Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Enn flytjum við inn klaka frá Noregi

Norðmenn selja Íslendingum ísmola í tonnavís. Mynd/Unsplash
Norðmenn selja Íslend­ingum ísmola í tonna­vís. Mynd/Unsplash

Fyrir fáeinum árum var nokkuð fjallað um þá sérkenni­legu staðreynd að verið væri að flytja inn ísmola frá útlöndum. Það er áhugavert, einkum í ljósi aukinnar umhverfis­vitundar fólks, að árið 2020 sé ennþá verið að flytja klaka yfir hafið. Til hvers? Við eigum jú nóg af góðu vatni og flest ef ekki öll heimili eru með frysti.

Í verslunum Hagkaups, svo dæmi sé tekið, er seldur klaki frá Mr. Iceman. Klaka­pokinn vegur tvö kíló og kostar 349 krónur. Mr. Iceman kemur alla leið frá Noregi. Það er enn undarlegra að hann er ódýrari en íslenskur klaki sem seldur er t.d. í Krónunni og er frá Ísmanninum. Sá er á 269 krónur kílóið.

Hefur ekkert breyst?

Snemma árs 2016 sagði Katrín Jakobs­dóttir í ræðu á Alþingi að hún teldi „mjög mikilvægt að við hugum að því hvernig við getum eflt innlenda land­búnaðar­framleiðslu, matvæla­öryggi og fæðu­öryggi, og að við látum af hlutum eins og að flytja ísmola á milli landa sem væntanlega stangast verulega á við þau loftslags­markmið sem Ísland hefur undir­gengist.“

Sama ár var greint frá því í fréttum RÚV að klaki væri fluttur inn í tonnavís í gámum frá Banda­ríkjunum og Bretlandi.

Kolefnis­sporið við slíkan flutning er stórt og ættu neytendur að huga að því hvaðan klakinn í búðinni kemur ef þeir hafa áhuga á umhverfis­málum. Því þrátt fyrir ummæli Katrínar Jakobs­dóttur þarna um árið þá hafa Íslendingar ekki látið af að flytja ísmola á milli landa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra