Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Anna Katrín segir foreldra sína eitraða: „Róbert barnaníðingur er ein af afleiðingunum“

Anna Katrín segir foreldra sína eitraða: „Róbert barnaníðingur er ein af afleiðingunum“

„Mér finnst svo mik­il­vægt að við opnum á umræð­una um hvað börn eitr­aðra for­eldra þurfa að ganga í gegnum og hverjar afleið­ing­arnar séu. Ég veit að ég er ekki ein um allar þessar upp­lif­anir og því hvet ég ykkur sem hafið ekki þor til þess að sýna stuðn­ing til þeirra sem eru fastir í sam­skiptum við eitr­aða for­eldra að draga tjöldin frá ykkar eigin með­virkni og byrja að stíga skrefin fram á við.“

Þetta skrifar Anna Katrín, ein af bar­áttu­konum #höfum hátt og þol­andi hins alræmda Robert Downey. Hún birti í gær­kvöldi pistil á Facebook-síðu sinni þar sem hún opnar á lítið rætt vanda­mál hér á landi. Hún seg­ist vera barn „toxic“ for­eldra, sem mætti þýða sem eitr­aðir for­eldrar. Pistill­inn hefur vakið mikil áhrif á stuttum tíma. Hún hvetur lands­menn til að hætta með­virkni gagn­vart for­eldrum sem brjóta á börnum sínum ýmist and­lega, lík­am­lega eða kyn­ferð­is­lega.

Pistill Önnu Katrínar í heild sinni:

Að vera barn Toxic Foreldra

Ég hef ekki verið þekkt fyrir að hlýða óskrif­uðum reglum. Minn dýpsti kjarni öskrar á mig að “rugga bátnum”, að hafa hátt og tala um fíl­inn í her­berg­inu. Minn draumur er að geta nýtt reynsl­una mína hvort sem hún er góð eða slæm til þess að hjálpað öðrum – og ég trúi því það sé minn til­gangur í þessu dýr­mæta lífi.

Mér finnst bæði mik­il­vægt og löngu kom­inn tími á að opna á umræð­una um Toxic for­eldra og áhrifin sem þeir geta haft á börnin sín – áhrif sem fylgja börn­unum allt þeirra líf – bar­átt­una sem börnin þurfa að ganga í gegnum til þess að öðl­ast frelsi – með­virkn­ina sem börnin upp­lifa og skömm­ina.

En hvað er Toxic for­eldri? – Fyrir mér þá er Toxic for­eldri – for­eldri sem hefur ekki unnið úr – horfst í augu við – tek­ist á við eða borið ábyrgð á sínum eigin áföllum og sárs­auka og býr þar að leið­andi yfir eitr­uðum áhrifum. For­eldrið tekur út sinn sárs­auka á barn­inu á svo marg­slung­inn hátt t.d. með því að beita barnið and­legu og lík­am­legu ofbeldi – van­rækslu – stjórnun – þöggun og fleira. For­eldrið ber eitrið þannig í börnin sín og aðra fjöl­skyldu­með­limi hvort sem það ger­ist með­vitað eða ómeð­vitað og úr því skap­ast mjög eitrað sam­skipta­mynstur og þ.a.l. slæm með­virkni.

Það er engum auð­velt að við­ur­kenna að eiga Toxic for­eldra – en ég ætla að stíga skrefið út úr felu­leiknum – skömminni – hræðsl­unni og við­ur­kenna það :

Ég á tvo Toxic for­eldra – móðir og faðir – og það er minn sann­leikur.

Eft­ir­far­andi eru smá brot úr sög­unni minni – brot af þeim til­finn­ingum sem ég get ekki lýst með orðum en lýsa að hluta til upp­lifun minni – eitr­inu og van­ræksl­unni sem ég bjó við :

*Til­finn­ingin þegar for­eldrar þínir voru að ríf­ast – öskra og slást – á meðan ég sit stjörf inní her­bergi og heyri svo þegar annað for­eldrið hendir hinu for­eldr­inu á her­berg­is­hurð­ina mína og hélt því föstu þar – ég varð svo hrædd að ég þorði ekki að anda.

*Til­finn­ingin þegar ég kom heim úr skól­anum og fann annað for­eldri mitt liggj­andi í rúm­inu sínu en ég náði ekki að vekja það. Ég er það ung að ég kann ekki að hringja á sjúkra­bíl svo ég hringdi í fyrsta núm­erið í síma­skránni.

*Til­finn­ingin þegar ég kom heim úr skól­anum og for­eldrar mínir voru búnir að vera að ríf­ast og voru svo reið út í hvort annað að annað þeirra hafði látið sig hverfa. Ég læsti mig inni í her­berg­inu mínu stjörf af hræðslu, ein heima með hinu for­eldr­inu sem rústaði íbúð­inni – hvolfdi öllum hús­gögn­unum – öskr­aði – reif allar blað­síð­urnar úr bibl­í­unni og dreifði þeim um íbúð­ina og skildi mig svo eina eftir – það næsta sem ég man var að ég var stödd í kjall­ara­her­bergi í kvenna­at­hvarf­inu.

*Til­finn­ingin þegar ég var ung­lingur og gat látið mig hverfa af heim­il­inu í tvo sól­ar­hringa án þess að for­eldrar mínir svo lítið sem athug­uðu hvar ég væri – á meðan raunin var sú að ég var stödd heima hjá barn­a­níð­ingi sem var að mis­nota mig kyn­ferð­is­lega og borga mér pen­ing fyrir mis­notk­un­ina – vit­andi ástandið á heim­il­inu og nýtti sér það.

*Til­finn­ingin þegar ég var að passa systk­ini mín og for­eldrið mitt kom svo drukkið heim að það hrundi á gólfið í and­dyr­inu og lá þar kylli­flatt með úti­dyra­hurð­ina galopna. Höfuðið á því skall svo fast á flís­arnar á gólf­inu að ég veit ekki hvort að það rot­að­ist eða dó við höggið – en ég þorði ekki að gá – svo ég faldi mig inni í her­bergi alla nótt­ina.

*Til­finn­ingin þegar ég reyndi að setja mörk eða gera upp æsk­una við for­eldrið mitt en er þá kölluð dramat­ísk og for­eldrið labb­aði í burtu og afneit­aði mér og börn­unum mínum.

*Til­finn­ingin þegar for­eldrið mitt sagð­ist þurfa að velja á milli sam­skipta við mig og barna­börnin sín á móti sam­band­inu við mak­ann sinn – maka sem not­aði mig og mín eigin börn gegn því og beitti okkur and­legu ofbeldi.

*Til­finn­ingin þegar ég man­aði mig upp í að setja heil­brigð mörk við for­eldrið mitt um sam­skipti en fékk sím­tal klukkan tvö um nótt­ina þar sem það til­kynnti mér með þvoglu­mæltri röddu að það sé búið að taka tvö spjöld af lyfjum og sé að reyna að fyr­ir­fara sér. Ég heyrði svo sím­ann detta í gólfið – ég horfði svo á eftir sjúkra­bílnum keyra með for­eldrið í burtu og veit ekki hvort að það myndi lifa af eða deyja og skila­boðin voru að þetta var mér að kenna – því ég reyndi að setja mörk.

Að vera barn eitr­aðs for­eldris og lifa alla sína barn­æsku við þá tál­sýn að þú sért elskuð af for­eldrum þínum þegar raunin er sú að þú ert það ekki. Það er erfitt að ímynda sér hversu eyði­leggj­andi slík van­ræksla er fyrir lítið barns­hjarta sem þráir ekk­ert heitar en að vera elskað og sam­þykkt, og lifir líf­inu sínu oft í þeim eina til­gangi að finna raun­veru­lega umhyggju á meðan sorgin, hræðslan og sam­visku­bitið nagar það að innan.

Barn sem hefur alist upp í eitr­uðu umhverfi t.d. frá því að það varð til í móð­ur­kviði ber því óhjá­kvæmi­lega með sér stóra áfalla­sögu og lík­am­leg og and­leg ein­kenni eftir því.

Ein­kennin geta verið : áfallastreituröskun – almennur kvíði – ofsaka­víði – þung­lyndi – vefja­gigt – ofur­næmt tauga­kerfi – hjart­slátt­ar­trufl­anir – við­kvæmt ónæm­is­kerfi, -sjúk­dómar – mígreni o.fl. Oft þá fylgja þessir kvillar barn­inu alla þeirra ævi.

Í sumum til­fellum þá sam­þykkir for­eldrið til­finn­ingar og upp­lif­anir barns síns með því að hlusta á barnið og gefur barn­inu leyfi til þess að gera upp for­tíð­ina. For­eldrið tekur þar af leið­andi ábyrgð á gjörðum sínum og mis­tökum – horf­ist í augu við sann­leik­ann og tekst á við skömm­ina sem mis­gjörðum sínum fylgir. For­eldrið tekst þá á við sinn eigin sárs­auka og heilar þar með eitr­aða og með­virka fjöl­skyldu­mynstrið í leið­inni – það er ótrú­lega dýr­mætt og magnað ferða­lag bæði fyrir for­eldrið og barnið og gefur báðum tæki­færi á því að eign­ast fal­legt og heil­brigt sam­band.

Hins vegar ef for­eldri tekst ekki að sam­þykkja til­finn­ingar og upp­lif­anir barns síns – þaggar niður í barn­inu sem reynir að tjá sig og spilar á sam­visku­bit þess – afneitar því – skammar það og svo fram­vegis þá hefur það gríð­ar­lega slæmar afleið­ingar. For­eldr­inu tekst þ.a.l. ekki að horfast í augu við sjálfan sig og bera ábyrgð á eigin líðan og gjörðum – horfast í augu við sann­leik­ann og takast á við skömm­ina. Þá heldur eitrið og með­virknin áfram að breið­ast út eins og krabba­mein í börnin og aðra fjöl­skyldu­með­limi.

Foreldri getur líka verið með and­leg veik­indi sem það leitar ekki hjálpar við líkt og kvíða – þung­lyndi – alka­hól­isma – lyfjafíkn – per­sónu­leik­arask­anir – kven­fyr­ir­litn­ingu – narcissisma og fleira sem gerir barn­inu enn erf­ið­ara fyrir að eign­ast heil­brigð sam­skipti við það.

Þegar barn eitr­aðs for­eldris – sama hversu gam­alt barnið er – tekur þá ákvörðun að setja mörk á sam­skiptin eða jafn­vel slíta sam­skiptum við for­eldrið þá búa þar að baki margar ástæður. Oft eru ástæð­urnar svo myrkvar og dimmar að fólk getur ekki einu sinni byrjað að ímyndað sér hvað barnið hefur þurft að ganga í gegnum.

Það krefst ótrú­legs hug­rekkis og krafts fyrir barn að bæði setja mörk og slíta sam­skiptum við for­eldrið sitt og standa við það – sama hvort barnið sé ungt eða full­orðið. Það tekur ekk­ert barn þá ákvörðun af létt­leika. Ofan á það eitt að taka ákvörð­un­ina sjálfa þá gerir fólk sér heldur ekki grein fyrir afleið­ing­unum sem henni geta fylgt – hót­anir – and­legt og/eða lík­am­legt ofbeldi – for­eldri afneitar barn­inu – sjálfs­morðs­hót­anir eða til­raun til þess fram­kvæmd.

Eftir mikla and­lega vinnu þá get ég í mínum kær­leika séð ástæð­urnar fyrir því af hverju for­eldrar mínir höfðu ekki styrk til þess að takast á við sinn eig­inn sárs­auka. En þó svo að ég geti sýnt þeim skiln­ing – kær­leika og með tím­anum fyr­ir­gefn­ingu þá hef ég mitt frjálsa val varð­andi sam­skipti við þau. Ég valdi að halda áfram í mínu heil­unar og bata­ferli án þeirra og fyrir mig og mína fjöl­skyldu þá var það eina rétta ákvörð­unin. Eftir margra ára bar­áttu við að eign­ast heil­brigð sam­skipti og alltof mikla von í barns­hjart­anu mínu sem þráði ekk­ert heitar en að vera elskuð og sam­þykkt af for­eldrum mínum þá gat ég ekki meira – hvorki á lík­ama né sál. Ég gat ekki hleypt eitr­inu nær okkur og sagði því skilið við það.

Það sem mér finnst mik­il­vægt að komi fram í þess­ari umræðu er sárs­auk­inn sem fylgir því að fá ekki stuðn­ing frá þeim sem eiga að vita betur. Þeim sem þekkja sög­una og hafa jafn­vel orðið vitni sjálfir eða heyrt af því sem gekk á. Fólk sem lifir í svo mik­illi með­virkni að það getur ekki einu sinni borið virð­ingu fyrir erf­iðri ákvörðun líkt og þess­ari. Sem leyfir sér að segja „en hann er nú Pabbi þinn eftir allt!“ – „en hún er mamma þín, hún fæddi þig!” – Fólk sem lætur eins og ekk­ert sé og þorir ekki að tala um fíl­inn í her­berg­inu – í jóla­boð­inu – í fjöl­skyldu­hitt­ingum eða undir fjögur augu.

Per­sónu­lega þá hef ég aldrei beðið neinn um að velja sér hlið – mína eða þeirra – og ég mun aldrei gera það. Enda er það ekki það sem skiptir máli. Sem betur fer þá fæð­umst við inn í þennan heim með frjálst val um það hverja við veljum að hafa í lífi okkar þegar við full­orðn­umst og ég ber virð­ingu fyrir vali ann­arra eins og ég bið aðra um að bera virð­ingu fyrir mínu eigin vali.

Það sem skiptir máli fyrir mér er að fólk sé fært um að sýna stuðn­ing – tala um hlut­ina þó þeir séu erf­iðir – segja hlut­ina upp­hátt eins og þeir eru – hætta að tipla á tánum í enda­lausri með­virkni og grípa inn í þegar það veit um barn/börn sem búa við van­rækslu og ofbeldi. Þegar ég var lítil þá greip eng­inn inn í þær hrika­legu aðstæður sem ég bjó við og ég er heppin að hafa kom­ist ágæt­lega heil út úr þeim – það hafa því miður ekki allir sömu sögu að segja.

Mig langar að taka smá dæmi um hversu lokuð þessi umræða um Toxic for­eldri er og þar sem ég hef opin­berað fyrir þjóð­inni í gegnum #höf­um­hátt hluta af þeirri kyn­ferð­is­legu mis­notkun sem ég varð fyrir þá set ég þetta í eft­ir­far­andi sam­hengi :

Mis­notk­unin af hálfu Róberti barn­a­níð­ings er bara brot við hlið­ina á afleið­ing­unum af van­rækslu for­eldra minna. Í mínu til­felli þá er Róbert barn­a­níð­ingur ein af afleið­ing­unum af van­rækslu for­eldra minna og hann vissi það – hann nýtti sér það.

Af hverju er það sem Róbert barn­a­níð­ingur gerði mér „ekki í lagi“ en það sem for­eldrar mínir gerðu „í lagi“!?

Af hverju þurfum við að vera svona með­virk gagn­vart sam­bandi for­eldra og barna og sitja hjá og þegja en þegar kemur að kyn­ferð­is­brotum þá megum við öskra og hafa hátt!?

Af hverju mega konur segja frá karl­mönnum sem beittu þær and­legu og lík­am­legu ofbeldi en þegar börn reyna að segja frá ofbeldi af hálfu for­eldra sinna þá eru þau þögguð niður!?

Sárin mín eftir for­eldra mína eru eins og djúpir skurðir fullir af skít sem eitra mig að innan – ég þarf að byrja á því að fjar­lægja skít­inn – síðan sótt­hreinsa sárið og leyfa því að anda – og að lokum leyfa því að gróa – fyrir hvern ein­asta skurð. Ég mun ávallt bera með mér örin – þau hverfa aldrei. Fyrir mig þá er þetta full vinna hvern ein­asta dag. Í dag er ég er stolt af því að sinna þess­ari vinnu og ég er stolt af bör­unum mínum – þau minna mig á styrk­inn minn og sig­ur­inn sem ég hef unnið.

Mér finnst svo mik­il­vægt að við opnum á umræð­una um hvað börn eitr­aðra for­eldra þurfa að ganga í gegnum og hverjar afleið­ing­arnar séu. Ég veit að ég er ekki ein um allar þessar upp­lif­anir og því hvet ég ykkur sem hafið ekki þor til þess að sýna stuðn­ing til þeirra sem eru fastir í sam­skiptum við eitr­aða for­eldra að draga tjöldin frá ykkar eigin með­virkni og byrja að stíga skrefin fram á við. Hver veit nema með því séuð þið að hjálpa til við að stöðva eitrið og stoppa í mörgum til­fellum nokkrar kyn­slóðir af áföllum og ofbeldi!!

Standið upp og klappið fyrir börnum sem taka þá ákvörðun að stöðva eitrið – þakkið þeim fyrir að taka ábyrgð á sínum áföllum – sinni líðan og neita að bera það áfram í sínar eigin fjöl­skyldur! Ekki sitja hjá og þegja – ekki láta eins og ekk­ert sé – ekki leyfa eitr­inu að sigra!

Í lokin vil ég koma á fram­færi að þrátt fyrir allt ofbeldið og van­ræksl­una þá er ég ein þakk­lát kona í dag. Ég er búin að vera í mínu bata­ferða­lagi í rúm­lega fjögur ár og held ótrauð áfram þar sem ég neita að verða eitrað for­eldri sjálf og bera mín áföll og eitrið í börnin mín – það er ein­fald­lega ekki í boði.

Ég vona að ég nái að veita ein­hverjum sem þarf á því að halda inn­blástur í þetta erf­iða verk­efni. Ef ég gat þetta þá getur þú það líka – það er ekk­ert jafn frelsandi og að standa með sjálfum sér. Vertu þitt eigið for­eldri ef þú þarft þess hvort sem er þín eigin móðir – þinn eig­inn faðir eða bæði!

Taktu þína eigin áfallas­göu og breyttu henni í styrk­leik­ann þinn!

Ég er þakk­lát fyrir að fá að sinna þessu hlut­verki í líf­inu og ég er þakk­lát fyrir að þora að tala um þessa við­kvæmu hluti. Ég er þakk­lát fyrir mína litlu ynd­is­legu fjöl­skyldu og allt stuðn­ings­netið sem ég hef myndað mér sem grípur mig alltaf þegar ég þarf á stuðn­ingi að halda. Ég er þakk­lát fyrir allar Gyðj­urnar mínar – Sálu­systur mínar og Klettana mína!

Þetta er ekki minn felu­leikur eða mín skömm – þetta er minn sann­leikur – mín upp­lifun – mín saga og ég vona svo inni­lega að ég nái að láta sög­una mína hafa áhrif til hins betra – ég finn að minnsta kosti stór­kost­legt frelsi í því að opin­bera mína sögu – eitt skref í einu!

Stöndum saman og stöðvum ofbeldi gegn börnum – Opnum augun fyrir þeirri stað­reynd að for­eldrar geta verið skað­legir fyrir sín eigin börn – Stöðvum eitr­uðu með­virkn­ina!

Lífið er svo mikið bjart­ara í sann­leik­anum!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð