Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Egill um þunglyndið og COVID: Keypti frystikistu og birgði sig upp af mat

Egill Helgason. Mynd / RÚV
Egill Helgason. Mynd / RÚV

„Maður festist í þráhyggju­kenndum hugsunum – bak við mann er fortíð sem virkar óbærilega þung, full af eftirsjá en fyrir framan skelfing óviss framtíð. Maður týnir núinu þar sem er sagt að hamingjuna sé helst að finna. Svo hættir maður að geta sofið, vaknar á nóttinni og hinar þungu hugsanir troða sér strax fram,“ segir Egill Helgason sjónvarps­maður í forsíðu­viðtali við Frétta­blaðið um andleg veikindi sín.

Egill sagði frá því í vor að hann glímdi við kvíða og þunglyndi. Þessir vágestir höfðu lengi blundað í honum. Hann sagði þá lýsa sér í frekar lágu sjálfs­mati. Honum hafi hins vegar oft tekist að breiða yfir þetta með því að vera glaður í bragði út á við.

„Þetta fór að ágerast hjá mér fyrir svona fjórum árum, en það var í fyrravor að ég upplifði alvarleg kvíðaköst,“ segir hann í Frétta­blaðinu og lýsti því hvernig hann tekst á við þetta ástand.

„Lyf hjálpa, hugleiðsla, tímar hjá sálfræðingum, göngutúrar við sjóinn. En þetta er lúmskt og læðist aftan að manni þegar minnst varir,“ segir Egill.

Húskarl hjá Zuckerberg

Henn hefur um árabil verið með pistla á Eyjunni en sá samningur virðist hafa runnið sitt skeið á enda ef marka má að hann hefur að eigin sögn engan vettvang til að skrifa á nema Facebook þar sem hann skrifi óþarflega mikið.  „…En mér er illa við að vera húskarl hjá Zuckerberg,“ skrifar Egill. .

Agli líður bærilega á þessarri stundu. Hann segir í viðtalinu að COVID-faraldurinn og áhrif hans hafi vissulega áhrif á geðheil­brigði sitt.

„Mér finnst sjálfsagt að tala um þetta. Samt er ég ekki maður sem er gjarn á að bera tilfinningar sínar á torg, er líklega frekar dulur og ekkert sérlega hrein­skilinn. En af hverju ætti það að vera feimnismál? Ég er bara svona. Ég hef neyðst til að horfast í augu við það síðustu misserin – held ég hafi um tíma leitað skjóls undan kvíðanum og þung­lyndinu í alltof mikilli vinnu. Fannst um tíma eins og hún væri upphaf og endir alls – og að maður þyrfti helst stöðugt að vera að og í sviðs­ljósinu. Mætti aldrei missa úr þátt. En lykillinn að nokkuð stöðugri lífs­hamingju er ekki þar.“

Sankaði að sér lyfjum

Óttinn við faraldurinn varð til þess að Egill gerði ráðstafanir til þess að geta einangrað sig fullkomlega ef þyrfti.

„Í febrúar keypti ég frysti­kistu í fyrsta sinn á ævinni og við birgðum okkur upp af mat og lyfjum. Það var í fyrsta sinn sem ég hef búið mig undir að loka mig af. Sem betur fer reyndist pestin ekki jafn skæð og til dæmis Spænska veikin, en maður þarf samt að beita öllum ráðum til að smitast ekki,“ segir hann í viðtalinu við Frétta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Pólitík

Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

Þingmaðurinn hvatti á Alþingi til vandaðra rannsókna á brotum gegn lögreglumönnum vegna starfa þeirra.
Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Pólitík

„Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fanginn missti heimild til samfélagsþjónustu og fékk ekki að ljúka afplánun á Vernd.

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur