Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bjóða í óvenjulega ferð

Bjóða í óvenjulega ferð
Kristín Eva Ólafs­dóttir, hönn­un­ar­stjóri og einn eig­enda Gagarín hönn­un­ar­stofu.

Íslensk hönn­un­ar­stofa frum­sýnir óvenju­legt verk og vinnur til alþjóð­legra verð­launa.

„Þetta er auð­vitað frá­bær árangur sem á eftir að vekja athygli á okkur erlendis og svo er þetta gríð­ar­lega mik­ill heiður líka. Í raun stað­fest­ing á því að það sem við erum að gera sé á pari við það besta sem er að ger­ast í þessum bransa úti í heimi,“ segir Kristín Eva Ólafs­dóttir, hönn­un­ar­stjóri og einn eig­enda Gagarín hönn­un­ar­stofu.

Stofan hlaut nýverið SEGD hönn­un­ar­verð­launin fyrir gagn­virkt sýn­ing­ar­at­riði sem hún hann­aði fyrir forn­leifa og sögu­safnið Pointe-à-Callière í Montreal, Kanada. Í safn­inu stendur yfir sýn­ing þar sem gestum gefst færi á að kanna heill­andi heim Perú í gegnum sið­menn­ingu Inka og hann­aði Gagarín síð­asta verk sýn­ing­ar­innar, staf­rænan vefstól sem kall­ast Weaving Time og færir gest­ina nær hand­verki Inkanna.

„Þetta er auð­vitað frá­bær árangur sem á eftir að vekja athygli á okkur erlendis og svo er þetta gríð­ar­lega mik­ill heiður líka.“

„Gest­irnir velja sjálfir mynstur, pússla þeim saman og vefa í sam­ein­ingu stórt gagn­virkt teppi sem flétt­ast síðan um sýn­ing­ar­rýmið, þeir verða þar með með­höf­undar að atrið­inu. Verkið er því gagn­virkt og síbreyti­legt,“ útskýrir Kristín Eva og bætir við að mynstrin í verk­inu byggi á alda­gam­alli hefð.

Hafa ekki séð lokaútgáfuna með eigin augum

SEGD, eða The Society for Exper­ential Graphic Design, sam­anstendur af 2.200 félags­mönnum frá um þrjá­tíu löndum og eru þver­fag­leg alþjóða­sam­tök sýn­inga­hönn­uða, arki­tekta, graf­ískra hönn­uða, mark­aðs­fólks og kenn­ara. Alls tóku 340 aðilar þátt í sam­keppn­inni í ár og að sögn Krist­ínar Evu vann Gagarín í flokknum gagn­virkar inn­setn­ingar. Í umsögn dóm­nefndar segir að oft séu staf­rænar inn­setn­ingar fram­settar með snert­iskjám og tölvum en hér sé á ferð­inni „virki­lega skemmti­legt áþreif­an­legt not­enda­við­mót sem fær gesti til að upp­lifa vefnað á raun­veru­legan hátt þar sem gestir eru hvattir til að gefa sér tíma til að setja saman tákn­myndir Inka í eigin vefnað,“ eins og það er orðað.

Menning Inkanna hefur ætíð verið sveipað ákveð­inni dulúð en Inkar eru þó einna þekkt­astir fyrir ótrú­lega hönnun og gæða­efni í vefn­aði.

„Það sem gerir þetta verk líka svo­lítið sér­stakt,“ heldur hún áfram, „er að öll vinnsla fór fram í gegnum netið. Kúnninn, Pointe-à-Callière safnið í Montreal, sendi okkur bara fyr­ir­spurn, sögðu að til stæði að setja þessa sýn­ingu upp í safn­inu og vildu kanna hvort við gætum hannað gagn­virkt loka­at­riði, sem tengd­ist vefn­aði Inka. Við héldum það nú, lögð­umst í svolitla heim­ilda­vinnu og hug­myndin að vefstólnum varð til á hug­ar­flugs­fundi. En við hittum engan frá Pointe-à-Callière, heldur þró­uðum og hönn­uðum vefstól­inn hér heima, þetta tók nú ekki lengri tíma en þrjá mán­uði og sendum svo afrakst­ur­inn út. Við höfum ekki einu séð loka­út­gáf­una, þ.e verkið upp­sett með eigin augum, nema bara á vid­eói og ljós­myndum.“

Mynstrin sem voru útfærð fyrir lausn­ina eiga öll stoð í þess­ari alda­gömlu hefði en eru útfærð á nútíma­legan hátt í bjart­ari litum.

Fleiri spennandi verkefni á döfinni

Spurð hvort vef­stóll­inn sé eitt­hvað í lík­ingu við fyrri verk Gagarín segir Kristin Eva að hann sé klár­lega í ætt við annað sem stofan hefur sent frá sér „Við sér­hæfum okkur í gerð staf­rænnar hönn­unar og gagn­virkum upp­lif­unum, mest­megnis fyrir söfn og sýn­ingur. Miðlum gjarnan alls kyns upp­lýs­ingum og fræðslu til almenn­ings, til dæmis varð­andi sögu og nátt­úru,“ lýsir hún. „Þessi vef­stóll fellur því vel að því sem við höfum verið að gera, í þessu til­viki er um að ræða stakt atriði en oft hönnum við heilu sýn­ing­arnar.“

Meðal sýn­inga sem Gagarín hefur komið að eru Lava eld­falla- og jarð­skjálfta­setur á Hvols­velli, Land­náms­sýn­ingin Aðal­stræti, nátt­úru­minja­safnið í Osló, mann­rétt­inda­safn í Kanada og rokk­safn í Noregi. „Um þessar mundir erum við svo að vinna mjög spenn­andi verk­efni fyrir Den Blå Planet í Kaup­manna­höfn sem er í raun frétt út af fyrir sig því þar sem þetta er stærsta sædýra­safnið á Norð­ur­löndum,“ segir hún létt í bragði „Þanng að það er óhætt að segja að við höfum nóg fyrir stafni.“

Gagarin hann­aði síð­asta verk sýn­ing­ar­innar, staf­rænan vefstól sem kall­ast Weaving Time og færir gest­ina nær hand­verki Inkanna.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni