Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Úr fljótandi yfir í fasta fæðu

Úr fljótandi yfir í fasta fæðu

Litlu krílin eru fljót að stækka og áður en maður veit af eru þau orðin full­vaxta. Þau sem einn dag­inn liggja ómálga og ósjálf­bjarga í vöggu eru þann næsta farin í mennta­skóla. En það ger­ist þó sem betur fer ekki á einu auga­bragði, þótt okkur for­eldr­unum kunni stundum að finn­ast það. Hér eru nokkrir punktar um fyrstu föstu fæð­una fyrir ung­börn á aldr­inum sex til níu mán­aða.

Grautur

Grautur hefur gefið góða raun sem fyrsta fæða. Mælt er með fjöl­breytni í vali á ung­barna­grautum og að valdir séu grautar úr mis­mun­andi teg­undum korna og vöru­merkja. Hægt er að velja á milli ung­barna­grauta úr höfrum, hirsti, bók­hveiti, rúgi, byggi, hveiti og hrís­grjónum. Mik­il­vægt er að barnið fái járn úr fæð­unni þar sem járn­birgðir þess eru upp­urnar við sex mán­aða aldur. Því er æski­leg­ast að velja járn­bættan graut sem er sér­stak­lega ætl­aður ung­börnum, án auka­bragð­efna og forð­ast sætar blöndur. Mik­il­vægt er að lesa utan á umbúðir og skoða vel inni­haldið því aðeins sumar teg­undir eru járn­bættar.

Maukað grænmeti

Tilvalið er að byrja með kart­öflur, gul­rætur og rófur. Smátt og smátt má svo bæta við spergilkáli (brokk­ólí), blóm­káli, grænum baunum og fleiri teg­undum. Gæta þarf þess að hreinsa græn­meti og kart­öflur vel fyrir suðu og jafn­vel afhýða ef ætl­unin er að nota soðið. Auk þess þarf að sjóða græn­metið það lengi að það mauk­ist auð­veld­lega. Gott er að setja svo­lítið af soðvatn­inu og teskeið af mat­ar­olíu, ósölt­uðu smjöri eða smjörva í stöpp­una.

Maukaðir ávextir

Upplagt er að mauka ávexti eins og ban­ana, epli og perur. Banana er auð­velt að mauka með gaffli og epli má ýmist sjóða og mauka eða skafa með teskeið.

Maukað kjöt

Snemma á tíma­bil­inu sex til níu mán­aða má byrja að gefa barn­inu soðið og vel maukað kjöt, fisk, egg, baunir og linsur sem eru járn­ríkar fæðu­teg­undir. Lifur og lifr­ar­pylsu ætti ein­göngu að gefa í hófi, hvorki á hverjum degi né viku­lega, þar sem þær inni­halda mikið A-vítamín.

Gott er að nota soðvatnið og olíu, ósaltað smjör eða smjörva til að mauka með. Mat ung­barns skal alls ekki salta. Mik­il­vægt er að byrja hægt og rólega, gefa lítið í einu til að byrja með.

Brauð

Fljót­lega, eða þegar barnið ræður við, má fara að gefa brauð í litlum bitum með smur­á­leggi, t.d. með lifr­ar­kæfu, smurosti, mauk­uðu avókadó eða ban­ana. Mælt er með að val á áleggi sé fjöl­breytt svo barnið fá ekki sama álegg alla daga. Ekki er mælt með brauði með heilum kornum í, en brauð úr grófum mjöl­teg­undum henta vel.

Heitur matur

Kart­öflur og soðið græn­meti er hægt að stappa með gaffli eða mauka með töfra­sprota í soðvatn­inu með olíu, ósöltu smjöri, eða smjörva eða í svo­lít­illi sósu. Svo má bæta út í soðnu kjöti, kjöt­hakki, kjúklingi, eggjum eða fiski og mauka vel með töfra­sprota eða í mat­vinnslu­vél.

Einfalt er að taka frá lít­inn skammt af matnum sem er útbú­inn fyrir fjöl­skyld­una, áður en hann er salt­aður eða mikið krydd­aður. Þess þarf þó að gæta að allur fjöl­skyldu­matur hentar ekki fyrir ung­barnið, til dæmis unnar kjöt­vörur. Þ.e. kjöt sem er reykt, saltað eða rot­varið með nítrati eða nítríti, til dæmis pylsur, pepp­eróní, salt­kjöt og beikon. Saltaður eða reyktur fiskur hentar ung­barn­inu ekki heldur.

Eftir sex mánaða aldur

Kemst smám saman regla á mál­tíðir barns­ins. Flestum börnum hentar að borða eða drekka fimm til sex sinnum á dag, en sum þurfa að borða oftar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur