Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Óttar og fjölskylda á flótta undan COVID-19: „Maður er bara í miðri seinni bylgju“

Óttar og fjölskylda á flótta undan COVID-19: „Maður er bara í miðri seinni bylgju“

Óttar M. Norð­fjörð rit­höf­undur og fjöl­skylda hafa flúið COVID-19 far­ald­ur­inn í Barcelona á Spáni. Fjöl­skyldan hefur tíma­bundið sest að hjá tengda­fjöl­skyldu Óttars suður í Andalúsíu og ætlar að vera þar um sinn þar til hættan er liðin hjá.

„Hug­myndin var upp­haf­lega að vera hérna í sum­ar­frí, en nú ber­ast þær fréttir að önnur bylgja sé að skella á í Barcelona þannig að nú erum við að velta fyrir okkur að vera lengur hérna,“ segir Óttar M. Norð­fjörð rit­höf­undur.

Óttar er búsettur í Barcelona á Spáni ásamt eig­in­konu sinni Eloísu Vázquez ljós­mynd­ara og tveimur ungum sonum þeirra, tveggja ára og tveggja mán­aða. Þar gripu stjórn­völd líkt og víða ann­ars staðar í heim­inum til víð­tækra ráð­staf­ana, meðal ann­ars með því að setja á strangt útgöngu­bann, vegna COVID-19 far­ald­urs­ins sem skall á í mars. Á tíma­bili leit út fyrir að veiran væri í rénun í Barcelona en Óttar ótt­ast að önnur bylgja kunni að vera yfir­vof­andi þar sem veiran er nú í örum vexti ann­ars staðar í Kata­lóníu. Þegar hafi verið sett á útgöngu­bann í einni borg, auk þess sem fjöldi smita hafi komið upp í einu hverfi Barcelona. Fjöl­skyldan, sem er í sum­ar­fríi í heimabæ Eloísu suður í Andalúsíu, íhugar því að dvelja þar lengur.

„Maður hefur nú smá áhyggjur af því að það sé verið að opna landið of snemma.“

„Í byrjun mán­að­ar­ins tókum við fyrstu lest­ina sem mátti fara með til Andalúsíu og ferð­uð­umst til heima­bæjar eig­in­konu minnar, þar sem stór hluti fjöl­skyldu hennar er búsettur. Við gátum ekki farið fyrr þar sem yngri sonur okkar er bara tveggja mán­aða og það er ekki snið­ugt að vera að ferð­ast með svona lítið barn. Mamma Eloísu ætl­aði fyrst að koma til okkar í Barcelona og hjálpa til með börnin en það er eig­in­lega ekki hægt að ferð­ast innan Spánar og þar að auki hættu­legt þannig að við ákváðum að fara til tengda­for­eldra minna í stað­inn,“ útskýrir Óttar. „Það má alveg segja að við séum að vissu leyti að flýja veiruna.“

Að hans sögn er allt annað líf að vera komin suður eftir. And­rúms­loftið í bænum sé mun afslapp­aðra. „Í Barcelona giltu mjög strangar reglur á tíma­bili vegna COVID-19. Þar komst maður ekki út úr húsi nema vera með hanska og grímu og í sér­stökum úti­fötum og þótt maður hafi auð­vitað farið að settum reglum og lagað sig að aðstæðum þá væri erfitt að fara í þann pakka aftur ef til þess kæmi. Hér er miklu rólegra og ekki sama para­noja í gangi enda slapp bær­inn vel í far­aldr­inum. Í kringum 100 þús­und manns búa hérna og það komu ekki einu sinni upp 30 smit. Hér er því allt annað líf. Jú jú, fólk er alveg með grímur en bara sumir og maður þarf ekki að spritta sig öllum stundum þannig að maður verður miklu minna var við ástandið hér en í Barcelona. Mér líður eig­in­lega svo­lítið eins og við höfum ferð­ast frá kór­óna­veirunni með því að koma hingað. Auk þess er stór hluti fjöl­skyldu Eloísu hér eins og ég segi, for­eldrar hennar, systk­ini, makar og börn og það fer afskap­lega vel um okkur heima hjá tengda­for­eldrum mínum.“

Óttar hefur verið búsettur í Barcelona á Spáni ásamt eig­in­konu sinni Eloísu Vázquez ljós­mynd­ara og tveimur ungum sonum þeirra, tveggja ára og tveggja mán­aða, en fjöl­skyldan er nú i Andalúsíu. Myndin var tekin í Barcelona þegar Eloísa gekk með yngri son­inn. Mynd / Elo Vázquez

Óttar segir að fjöl­skyld­unni standi líka til boða að dvelja hjá móður hans á Íslandi en það sé ögn flókn­ara ferli, með hlið­sjón af sótt­kvínni og því langa ferða­lagi sem þá biði fjöl­skyld­unnar. „En fjöl­skyldan á Íslandi er fegin að vita af okkur hér og fjöl­skylda Eloísu er ánægð að fá okkur.“

Framan af varstu til­tölu­lega afslap­aður yfir far­aldr­inum, eins og kom fram í við­tölum við þig, hef­urðu alveg náð að halda ró þinni í gegnum þetta allt? „Já já, ég hef svo sem alveg verið frekar rólegur,“ svarar hann, „svona þannig séð. Auðvitað er hræði­legt að lesa um veik­indi fólks og dauðs­föll, en ég hef reynt að líta á þetta sem verk­efni og ein­sett mér að smit­ast ekki. Þetta er bara heim­ur­inn í dag og það sem er í gangi og núna er verk­efnið að reyna að fara var­lega og kom­ast i gegnum þetta. Mín sam­fé­lags­lega ábyrgð er að smit­ast ekki, því þetta er ekki bara einka­mál og þess vegna hefur mér fund­ist pirr­andi þegar fólk sýnir kæru­leysi. Við það má svo bæta að þegar COVID-19 brast á þá vorum við Eloísa að und­ir­búa komu yngri sonar okkar í heim­inn þannig að maður var á kafi í því og hafði því ekki tíma til að hafa of miklar áhyggjur af ástand­inu.“

Talandi um það, ástandið, fylgistu eitt­hvað með fram­vindu mála á Íslandi? „Já, ég les frétt­irnar dag­lega. Maður hefur nú smá áhyggjur af því að það sé verið að opna landið of snemma en mér sýn­ist þið hafa verið í frekar góðum málum hingað til, enda bruð­ust Íslensk stjórn­völd skjótt við far­aldr­inum.

Spænsk stjórn­völd voru hins vegar lengi að aðhaf­ast nokkuð, eins og stjórn­völd víða ann­ars staðar. Það tók þau tvær vikur en þegar þau tóku við sér bruð­ust þau við af fullum krafti og settu á eina hörð­ustu sótt­kví held ég bara í allri Evrópu og náðu góðum tökum á far­aldr­inum. Nú þegar útlit er fyrir að seinna bylgjan sé að hefj­ast hér þá er bara spurn­ing hvernig stjórn­völd ætla að díla við það. Þau eru þegar farin að taka hart á ferða­mönnum sem fara ekki eftir settum sótt­varna­reglum sem er auð­vitað bara mjög gott mál. Svo hafa þau verið að prófa að setja ein­göngu í sótt­kví svæði þar sem veiran hefur blossað upp að nýju til að reyna að halda þjóð­fé­lag­inu gang­andi, því alls­herjar útgöngu­bann væri auð­vitað slæmt fyrir fjár­hag­inn, fyrir þjóð­ar­búið.“

„Þetta er bara heim­ur­inn í dag og það sem er í gangi og núna er verk­efnið að reyna að fara var­lega og kom­ast i gegnum þetta.“

Óttar segir að lík­leg­ast hefði fjöl­skyldan farið til Íslands hefðu þau hjónin ekki eign­ast barn í miðjum heims­far­aldri. „Það hefði verið mun þægi­legra að vera á Íslandi en á Spáni, maður sér það núna,“ við­ur­kennir hann. „Ísland er auð­vitað svo afvikið, eyja úti í hafi og maður blótar vin­unum í sand og ösku þegar þeir birta myndir af sér á sam­fé­lags­miðlum, grímu­lausum ein­hvers staðar á ferða­lagi um Ísland. En við höfum það rosa­lega fínt hérna í Andalúsíu hjá tengda­for­eldr­unum, eins og ég segi. Lífið er mjög gott og afslappað. Þetta er svona okkar Ísland.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð