Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sjálfsagt að skoða að setja takmörk á hámarksfjölda skráðra íbúa

Alls voru 73 ein­stak­lingar með skráð lög­heim­ili við Bræðra­borg­ar­stíg 1, í hús­inu sem brann þann 25. júní með þeim hörmu­legu afleið­ingum að þrír lét­ust. Ýmsar spurn­ingar hafa vakað í kjöl­far brun­ans, m.a. um aðbúnað þeirra sem bjuggu í hús­inu og hvernig svo margir geta verið skráðir til heim­ilis í hús­næði sem er skráð 452,3 fer­metrar.

Í svari Þjóð­skrár Íslands við fyr­ir­spurn Mannlífs sem send var í síð­ustu viku kom fram að ekki eru laga­leg tak­mörk fyrir því hversu margir mega vera skráðir með lög­heim­ili á hverja fast­eign.

Margrét Hauks­dóttir, for­stjóri Þjóð­skrár Íslands, segir í sam­tali við Mannlíf að sér þyki alveg sjálf­sagt að það verði tekið til skoð­unar að setja ein­hver tak­mörk á hversu margir mega hafa skráð lög­heim­ili á hverja fast­eign, t.d. eftir her­bergja- eða fer­metra­fjölda. „Ég hef fulla trú á að það verði tekið til skoð­unar,“ segir Margrét.

„Frá og með 1. jan­úar á þessu ári hefur verið skylda að skrá lög­heim­ili sitt í til­tekna íbúð, sem dæmi: á 1. hæð, íbúð til hægri. Við erum komin með slíka skrán­ingu yfir 88% allra íbúa lands­ins og því komin með góða yfir­sýn,“ útskýrir Margrét. Hún segir að með þessum auknu upp­lýs­ingum sem fólk gefur upp til Þjóð­skrár verði eft­ir­lit og utan­um­hald auð­veld­ara.

Margrét segir brýnt að brun­inn við Bræðra­borg­ar­stíg 1 leiði til umbóta og veki fólk til umhugs­unar. „Ég trúi því að málið muni hafa for­varn­ar­gildi. Það vill eng­inn hús­eig­andi vera í þeim sporum sem eig­andi Bræðra­borg­ar­stígs 1 er í,“ segir Margrét og leggur áherslu á mik­il­vægi þess að allar skrán­ingar séu í lagi, þannig verði eft­ir­lit opin­berra stofn­anna auð­veld­ara.

Hafa skoðað mál þar sem fleiri en 100 eru með skráð lögheimili

Þjóðskrá Íslands hefur að und­an­förnu tekið upp mál að eigin frum­kvæði þegar fjöldi íbúa er tal­inn gefa til kynna að um rangar lög­heim­il­is­skrán­ingu geti verið að ræða. Rannsókn Þjóð­skrár á um fjórum málum er lokið að sögn Mar­grétar en stofn­unin hefur nokkur mál í vinnslu þessa stund­ina.

Skoðunin felur í sér að Þjóðskrá Íslands vinnur kerf­is­bundið að því að hafa sam­band við eig­endur fast­eigna til að kanna raun­veru­legan íbúa­fjölda.

„Við ákváðum að byrja á þeim fast­eignum þar sem yfir 100 eru skráðir með lög­heim­ili…“

„Við byrj­uðum á að skoða þær fast­eignir þar sem fleiri er 100 eru skráðir með lög­heim­ili. Það var fyrsta skref, svo munum við vinna okkur niður. Þetta getur tekið dágóðan tíma en fer eftir því hversu grein­ar­góð svör við fáum frá hús­eig­endum og íbúum,“ segir Margrét. „Við ákváðum að byrja á þeim fast­eignum þar sem yfir 100 eru skráðir með lög­heim­ili, þá hefur okkur rekið í rogastans.“

Margrét tekur fram að brott­fluttir íbúar gefa oft skakka mynd af fjölda íbúa til lög­heim­ilis í til­teknu hús­næði. „Við byrjum á að hafa sam­band við eig­endur fast­eigna, svo þarf stundum að hafa sam­band við ein­stak­ling­ana sjálfa. Fólk á sjálft að gefa upp­lýs­ingar til Þjóð­skrár um sitt lög­heim­ili en oft kemur í ljós að fólk er jafn­vel flutt úr landi og hefur gleymt að til­kynna það til Þjóð­skrár,“ útskýrir Margrét. Hún bætir við að Þjóðskrá getur einnig kallað eftir upp­lýs­ingum frá stjórn­völdum, Skatt­inum og atvinnu­rek­endum í leit að svörum.

Þjóðskrá Íslands tekur við ábend­ingum bæði frá eig­endum og þriðja aðila um ein­stak­linga sem ekki eiga raun­veru­lega búsetu á skráðu lög­heim­ili. Aðspurð hvort að þeim ber­ist margar líkar ábend­ingar segir Margrét: „Já, það er alltaf svo­lítið um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð