró­sent.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er ódýr­­ast að fara í sund í Hafnar­­firði en þar kostar 700 krónur fyrir full­orðna og ókeypis er fyrir börn. Dýrast er í laug­arnar í Reykja­vík þar sem sund­ferðin kostar nú 1030 fyrir full­orðna og 160 krónur fyrir börn á aldr­­inum 6 til 17 ára.

Áhuga­vert er að börn eru ekki sett undir sama ald­urs­hatt á land­­inu öllu. Sums staðar þurfa þau að greiða full­orð­ins­gjald þegar þau hafa náð 16 ára aldri, ann­ars staðar 17 ára og á enn öðrum stöðum 18 ára. Þá er líka mis­jafnt við hvaða aldur þau byrja að greiða aðgangs­eyri. Það er ýmist við 5, 6, 10, 12 eða 14 ára ald­ur­inn. Skil­grein­ingin að barn sé ein­stak­lingur undir 18 ára aldri á því greini­lega ekki við í öllum sund­laugum.

Hagstæðast að greiða fyrir 10 skipti í einu

Nánast allar sund­laugar hér á landi bjóða upp á 10 miða kort og þá lækkar nú upp­hæðin heldur betur sem sund­ferðin kostar. Nokkrar laugar á lands­­byggð­inni bjóða ein­ungis upp á 30 miða kort en lækkar þá sömu­leiðis umtals­vert hver sund­ferð í verði. Í Reykja­vík og á Kjal­ar­nesi má lækka kostnað við hverja ferð um 555 krónur með því að greiða fyrir 10 skipti í einu. Þá kostar sund­ferðin 475 krónur í stað 1030 krónur. Í Mos­fellsbæ fer upp­hæðin með þessu móti úr 820 krónum í 379 og í dýr­ustu laug lands­ins, að Húsa­felli, má lækka kostnað við hverja sund­ferð úr 1300 krón­­um niður í 960 krónur með því að greiða fyrir 10 skipti í einu.

Ódýrasta laug lands­ins, Jaðar­­s­bakka­laug á Akranesi, býður upp á 30 miða kort. Það kostar 8.650 krónur og lækkar sund­­ferðin með því úr 635 krón­­um í um 288 krónur.

Sérkjör fyrir íbúa
en ekki hina

Nokkrar sund­laugar bjóða sér­-
kjör fyrir íbúa stað­ar­ins og þurfa aldr­aðir og öryrkjar þar ekki að greiða fyrir sund­ferð­ina. Til dæmis fá aldr­aðir með lög­­heim­ili í Fjarða­byggð ókeypis í sund þar en aðrir aldr­aðir greiða 950 krónur. Aldraðir sem búa í Árborg fá ókeypis í sund­laugar þar en aðrir greiða 200 krónur. Í Stranda­byggð fá aldr­aðir, ör­­yrkjar og börn, 17 ára og yngri, ókeyp­is í sund hafi þeir lög­­­­­heim­ili þar.

Aldraðir og öryrkjar njóta ekki sömu kjara

Aldraðir og öryrkjar fara end­ur­gjalds­laust í sund á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sums staðar úti á lands­byggð­inni.

Á sumum stöðum þurfa aldr­aðir að greiða en öryrkjar ekki. Til dæmis í Gler­ár­laug, sund­laug Akur­eyrar, Hrísey og Grímsey þar sem aldr­aðir eru rukk­aðir um 250 krónur fyrir sund­ferð­ina. Sund­laugin á Húsavík krefur aldr­aða um 360 krónur fyrir aðgang að laug­inni.

Oftast er það þó sama upp­hæð sem aldr­aðir og öryrkjar greiða. Algeng­ast er að hún sé 300 krónur en vissu­lega eru und­an­tekn­ingar þar á. Lægsta upp­hæðin sem aldr­aðir og öryrkjar greiða er í sund­laugum Reykja­nes­bæjar en hún nemur 160 krónum. Hæst greiða þeir á Höfn, Hellu og Hvols­velli eða 500 krónur. Munar þar 340 krónum á hæsta og lægsta verði.

Gleymdirðu sundfötunum?

Ef maður er svo óláns­samur að vera ekki með sund­föt þá bjóða nán­ast allar laugar upp á leigu sund­fata. Hand­klæði fæst einnig leigt þar sem sund­föt fást leigð.

Athygli vekur að ein­ungis sára­fáar laugar bjóða sér­kjör á sund­fötum, hand­klæði og sund­ferð í einum pakka. Í Gler­ár­laug, sund­laug Akur­eyrar, laug­unum í Hrísey og í Grímsey býðst þetta allt saman á 2000 krónur fyrir full­orðna, á Húsavík 1550 krónur, að Laugum 1100 krónur, á Selfossi, Stokks­eyri og Hvera­gerði 1650 krónur og í Þor­láks­höfn fyrir 1700 krónur.

Algengt verð fyrir leigu á sund­fötum er um 600 krónur og sama upp­hæð fyrir hand­klæði. Það ætti kannski ekki að koma á óvart að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er dýr­ast að leigja útbúnað í laugum Reykja­vík­ur­borgar þar sem rukk­aðar eru 920 krónur fyrir sund­fötin og 620 krónur fyrir hand­klæðið. Samtals 1.540 krónur og bætum sund­ferð­inni ofan á og útkoman er 2.570 krónur. Í Hafn­ar­firði, til sam­an­burðar, kostar þetta þrennt 1.700 krónur.

Á lands­byggð­inni hefur Húsafell vinn­ing­inn hvað dýr­ustu leig­una snertir en þar kostar þús­und krónur að leigja hand­klæði, aðrar þús­und að leigja sund­föt og við bæt­ast 1.300 krónur í aðgangs­eyri. Samtals 3300 krónur.

Ódýrast er að leigja útbúnað í sund­laug­inni á Flúðum, eða 350 krónur fyrir hand­klæði og 350 fyrir sund­föt. Ofan í laug­ina kostar 900 krónur og endar sund­ferðin því í 1.600 krónum.

Það er því að ýmsu að huga þegar farið er í sund á Íslandi og viss­ara að gleyma hvorki hand­klæði né sund­fötum. Verð­­­­­mun­ur­inn getur hlaupið á þús­undum króna þegar með­­alstór fjöl­skylda hyggst bregða sér í sund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð