Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vinnumarkaðurinn „martröð“ fyrir margt aðflutt fólk

Efling – stétt­ar­fé­lag birtir yfir­lýs­ingu á vef sínum vegna brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg 1 þar sem aðstand­endum þeirra sem létu lífið í brun­anum eru sendar sam­úð­ar­kveðjur og þess er kraf­ist að yfir­völd efni lof­orð sín. Formaður Eflingar segir vinnu­mark­að­inn vera martröð fyrir margt aðflutt fólk.

Í yfir­lýs­ingu Eflingar segir að félagið hafi fengið stað­fest að tvö af þeim þremur sem lét­ust í brun­anum voru félags­menn í Eflingu.

„Verka­fólk af erlendum upp­runa sem komu hingað til lands til að vinna verka­manna­störf. Hingað komin lentu þau í gildru ein­stak­lings sem leigði þeim hættu­legt hús­næði í óboð­legu umhverfi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Lögleysa og vanræksla

Í yfir­lýs­ing­unni segir að nið­ur­stöðu rann­sóknar lög­reglu sé beðið en að Efling setji brun­ann í sam­hengi við þá með­ferð sem aðflutt vinnu­afl verður fyrir á Íslandi. „Enginn skortur hefur verið á ábend­ingum um lög­leysu og van­rækslu þegar kemur að stöðu erlends verka­fólks á Íslandi. Á það bæði við rétt­indi á vinnu­mark­aði og hús­næð­is­að­búnað.“ Þá er vísað í umfjöllun Stund­ar­innar sem var birt fyrir fimm árum síðan.

Loforð um útbætur

Í yfir­lýs­ing­unni er fjallað um athuga­semdir og körfur sem Efling setti fram í kjara­við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins vet­ur­inn 2018-2019.

„Efling krefst þess að borin sé eðli­leg virð­ing fyrir lífi, heilsu og öryggi alls verka­fólks…“

„Lend­ingin varð sú að rík­is­stjórnin setti fram mörg lof­orð um úrbætur á vinnu­mark­aðslög­gjöf­inni og hert við­ur­lög í skjal­inu „Stuðn­ingur stjórn­valda við lífs­kjara­samn­inga“ (sjá liði 22, 25 og 26). Efndir á þessum lof­orðum hafa enn ekki sést og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Eflingar frá ASÍ standa Samtök atvinnu­lífs­ins ein­örð gegn þeim,“ segir m.a. í yfir­lýs­ing­unni og er þess þá kraf­ist að félags­mála­ráð­herra og rík­is­stjórnin efni  lof­orð um hertar aðgerðir gegn brota­starf­semi á vinnu­mark­aði.

„Efling krefst þess að allar stofn­anir hins opin­bera sem fara með eft­ir­lit varð­andi öryggi og heilsu borg­ar­anna sýni til­ætl­aða árvekni og taki eðli­legt frum­kvæði að íhlutun þegar við á, en sýni ekki af sér van­rækslu og sinnu­leysi þegar lág­launa­fólk eða fólk af erlendum upp­runa á í hlut. Efling krefst þess að borin sé eðli­leg virð­ing fyrir lífi, heilsu og öryggi alls verka­fólks og að bund­inn verði endir á kerf­is­bundna mis­munun gegn verka­fólki af erlendum upp­runa.“

Martröð fyrir aðflutt fólk

Í yfir­lýs­inguni er haft eftir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur for­manni Eflingar að vinnu­mark­að­ur­inn sé „ekk­ert nema martröð“ fyrir ákveð­inn hóp.

„Ég er harmi lostin. Í starfi mínu síð­ustu tvö ár hef ég á hverjum ein­asta degi heyrt um launa­þjófnað, arð­rán, mis­beit­ingu, rugl og ógeð. „Besti vinnu­mark­aður í heimi“ er ekk­ert nema martröð fyrir mörg af okkar aðfluttu félögum. Ég krefst þess að við hættum að þola skeyt­ing­ar­leysi þeirra sem völdin hafa yfir lífs­skil­yrðum félaga okkar sem þurfa mest af öllum á því að gengið verði í að bæta þeirra kjör og aðstæður. Hinn hræði­legi harm­leikur verður að hafa raun­veru­legar afleið­ingar. Ég hef engin orð til að lýsa Íslandi ef að það ger­ist ekki,“ er haft eftir Sólveigu.

Yfir­lýs­ing­una má lesa í heild sinni hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð