Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Marinó rekinn vikum eftir hetjulega baráttu við heilaæxli: „Misst sjónina og sá stjörnur“

Marinó rekinn vikum eftir hetjulega baráttu við heilaæxli: „Misst sjónina og sá stjörnur“
Mynd / Aðsend.

Tinna Berg Rún­ars­dóttir segir farir sínar ekki sléttar við Rúm­fatalager­inn í sam­tali við Mannlíf en færsla hennar á Facebook hefur vakið mikla athygli. Maðurinn hennar Marinó Magnús starf­aði þar sem versl­un­ar­stjóri í nokkur ár en svo kom áfallið. Hann var greindur með heila­æxli og fór í aðgerð þess vegna. Hann náði bata nokkuð skjótt þrátt fyrir allt. Tinna segir að ekki hafi liðið að löngu eftir að hann kom til vinnu á ný þar til að honum var sagt upp.

Tinna lýsir mál­inu nánar og segir: „Eins og margir vita hefur mað­ur­inn minn starfað sem versl­un­ar­stjóri í Rúm­fatala­gernum und­an­farin ár. Hann tók við verslun á Selfossi árið 2015 og að mínu mati kom henni svo­lítið á kortið aftur. Marinó hefur alltaf stundað sína vinnu vel, haft allan hug við vinn­una og meira segja svo oft þannig að vinnan hefur haft for­gang yfir okkur fjöl­skyld­una hans. Marinó hefur alltaf verið mjög heilsu­hraustur, sjaldan sem aldrei las­inn, hefur sloppið vel við að vera heima með veik börn eða eig­in­konu,“ segir Tinna.

Veiktist fyrst í vinnunni

Það var í vor sem fann fyrst fyrir æxl­inu. „Þann 1 apríl síð­ast­lið­inn kemur Marinó heim úr vinnu og segir mér að hann hafi fengið haus­verk, misst sjón­ina og séð stjörnur í smá­stund í vinn­unni (fór hann heim úr vinnu, nei alls ekki). Ég neyði hann upp á HSU því ég hélt að hann væri að fá heila­blóð­fall eða slag. Ekkert kom í ljós í þess­ari skoðun en hann var boð­aður í mynda­töku vik­una á eftir. Allan apríl var hann reglu­lega í mynda­tökum og svo­leiðis en fékk aldrei svona „kast” aftur,“ segir Tinna.

Hann fékk síðar í mán­uð­inum grein­ingu. „Í lok apríl kemur svo í ljós að hann sé með æxli við heila, rétt við heila­d­ingul. Sjokkið var gíf­ur­legt og þurftum við alveg smá tíma til að með­taka þetta. Okkur var sagt að hringt yrði næstu eina til tvær vik­urnar til að boða hann í aðgerð til að reyna að skera æxlið í burtu. 14. maí fór Marinó í aðgerð til að fjar­lægja æxlið og fram að því mátti hann ekki vera í vinn­unni, vegna ein­hverrar veiru sem herjar á sam­fé­lagið okkar,“ segir Tinna.

Hafði aldrei séð svo mikið blóð

Hún segir að þetta hafi gengið vel miðað við aðstæður. „Aðgerðin gekk vel og náðu þeir að fjar­lægja allt. Marinó var heima í 2 vikur til að jafna sig og ætl­aði að mæta í vinnu aftur 1. júní, en ákvað að taka aðeins lengri tíma í að jafna sig. Í júní vorum við úti í garð­inum þegar byrj­aði að blæða úr nef­inu á honum, svo mikið að nefið réði ekki við það heldur fruss­að­ist út úr munn­inum á honum, ég hef aldrei á minni ævi séð jafn mikið blóð,“ lýsir Tinna.

Hann segir að aldrei hafi heyrst í neinum yfir­manni Marinós. „Hann var fluttur með skyndi upp á HSU þar sem reynt var að stoppa blæð­ing­una í þrjár klukku­stundir án árang­urs, hann var því fluttur í Reykja­vík þar sem þeim tókst að stöðva blæð­ing­una eftir 6 klst. Lækn­arnir fundu enga útskýr­ingu á þess­ari blæð­ingu en næstu 3 fimmtu­daga á eftir blæddi úr nef­inu á honum, hann var sendur í mynda­töku og alls­konar rann­sóknir en þeir hvorki fundu stað­inn sem blæddi frá né merki um blæð­ingu. Meðan á þessum veik­indum stóð heyrð­ist ekki í einum yfir­manni Rúm­fatala­gers­ins til að svo mikið sem athuga hvernig hann hefði það,“ segir Tinna.

Mætti til vinnu fljótt

Þrátt fyrir þetta hafi Marinó mætt til vinnu í byrjun júlí. „Þann 6. júlí byrjar Marinó að vinna aftur og af fullum krafti eins og honum einum er lagið. Þann 27. júlí er hann boð­aður á fund hjá fram­kvæmd­ar­stjóra Rúm­fatala­gers­ins þar sem honum er sagt upp á staðnum, ekki er óskað eftir að hann vinni upp­sagn­ar­frest­inn, svo er hann bara sendur heim, atvinnu­laus. Í upp­sagn­ar­bréf­inu kemur fram að honum hafi verið sagt upp vegna skipu­lags­breyt­inga sem er víst það sem fyr­ir­tæki geta skýlt sér bak við. Örfáum klukku­stundum eftir að honum er sagt upp er búið að loka net­fang­inu hans, nafn hans fjar­lægt af heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins og hrein­lega eins og mað­ur­inn hafi aldrei starfað þarna,“ segir Tinna.

Hún veltir fyrir sér hvort þetta geti verið eðli­legt. Farið er fram á rök­stuðn­ing á upp­sögn og fékk hann útskýr­ingar sem eiga ekki við nein rök að styðj­ast, hvorki tölu­legar né annað. Skipu­lags­breyt­ing­arnar eru þær að breyta eigi starf­inu hans og laun­unum. Hvernig er hægt að breyta starfi versl­un­ar­stjóra, á ekki að hafa neinn versl­un­ar­stjóra eða? Ég bara spyr því ég veit ekki,“ spyr Tinna.

Aldrei kvartað

Hún segir að aldrei hafi verið kvartað undan störfum hans. „Það eru allir hissa á þessu því engar við­var­anir hefur hann fengið að heyra áður, aldrei fengið að heyra aðfinnslur af starfi hans eða neitt í nánd við það. Allt í einu, upp úr þurru er mann­inum bara sagt upp og missir þar af leið­andi allt vinnu­ör­yggi. Eins finnst mér eins og mjög mörgum, und­ar­legt að upp­sögn komi fyr­ir­vara­laust nán­ast um leið og mað­ur­inn mætir til vinnu eftir svo alvar­leg veik­indi,“ segir Tinna og bætir við að lokum:

„Mér finnst ótrú­legt að stór fyr­ir­tæki eins og Rúm­fatalager­inn geti bara komið svona fram við fólk sem hefur lagt allt sitt í vinn­una, unnið dag og nótt þegar var verið að flytja búð­ina á nýja stað­inn, allt til­bú­inn að redda því sem þarf að redda og fleira má telja. Ég hef heitið því að ég mun ekki versla í Rúm­fatala­gernum framar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð