Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vilhjálmur segir atvinnulífið hafa notað lífeyri launafólks eins og botnlausan sparibauk

Vilhjálmur segir atvinnulífið hafa notað lífeyri launafólks eins og botnlausan sparibauk

Formaður Verka­lýðs­fé­lags Akraness gefur lítið fyrir „hneykslan“ margra full­trúa atvinnu­lífs­ins vegna vilja verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til að „verja samn­ings­rétt hins vinn­andi manns“. Hann segir þá greini­lega hafa gleymt því að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi tapað 500 millj­örðum í banka­hrun­inu vegna botn­lausrar græðgi atvinnu­lífs­ins.

„Nú stendur bunan og hneykslan upp úr full­trúum atvinnu­lífs­ins vegna þess að verka­lýðs­hreyf­ingin vildi verja grun­vallar rétt­indi launa­fólks sem er samn­ings­rétt­ur­inn. Nú koma þessir snill­ingar yfir sig hneyksl­aðir á fram­ferði verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og heimta að Fjár­mála­eft­ir­litið komi og tukti verka­lýðs­hreyf­ing­una til vegna þess að hún vog­aði sér að vilja verja samn­ings­rétt hins vinn­andi manns,“ segir Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, með vísan í kjara­við­ræður Flug­freyju­fé­lags Íslands og Icelandair.

Telur hann að margir full­trúar atvinnu­lífs­ins séu búnir að gleyma hvernig atvinnu­lífið not­aði líf­eyrir launa­fólks eins og botn­lausan spari­bauk fyrir banka­hrunið. „Veifuðu framan í suma af þeim sem stjórn­uðu líf­eyr­is­sjóð­unum fríum boðs­ferðum í dýr­ustu lax­veiðiár lands­ins, eins og fram kemur í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis,“ segir Vil­hjálmur, sem tjáir sig um málið á Facebook.

„Þeir óðu um á skítugum skónum um líf­eyr­is­sjóði launa­fólks og töp­uðu 500 millj­örðum af líf­eyrir vinn­andi fólks, vegna botn­lausrar græðgi atvinnu­lífs­ins á árunum fyrir hrun.“

Vil­hjálmur minnir launa­fólk á að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi tapað 500 millj­örðum í banka­hrun­inu vegna þess að þeir „stigu trylltan útrás­ar­dans með í atvinnu­líf­inu“. Vitnar hann í ræðu hjá Sigurði Ein­ars­syni, sem var banka­stjóri Kaup­þings, eins og hún er birt í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis: „Án þess þó að hafa rann­sakað það nákvæm­lega, þá held ég að það hafi ekk­ert íslenskt fyr­ir­tæki farið í útrás, án þess að líf­eyr­is­sjóðir hafi verið þar meðal helstu fjár­festa,“ sagði Sigurður Ein­ars­son í ræðu um hlut­verk líf­eyr­is­sjóð­anna árið 2008.“

Vil­hjálmur segir að svo stígi full­trúar atvinnu­lífs­ins fram yfir sig hneyksl­aðir og krefj­ist þess að Fjár­mála­eft­ir­litið láti málið til sín taka. „En þeir eru fljótir að gleyma að þeir óðu um á skítugum skónum um líf­eyr­is­sjóði launa­fólks og töp­uðu 500 millj­örðum af líf­eyrir vinn­andi fólks, vegna botn­lausrar græðgi atvinnu­lífs­ins á árunum fyrir hrun,“ segir hann og spyr hvar Fjár­mála­eft­ir­litið hafi verið þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð