Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslenskir viskígerðarmenn hampa gulli í London: „Erum gríðarlega stolt“

Íslenskir viskígerðarmenn hampa gulli í London: „Erum gríðarlega stolt“
Eimverk Distill­ery vann til gull­verð­launa fyrir íslenska viskíið Flóki Single Malt í London Spirits Competition Mynd / Eimverk Distill­ery

Íslenskt viskí vinnur til gull­verð­launa í London Spirits Competition 2020.

„Við erum gríð­ar­lega ánægð og stolt með að ná svona langt, þetta er auð­vitað frá­bær árangur,“ segir Haraldur Þor­kels­son for­stjóri Eimverks Distill­ery um árang­ur­inn, en Flóki Single Malt Whisky frá Eimverk Distill­ery vann í vik­unni til gull­verð­launa í London Spirits Competition 2020.

Yfir þús­und vörur frá 69 löndum voru skráðar í keppn­ina sem hófst þann 6. júlí, þar af 122 teg­undir af viskí. Af þessum 122 teg­undum hlutu aðeins þrjú önnur viskí gull­verð­laun. Hlaut Flóki alls 93 stig í keppn­inni, en í stiga­gjöf­inni vegur bragð vör­unnar hæst og gefur allt að 50 stig. Síðan eru 25 stig gefin fyrir verð­gildi og 25 stig fyrir útlit og fram­setn­ingu.

Haraldur við­ur­kennir að hann hafi búist við að Flóki næði góðum árangri í keppn­inni, en úrslitin hafi engu að síður komið þægi­lega á óvart. „Við áttum alveg von á að ná árangri en að fá svona mörg stig fyrir þriggja ára viskí, við erum alveg í skýj­unum yfir því,“ segir hann glaður.

„Við áttum alveg von á að ná árangri en að fá svona mörg stig fyrir þriggja ára viskí, við erum alveg í skýj­unum yfir því.“

Haraldur bendir á að ekki sé nóg með að Flóki hafi unnið til gull­verð­launa í keppn­inni heldur hafi viskíið líka náð inn á top tíu heild­ar­list­ann yfir alla drykki í keppn­inni. Það sé ekki síður góður árangur. „Það er auð­vitað virki­lega flott nið­ur­staða sem setur okkur í sér­stöðu,“ segir hann.

Flóki, sem kom fyrst á markað árið 2014, er fyrsta og eina íslenska viskíið og er fram­leitt úr íslensku byggi af Eimverk Distill­ery, eins og fyrr segir, en fyr­ir­tækið var stofnað árið 2011 með það að mark­miði að þróa og fram­leiða íslenskt viskí alfarið úr íslenskum hrá­efnum. „Við eigum stór­kost­lega gott vatn og bygg hér á Íslandi,“ segir Haraldur, „og und­an­farin 10 ár höfum við stöðugt verið að bæta okkur í viskígerð. Það er auð­vitað þol­in­mæð­is­verk að búa til gott viskí og það var ekki fyrr en á seinni hluta síð­asta árs sem við vorum komin með seríu sem við erum ánægð með og þá fyrst fórum að hug­leiða þann mögu­leika að fara að keppa.“

Haraldur getur þess að Flóki hafi verið tekið fagn­andi erlendis og sé nú fluttur út til yfir 20 landa, þar á meðal til Banda­ríkj­anna, Frakk­lands, Þýska­lands, Kína og Japan. „Sér­staðan, þessi íslenski keimur, hefur greini­lega skilað sér,“ segir hann. „Fólk finnur að þarna er eitt­hvað nýtt og spenn­andi á ferð og þess vegna hefur Flóki gengið svona vel í útflutn­ingi.“

Þess má geta að Eim­verk Distill­ery hefur áður unnið til verð­launa fyrir fram­leiðslu sína. Sem dæmi um það vann ginið Vor fyrstu verð­laun í alþjóð­legri keppni áfeng­is­fram­leið­enda, San Francisco World Spi­rits Com­peti­on, árið 2014. Teg­und­in var meðal sex ann­arra sem hlutu fyrstu verð­laun í flokkn­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni