Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslensk ofurfæða sem kostar ekki krónu

Íslensk ofurfæða sem kostar ekki krónu
Eydís Mary Jóns­dóttir, einn höf­undur bók­ar­innar Íslenskir mat­þör­ungar. Myndir / Karl Pet­ers­son

Íslenskir mat­þör­ungar er ný hag­nýt og fræð­andi bók sem opnar les­endum heim mat­þör­unga við strendur Íslands. Að sögn höf­unda er þetta í fyrsta sinn sem alhliða fróð­leikur um þá ofur­fæðu sem mat­þör­ungar eru birt­ist í íslenskri bók.

Bókinni er ætlað að gera fólki um allt land kleyft að geta farið niður í fjöru, átt ynd­is­lega stund með fjöl­skyldu og vinum í fjörumó og farið svo heim og eldað úr því sem tínt var. Mynd / Karl Pet­ers­son

„Ég veit eig­in­lega ekki hvernig stendur á því að eng­inn hefur gert svona bók á Íslandi áður, kannski er eng­inn nógu klikk­aður til þess,“ segir einn fjög­urra höf­unda bók­ar­innar, Eydís Mary Jóns­dóttir, og skelli­hlær, þegar hún spurð hvort það geti virki­lega að stað­ist að þetta sé fyrsta íslenska heild­stæða ritið um mat­þör­unga.

„Það hafa alveg birst upp­skriftir hér og þar, en svona bók hefur ekki komið út áður hér­lendis. Ég veit ekki hver ástæðan er, kannski þótti þetta ein­fald­lega ekki nógu fínt. Í gamla daga, áður en við fórum að flytja inn mat, þá voru mat­þör­ungar auð­vitað helsta C vítamín upp­spretta þjóð­ar­innar og borð­aðir til þess að koma í veg fyrir skyr­bjúg. Söl voru meira að segja flutt á milli lands­hluta, þau voru okkur bara algjör­lega lífs­nauð­syn­leg og fólk var mjög með­vitað um þá stað­reynd. Þegar íslend­ingar byrja í auknu magni að flytja inn mat erlendis frá er eins og almenn­ingur fari að upp­lifa mat­þör­unga sem fátækra manna mat sem það jafn­vel skamm­að­ist sín fyrir að nýta og þannig var það lengi. Á und­an­förnum árum hefur sem betur fer orðið breyt­ing þar á og sífellt fleiri farnir að átta sig á því að mat­þör­ungar eru ekki bara góð, sjálf­bær nær­ing­ar­upp­spretta heldur einnig gríð­ar­lega skemmti­legt og gott hrá­efni í mat­ar­gerð. Við þurfum bara að afla okkur þekk­ingar til að vita hvernig best er að nýta þá,“ segir hún og bendir á að þar komi bókin einmitt að góðum notum.

„Það er engin planta sem vex upp á landi sem inni­heldur jafn mikið og fjöl­breytt magn nær­ing­ar­efna, vítamína og líf­virkra efna eins og þör­ungar.“

Bókinni er ætlað að gera fólki um allt land kleyft að geta farið niður í fjöru, átt ynd­is­lega stund með fjöl­skyldu og vinum í fjörumó og farið svo heim og eldað úr því sem tínt var. „Við erum gríð­ar­lega heppin að búa á Íslandi því hring­inn í kringum landið er að finna gríð­ar­legt magn mat­þör­unga og það er komin tími til þess að við Íslend­ingar lærum að nýta og njóta betur þess sem landið hefur að gefa. Í bók­inni er hægt að fræð­ast um það hvað þör­ungar eru, hvers vegna við eigum að borða þá, hvar þeir vaxa, hvernig má nýta þá á sjálf­bær­ann hátt svo sem sjálf­bæra nýt­ingu mat­þör­unga, verkun og geymslu­að­ferða. Við lögðum mikla áherslu á að bókin væri sett upp á bæði fal­legan og aðgengi­legan hátt,“ lýsir Eydís, en bókin hefur að geyma kort sem sýna vaxt­ar­svæði átta helstu mat­þör­unga lands­ins auk leið­bein­inga um það hvernig lesa má flóða­töflur til að kom­ast að hinum ólíku teg­undum.

„Um það bil helm­ing­ur­inn af bók­inni eru upp­skriftir eða 50 tals­ins eftir Hinrik Carl Ell­erts­son mat­reiðslu­meist­ara. Þær eru ólíkar, en eiga það sam­eig­in­legt að vera ein­faldar og aðgengi­legar og umfram allt annað: bragð­góðar,“ segir hún og nefnir í því sam­hengi fyrstu upp­skrift bók­ar­innar: harð­fisk, söl og smjör. „Mér þykir svo­lítið vænt um hana því þetta var týpískur hádeg­is­matur á Suð­ur­landi um aldir. Þetta er góð upp­skrift og í raun ofboðs­lega ein­föld og það er gaman að hún skuli hafa fylgt okkur Íslend­ingum frá land­námi, en í bók­inni leikum við okkur aðeins með hana þar sem smjörið er brennt sem gefur því dásam­legt, kara­mel­íserað bragð.“

Miklu meira en bara ofurfæða

Eydís bendir á að það sé leitun að annarri eins ofur­fæðu og þör­ungum. „Þá á ég við að þör­ungar eru einar nær­ing­ar­rík­ustu líf­verur sem við höfum aðgang að hér­lendis sem og erlendis. Það er engin planta sem vex upp á landi sem inni­heldur jafn mikið og fjöl­breytt magn nær­ing­ar­efna, vítamína og líf­virkra efna eins og þör­ungar. Þeir vaxa í gríð­ar­lega erf­iðum, síbreyti­legum aðstæðum og til þess að lifa af þurfa þeir að fram­leiða þeir mikið af öfl­ugum, líf­virkum efnum sem plöntur sem vaxa við mild­ari skil­yrði þurfa ekki að fram­leiða, efnum sem eru til dæmis bólgu- og vírus­hemj­andi. Því er algengt að unnin séu efni úr þör­ungum sem eru notuð í lyf, fæðu­bót­ar­efni og snyrti­vörur. Þeir eru miklu meira en bara ofur­fæða.“

Eydís segir að bókin sé líka nokkuð merki­leg fyrir þær sakir að í henni er að finna fyrr­nefnd þör­unga­kort. „Þetta eru afskap­lega aðgengi­leg kort sem sýna útbreiðslu þeirra við íslands­strendur. Þarna er sem sagt búið að kort­leggja strandir Íslands með til­liti til þess hvar mat­þör­unga er að finna. Þetta eru upp­lýs­ingar sem þú finnur hvergi ann­ars staðar, þetta er alveg nýtt,“ segir hún og bætir við í raun megi segja að kortin séu kveikjan að bók­inni.

Um það bil helm­ing­ur­inn af bók­inni eru upp­skriftir eða 50 tals­ins eftir Hinrik Carl Ell­erts­son mat­reiðslu­meist­ara. Mynd / Karl Pet­ers­son

„Ég er land- og umhverf­is­fræð­ingur að mennt og var að vinna að kort­lagn­ingu fjöru­vist­gerða fyrir Nátt­úru­stofu Suð­vest­ur­lands og Nátt­úru­fræði­stofnun, sem varð til þess að ég fékk áhuga á þör­ungum og er síðan þá búin að ganga með þá hug­mynd í mag­anum að gera bók um mat­þör­unga á Íslandi. Fyrir þremur árum kom svo mág­kona mín Silja Dögg Gunn­ars­dóttir að máli við mig. Á fjörur hennar hafði rekið erlend mat­reiðslu­bók um mat­þör­unga sem hún vildi þýða og þegar ég skoð­aði hana leit ég á hana og sagði: „Nei veistu, við gerum bara okkar eigin bók!“

Við fengum Hinrik Carl Ell­erts­son mat­reiðslu­meist­ara til liðs við okkur og þegar Karl Petersen ljós­mynd­ari, sem er einn ást­sæl­asti mat­ar­ljós­mynd­ari lands­ins, bætt­ist í hóp­inn fyrir hans til­stuðlan byrjað bókin að mót­ast. Einar Geir og Ósk hjá hönn­un­ar­stof­unni E&Co unnu ein­stakt verk við hönnun hennar og nú þremur árum síðar er bókin Íslenskir mat­þör­ungar orðin að veru­leika,“ segir hún en bókin kom út rétt fyrir helgi.

„Já, það er hægt að nálg­ast hana í versl­anir Pennans Eymunds­sonar, henni var dreift í flestar búðir fyrir helgi, eða kaupa hana í gegnum heima­síðu bóka­út­gáf­unnar Sögur útgáfa, sogurut­gafa.is, sem gefur bók­ina út,“ segir Eydís glað­lega. „Hún verður aðgengi­leg þar í vik­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni